Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1972, Side 31
Nýtt tæld til Landspítalans
gjörbreytir aðstöðu til greiningar hjartasjúkdóma
Kiwanisklúbburinn Katla, nokkur fyrirtæki og
einstaklingar í Reykjavík færðu lyflækninga-
deild Landspítalans fullkomið tæki til greininga
á hjarta- og lungnasjúkdómum.
Tæki þetta var keypt frá heimsþekktu banda-
rísku fyrirtæki, er Electronics for Medicine
nefnist. Ástæðan fyrir vali tækisins var fyrst
og fremst sú, að hægt er að beita því til margs
konar rannsókna á hjarta- og lungnasjúkdóm-
um. Hefur slíkt tæki aldrei fyrr verið í eigu
íslenzks sjúkrahúss.
Með tilkomu þess skapast ný rannsóknarað-
staða fyrir hjartasjúklinga hérlendis, enda eru
tækin, að sögn lækna Landspítalans, beztu fáan-
legu tæki sinnar tegundar og munu gjörbreyta
rannsóknaraðstöðu rannsóknarstofunnar í
hjartaþræðingum. Segir í fréttatilkynningu frá
læknum Landspítalans, að spítalinn standi í
mikilli þakkarskuld við gefendur tækisins fyrir
framsýni þeirra, stórhug og dugnað til eflingar
rannsóknum á hjartasjúkdómum og skyldum
greinum læknisfræðinnar.
Rannsóknir þær sem tækið framkvæmir eru
þessar helztar:
1. Rannsóknir framkvæmdar utan á líkama
sjúklinga þeim að óþægindalausu og miða að
því að komast að nákvæmri sjúkdómsgreiningu,
mælingu á vöðvakrafti hjartans og til mats á
árangri lækninga og endurhæfingar eftir hjarta-
áföll. Þær rannsóknir eru: Margrása hjarta-
línuritun, þrívíddarhjartaritun, hjartahljótirit-
un, ritun á slagæða- og bláæóaslætti, ritun á
broddslætti hjartans.
2. Auknir möguleikar skapast í sambandi við
hjartaþræðingar. Með slíkum rannsóknum fæst
nákvæmust greining á hjartasjúkdómum og á
hve háu stigi sjúkdómurinn er. Þannig er metið,
hvort aðgerða sé þörf, enda er hjartaþræðing
nær alltaf forsenda skurðaðgerða á hjarta.
Vegna mikilla framfara í skurðaðgerðum við
kransæðasjúkdóma er tækið sérlega mikilvægt
til rannsókna á þeim sjúkdómum. Hlutverk tæk-
isins í hjartaþræðingum er: Hjartalínuritun,
þrýstingsmælingar i hjartahólfum og í æ'öum
sem liggja að og frá hjarta, mæling á samdrátt-
arhæfni hjartavöðvans, nákvæm greining og
staðsetning á vissum meðfæddum hjartagöllum.
3. Fjölhæfni tækisins býður einnig upp á gagn-
gerar nýjungar í rannsóknum lungnasjúkdóma
hér á landi. Mun það því stuðla mjög að eflingu
lungnarannsókna í rannsóknarstofu í þeim fræð-
um, en hún hefur þegar verið stofnuð á Land-
spítalanum.
Ný innheimtuaðferð
Eins og öllum hjúkrunarkonum er kunnugt, var
samþykkt á síðasta aðalfundi, í júní 1971, að
framvegis verði félagsgjald 9% af einum mán-
aðarlaunum almennrar hjúkrunarkonu, sem nú
er 16. fl. og miðað við 6 ára starf, og heimilt
að greiða gjöldin í tvennu lagi.
Félagsgjöldin eru nú:
kr. 2500,00 í fullu starfi
— 1800,00 í hálfu starfi og meira (ca. % lægri)
—- 1200,00 í afleysingum (ca. i/£ lægri)
— 800,00 ekki í starfi (ca. % lægri)
— 250,00 hjúkrunarkonur yfir 70 ára og
hj úkrunarnemar
Um mánaðamót febr./marz verður innheimtur
rúmur helmingur félagsgjalda hjá starfandi
hjúkrunarkonum, en seinni hlutinn í sept. n.k.
Hjúkrunarkonur, sem ekki eru starfandi, eru
vinsamlegast beðnar að greiða félagsgjöldin,
annað hvort beint til skrifstofu félagsins eða á
PÓSTGÍRÓREIKNING NR. 21177. Hægt er að
greiða í hvaða banka sem er, bankaútibúi eða
pósthúsum. Þær innheimtuaðferðir, sem áður
hafa tíðkazt, eru ekki þekktar í neinu öðru landi,
að sækja greiðslur heim til hvers greiðanda, og
stefnt verður að því að hjúkrunarkonur, sem
ekki eru starfandi, greiði félagsgjöldin fram-
vegis á póstgíróreikning félagsins nr. 21177.
Skrifstofan vonar að þessi nýja innheimtuaðferð
beri tilætlaðan árangur.
Sumarhús HFÍ
Sumarhús HFl að Munaðarnesi og Kvenna-
brekka í Mosfellssveit verða leigð út næsta
sumar. Húsin verða leigð út eina viku í senn,
frá laugardegi til laugardags.
Byrjað verður að taka á móti umsóknum
þriðjudaginn 4. apríl n.k. á skrifstofu félagsins.