Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1985, Blaðsíða 29
Menntun hjúkrunar-
fræðínga, staða og ábyrgð
með tilliti til þróunar
heilbrigðismála
á Norðurlöndum
Frá setningu fundarins. í rœðustól er Sigþrúður Ingimundardóttir, formaður Hjúkrunarfélags íslands.
Fulltrúafundur SSNfór að þessu sinni fram á Hótel Loftleiðum 10.-12. september sl.
Aðalumræðuefni fundarins auk aðalfundarstarfa var „Menntun hjúkrunarfrœðinga,
staða og ábyrgð með tilliti til þróunar heilbrigðismála á Norðurlöndum. “
Heiðursgestir við setningu fundarins voru: Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir,
menntamálaráðherra Ragnhildur Helgadóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis
Páll Sigurðsson, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, MagnúsL. Sveinsson, aukann-
arra gesta.
Fundinn sátu 77þátttakendur frá öllum aðildarfélögum SSN.
Formaður SSN, Ulrica Cronéfrá Svíþjóð, var einróma endurkjörinn. Formannskjör
ferfram árhvert. SSN hefur nú um 200.000 hjúkrunarfræðinga innan sinna vébanda.
Fundurinn lagði áherslu á að menntun hjúkrunarfrœðinga, hvarsem er í heiminum,
skapi þeim traustan grunn til að byggja starf sitt á.
HJÚKRUN 3 -V85 - 61. árgangur 27