Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Page 40
Systurnar Flo og Pop áttu sæg af frændum og frænkum í
báðar ættir, afa og ömmur og skyldmenni og venslafólk út frá
þeim. Allir urðu stöðugt að fylgjast með hvað hinir tóku sér
fyrir hendur. Síminn hafði enn ekki verið fundinn upp svo
bréfspjöld, sendibréf og alls kyns skilaboð um hvað eina
streymdu án alláts fram og til baka. Ef ráða átti nýjan ökumann
varð öll stórfjölskyldan að taka þátt í því og ef eldabuska hætti
störfum urðu allir að fylgjast með hvemig þvf reiddi af. I raun
og vem var ekkert í daglega lffinu einfalt eða auðvelt. Hinir
yngri urðu að vera kurteisir, hjálpsamir og hlýðnir við þá sem
eldri voru og ekki mátti brjóta gegn tíðarandanum, siðum og
venjum. Það var yfirsjón af efstu gráðu! Ef það gerðist féllu
lafðirnar í yfirlið, hlaupa varð til með ilmsölt og leggja þær upp
í sófa með gluggatjöldin dregin fyrir. Yfirlið á réttu augnabliki
var tákn um viðkvæma lund og það var fínt og hámóðins að
vera viðkvæmur. Flo reit eftirfarandi framarlega í dagbókina
sína:
„... ég held að konurnar yrðu ekki svona þreyttar ef þœr
lœgju minna uppi (sófa til að hm'la sig. “
Ekki varð tölu á samkvæmin komið, brúðkaup og
barnaskírnir, refaveiðar, stofutónleikar og grímuböll; ferðalög
og heimsóknir svo flaut yfir alla bakka.
Inn í þetta andrúmsloft fæddist Flo. Enskt hástéttarlíf
sem einkenndist af auði, gáska og glæsileik. En fastmótuðum
reglum um hvað væri viðeigandi og hvað ekki.
Allt var svo glœst utan frá séð, en sannleikurinn var sá að
við hnepptum livert annað (gullið fangelsi.
Þegar fjölskyldan kom heim úr Ítalíuförinni settist hún að
á ættarsetrinu Lea Hurst í Derbyskíri. En Fanny var aldrei
fyllilega sátt við að búa þar. Setrið var á fögrum stað, en vetur
voru þar kaldir og húsið ekki rúmgott, aðeins fimmtán
svefnherbergi! Wen festi því kaup á herragarðinum Embley
Park sem var nær Lundúnum og eftir það bjó fjölskyldan á Lea
Hurst að sumrinu en Embley Park á vetrum.
Samkvæmistímabilið, haust og vor, dvöldust þau í Lundúnum
svo að hægara væri að taka þátt í gestaboðum, fara á dansleiki
og tónleika og sækja leikhús.
Fanny og Wen voru indæl og aðlaðandi og þau höfðu
dálæti á börnum. Flo og Pop höfðu allt sem unnt var að óska
sér en samt var Flo ekki hamingjusamt barn. Hún var yfirmáta
hlédræg og feimin.
Mér fannst ég aldrei vera eins og hinir. Ég stóð íþeirri trú
að ég vœri einhvers konar umskiptingur og var sífelltt smeyk um
að það myndi uppgötvast. Ég var óskaplega hörundssár og held
helst að ég hafi verið það sem kallað er „erfitt ” barn. Ég var
skelfmgu lostin ef ég átti að hitta ókunnugt fólk og stóð íþeirri
trú að öðrum börnum félli ekki við mig. Mamma var aldrei
ánœgð með mig, mér tókst ekki einu sinni að handleika hníf og
gajfal svo vel fœri! Mér geðjaðist heldur ekki eins vel að Pop
systur minni og mér bar að Guðs og manna lögum. Ég var í
stígvélum alla daga til að styrkja ökklana og œfði mig í að
nota krullujárn eins og mamma vildi að ég gerði! Ég gerði mér
far um að vera góð og standa mig vel!
Flo ilýði inn í veröld draumanna og gat löngum stundum
verið niðursokkin í dagdrauma. Til allrar hamingju lagaðist
þetta þegar systurnar hófu skólagöngu enda þótt afstaðan til
Pop yrði litlu betri og Pop væri afbrýðisöm út í Flo. Hún var
indæl, snotur og blíðlynd og líka dugleg en Flo fríkkaði með
aldrinum á sinn sérstaka hátt og fljótlega rann það upp fyrir
hennar nánustu að hún átti óvenju auðvelt með að læra.
Fanny Nightingale með dœtrum sínum Florence og Parthenope.
1 fyrstu höfðu systurnar kennslukonur en síðar tók faðir
þeirra að mestu í eigin hendur að uppfræða þær. I raun og veru
fengu þær töluverða skólagöngu, mun meiri en þá tíðkaðist um
stúlkur. Þær lærðu grísku, latínu, þýsku, frönsku, ítölsku,
sagnfræði, heimspeki - og stærðfræði. Florence reyndist vera
framúrskarandi tölvís. „Hún svelgir tölurnar,” sagði kennarinn
hennar, „líkt og kyrkislanga bráð sína.” Hún skrifaði dagbók á
frönsku aðeins níu ára gömul. Á titilsíðunni stendur „La vie de
Florence Rossignol”. Rossignol þýðir næturgali eða sama og
Nightingale og er áritunin því „Ævi Florence Nightingale”.
Við vorum klukkustundum saman (kennslu á hverjum degi.
Mömmu og Pop fannst það alltof mikið. Ungar stúlkur áttu að
lœra dráttlist, að leika á hljóðfœri og útsaum enfátt annað. Mér
fannst kennslan stórkostleg og við pabbi fengum nóg að tala
um, eiginlega allt (jörðu og á!
Flo breyttist smátt og smátt. Hún var ekki lengur lftið og
hlédrægt barn en fór að taka þátt í öllu sem gert var til
skemmtunar og eignaðist nákomna og góða vini innan
fjölskyldunnar. Móðirin áttaði sig ekki á henni og var mun
sáttari við Pop systur hennar. En Flo bast Mai frænku sinni
sterkum böndum og innilegum; einnig frænkum sínum þeim
Hilary og Marianne. Hún var afar tilfinninganæm. Þegar allt
lék í lyndi var lífið þess virði að lifa því en þegar syrti að fannst
lienni tilveran lítt bærileg.
Ég var hrœðilega afbrýðissöm þegar Maifrœnka m(n
giftist enda þótt eiginmaðurinn vœri Sam, einn af mínum
uppáhalds frœndum! Égfékk að fara ( kirkjuna og man að ég
reyndi að troðast á milli þeirra þegar þau krupu við v(gsluna.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2. tbl. 72. árg. 1996