Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Qupperneq 13
6.—7. mynd: Hengibúkur fyrir
og eftir aðgerö.
8. mynd: Skematisk mynd af
„beltislipectomiu“.
9. mynd: Skematisk mynd af
,,lvpectomiu“ þegar húöin er slök
og slitin eftir barnsburö.
10. mynd: Skematisk mynd af
fitubrottnámi á feitum lærum.
H. mynd: Skematisk mynd af
fitubrottnámi viö f itusöfnun og
slakri húö á upphandleggjum.
af því að of mikið þrengir að
stilkunum á geirvörtunni. Getur
þetta bæði stafað af of miklu
togi á stilkinn eða þrýstingi, t. d.
frá blóðsafni í brjóstinu, verður
að tæma það út þegar í stað og
stöðva blæðinguna, því að þrýst-
ingurinn af því getur ekki að-
eins valdið drepi í geirvörtunni,
heldur einnig i brjóstvefnum og
húðinni, auk þess sem afleiðing
af blóðsafni verður oftast igerð.
fgerð með fitudrepi er alvar-
legasti fylgikvilli eftir þessar
aðgerðir og krefst að sjálfsögðu
viðeigandi meðferðar, þ. e. a. s.
að hleypt sé út úr ígerðinni og
nægileg afrás mynduð frá
henni og einnig, að viðeigandi
lyf séu gefin. Loks er ekki óal-
gengt, sökum þess hve mikið
reynir á saumana í húðinni, að
drep komi í sárbarmana, aðal-
lega neðan á brjóstunum, þar
sem lóðrétt og lárétt saumlína
mætist. Við þetta gliðna sárin
og örin verða áberandi. Ekkert
er við þessu að gera í fyrstu,
en eftir hæfilegan tíma má laga
örin með nýrri skurðaðgerð.
Eins og við allar meiriháttar
skurðaðgerðir, er viss hætta
fólgin í sjálfri svæfingunni. Þá
er og hætta á æðabólgu í fót-
um, einkum ef sjúklingarnir eru
ekki duglegir að hreyfa sig og
ekki látnir fara nægilega
snemma á fætur eftir aðgerð-
ina. Við sjálfa aðgerðina blæð-
ir oft allmikið, og þarf að bæta
það blóðtap upp, meðan á að-
gerðinni stendur, til þess að fyr-
irbyggja lost.
\IM>i:itHllt A KVIIIVEGIi
VIII OFFITIJ:
Auk brjóstanna safnast fita
helzt á kvið, læri og mjaðmir.
Fitufelling myndast neðst á
kviðnum og getur jafnvel náð
niður á læri. Er þetta mjög
óásjálegt, og auk þess safnast
sviti og óhreinindi undir fell-
inguna og er hætta þar á afrif-
um, jafnvel sármyndun, þótt
fyllsta hreinlætis sé gætt. Hjá
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 7