Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2016, Síða 20

Læknablaðið - 01.06.2016, Síða 20
280 LÆKNAblaðið 2016/102 með mestu nákvæmnina en 18,5% þátttakenda fannst það vera mikilvægasti þáttur rannsóknarinnar (sjá töflu III). Aðhvarfsgreining Í aðhvarfsgreiningunni duttu tvær barnshafandi konur út þar sem þær svöruðu færri en 50% af valkostaspurningunum. Heildar- fjöldi þátttakenda meðal barnshafandi kvenna var því 184. Já- kvæði stuðullinn gefur til kynna að bæði barnshafandi konur og heilbrigðisstarfsmenn vilji fósturgreiningu sem hefur meiri nákvæmni, enga hættu á fósturláti og gefi ítarlegar upplýsingar. Neikvæði stuðullinn fyrir tíma niðurstaðna gefur til kynna að þátttakendur vilji að fósturgreining sé gerð fyrr á meðgöngunni. Allir stuðlarnir voru marktækir fyrir báða hópa nema stuðullinn fyrir ítarlegar upplýsingar hjá heilbrigðisstarfsmönnum (tafla IV). Þegar niðurstöðurnar úr aðhvarfsgreiningunni eru bornar saman milli barnshafandi kvenna og heilbrigðisstarfsmanna sést að marktækur munur er á stuðlunum fyrir tíma niðurstaðna og enga hættu á fósturláti. Þegar niðurstöðurnar voru skoðaðar eftir aldri kom í ljós að konur ≥35 ára leggja meiri áherslu á að fá niðurstöður fyrr á meðgöngunni en yngri konur (p=0,0180), ekki var marktæk- ur munur eftir aldri á öðrum þáttum (tafla V). Skoðaðir voru sérstaklega þeir þátttakendur sem skiptu ekki út vali, það er héldu sig við sama þáttinn í öllum valkostunum (nontraders). Af þeim völdu 52 (28,2%) barnshafandi konur og þrír (4,9%) heilbrigðisstarfsmenn greiningu sem fól í sér enga hættu á fósturláti í öllum valkostunum (tafla VI). Útreikningur á hlutfalli þátttakenda sem voru tilbúnir til að skipta út vali (marginal rates of substitution) sýndi fram á sterka til- hneigingu barnshafandi kvenna til að velja greiningu með engri hættu á fósturláti. Barnshafandi konur voru tilbúnar til þess að bíða meira en þrisvar sinnum lengur og sætta sig við 6% minni ná- kvæmni fyrir greiningu með engri hættu á fósturláti samanborið við heilbrigðisstarfsmenn (tafla VII). Umræður Í mörgum vestrænum löndum eru til leiðbeiningar um fósturskim- un. Þær byggja á að heilbrigðisstarfsmenn hafi góða þekkingu á efninu, að upplýsingar til verðandi foreldra séu aðgengilegar og í reglulegri fagrýni.15 Kostir NIPT eru að þetta er tiltölulega ein- föld rannsókn sem hægt er að framkvæma snemma á meðgöngu og felur ekki í sér hættu á fósturláti. Eins og búist var við sýndu niðurstöðurnar að bæði barnshafandi konur og heilbrigðisstarfs- menn vilja rannsókn sem er nákvæm og örugg fyrir fóstrið, fram- kvæmd snemma á meðgöngu og gefur ítarlegar upplýsingar. Aftur á móti var munur á viðhorfum barnshafandi kvenna og heilbrigð- isstarfsmanna þegar kom að öryggi, nákvæmni og tíma sem það tók að fá niðurstöður, en barnshafandi konur voru tilbúnar að bíða lengur og sætta sig við minni nákvæmni fyrir rannsókn sem hafði enga hættu á fósturláti í för með sér, samanborið við heilbrigð- isstarfsmenn. Svarhlutfall heilbrigðisstarfsmanna var hins vegar mjög lágt og því ekki hægt að gera ráð fyrir að viðhorf þeirra fáu sem svöruðu endurspegli hóp allra heilbrigðisstarfsmanna sem sinna barnshafandi konum. Sambærilegar niðurstöður má þó sjá í nokkrum erlendum rannsóknum. Samkvæmt rannsókn Hill og fleiri4 var hætta á fósturláti sá þáttur sem hafði mest áhrif á viðhorf barnshafandi kvenna til fósturgreiningar, hins vegar hafði nákvæmni greiningarinnar mest áhrif á viðhorf heilbrigðisstarfs- manna. Í annarri rannsókn14 kom fram að heilbrigðisstarfsmönn- um fannst mikilvægast að hægt væri að framkvæma greining- arprófið snemma á meðgöngu en hins vegar voru barnshafandi konur tilbúnar að bíða lengur eftir niðurstöðum fyrir öruggara og nákvæmara próf. Öryggi, það að rannsóknin hefði enga hættu á fósturláti í för með sér, var sá þáttur rannsóknarinnar sem skipti barnshafandi R A N N S Ó K N Tafla VI. Þátttakendur sem skiptu ekki út vali. Barnshafandi konur (n=184) (%) Heilbrigðis - starfsmenn (n=61) (%) Völdu próf með mestu nákvæmni í öllum valkostum 3 (1,6) 1 (1,6) Völdu próf sem var framkvæmt sem fyrst í öllum valkostum 2 (1,1) 2 (3,3) Völdu próf með ítarlegum upplýsingum í öllum valkostum 3 (1,6) 4 (6,6) Völdu próf með enga áhættu í öllum valkostum 52 (28,2) 3 (4,9) Völdu hvorugt prófið í öllum valkostum 4 (2,2) 1 (1,6) Samtals 64 (34,8) 11 (18,0) Tafla VII. Hlutfall þeirra sem voru tilbúnir að skipta út vali. Fjöldi vikna sem þátttakendur eru tilbúnir til að bíða Minnkun á nákvæmni (%) sem þátttakendur eru tilbúnir að sætta sig við Barnshafandi konur Heilbrigðisstarfsmenn Barnshafandi konur Heilbrigðisstarfsmenn Greining með engri hættu á fósturláti 10,30 (1,875/-0,182) 2,94 (0,736/-0,250) 9,66 (1,875/0,194) 3,33 (0,736/0,221) Greining með ítarlegum upplýsingum 2,31 (0,420/-0,182) 0,83 (0,208/-0,250) 2,16 (0,420/0,194) 0,94 (0,208/0,221) Greining með 5% meiri nákvæmni 5,33 (0,194/-0,182 x5) 4,42 (0,221/-0,250 x5) - - Greining sem er framkvæmd snemma - - 0,94 (-0,182/0,194) 1,13 (-0,250/0,221) Tafla V. Aðhvarfsgreining, samanburður eftir aldri. Konur <35 (n =145) Konur ≥35 (n=36) Mismunur Eiginleikar Stuðulla Stuðullb p gildi Nákvæmni 0,199 0,190* 0,8848 Tími niðurstaðna -0,162 -0,277 0,0180 Ítarlegar upplýsingar 0,402 0,549# 0,4678 Engin hætta á fósturláti 1,801 2,250 0,1048 *Stuðull marktækur <0,005 Allir aðrir stuðlar marktækir<0,0001 aFjöldi athugana = 4341; Pseudo-R2 = 0,3770. bFjöldi athugana = 1077; Pseudo-R2 = 0,3901

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.