Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1985, Blaðsíða 31
Háborðsumrœður. Pátttakendur f.v.: Birthe Wernberg M0ller, Danmörk, Inger Mattsson, Finnland, Ingibjörg S. Guðmundsdóttir,
ísland, Aud Blankholm, Noregur, Karin Olsson, Svíþjóð. Fundarstjórarnir Pálína Sigurjónsdóttir og Eva Holm Christensen.
• Mat og þróun hjúkrunar
Hjúkrunarfræðingar verða sífellt
að meta og leitast við að þróa starf
sitt. Til þess að þetta sé unnt er
- nauðsynlegt að skráning sé í full-
komnu lagi.
• Rannsókna- og
þróunarstarf
Menntun hjúkrunarfræðinga og
starfsreynsla er með þeim hætti að
það er bæði eðlilegt og sjálfsagt að
þeir takist á hendur rannsóknir á
sviði hjúkrunar. Peir skulu ávallt
gæta þess að kenningar þeirra
komi að gagni og verði hagnýttar.
, • Menntun
k hjúkrunarfræðinga
Við höfum náð markmiði með
þemadögunum. Fyrirlestrar gáfu
greinagóðar upplýsingar um
þróun heilbrigðismála og breyt-
ingar í samfélaginu. Skipst var á
upplýsingum um menntun hjúkr-
unarfræðinga í löndum okkar og
afstöðu félaganna til menntunar í
eigin landi og annarra. Rætt var
um hlutverk hjúkrunarfræðinga
og bent á atriði sem vaka þarf yfir
og berjast fyrir að fá fram.
Menntun hjúkrunarfræðinga skal
tryggja þeim breiðan og traustan
grunn til að byggja starf sitt á.
Jafnframt skulu þeir ávallt eiga
kost á framhaldsmenntun.
Fundarsamþykkt
Fulltrúar Samvinnu norrænna
hjúkrunarfræðinga héldu fund í
Reykjavík 10.-12. september
1985. Pema fundarins var:
„menntun hjúkrunarfræðinga,
starfssvið þeirra og ábyrgð, séð í
ljósi þróunar heilbrigðismála á
Norðurlöndum.“
Það er stefna Heilbrigðisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (WHO) að
menntun hjúkrunarfræðinga, hvar
sem er í heiminum, skapi þeim
breiðan og traustan grunn til að
byggja starf sitt á. Hjúkrunar-
fræðingar á Norðurlöndum styðja
þessa stefnu heilshugar.
Hjúkrunarfræðingar skulu eiga
kost á framhaldsmenntun á starfs-
sviði sínu.
Hjúkrunarfræðingar eru heil-
brigðisstétt og krafta þeirra á að
nýta til hagsbóta fyrir heilsugæslu
og þróun hennar í ríkara mæli en
gert hefur verið fram til þessa.
Stjórnarkjör o.fl.
Ulrica Croné frá Svíþjóð var ein-
róma endurkjörinn formaður
SSN.
1. varaformaður Kirsten
Stallknecht, Danmörku. 2. vara-
formaður Aud Blankholm, Nor-
egi.
Meðstjórnendur: Toini Nousiain-
en, Finnlandi og Sigþrúður Ingi-
mundardóttir, íslandi.
Stjórn SSN ákvað að styrk SSN,
DKK 17.000.00 skuli nota til upp-
lýsingaöflunar varðandi umræðu-
efni þema-dagana á fulltrúafundi
1986. „Dokumentation i och av
omvárdnad - teori och praktik."
HJÚKRUN 3 ~4ás -61. árgangur 29