Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Síða 32
WENR á íslandi 2000
110. ráðstefi
sem stundj
25.-27. maí 2
Stórviðburðiir í hjukrun á íslandi
ALþjóðleg hjúkrunarráðstefna verður haldin í Reykjavík í maí 2000
Ráðstefnan verður haldin 25.-27. maí 2000 í Háskólabíói. Heiti
ráðstefnunnar er: Verkefni hjúkrunarfræðinga á 21. öldinni:
Heilsuefling, forvarnir og meðferð.
Á þriðja hundrað hjúkrunarfræðingar hvaðanæva úr heiminum
munu kynna rannsóknir sínar og nýjungar í hjúkrun. Þar af verða
flutt á annað hundrað framsöguerindi og yfir eitt hundrað
rannsóknir kynntar á veggspjöldum. Einnig verða vinnusmiðjur
starfandi alla dagana.
Sérstakt ráðstefnugjald er fyrir félagsmenn Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga 20.000 kr. ef skráning fer fram fyrir 1. apríl 2000
og félagar í deild eftirlaunaþega og nemendur í hjúkrunarfræðum
við H.í og H.A. 10.000. kr.
Nemendur þurfa að skila vottorði frá skóla um að þeir séu í fullu námi.
Innifalið í ráðstefnugjaldi er aðgangur að öllum fyrirlestrum og
vinnusmiðjum, ráðstefnugögn, veitingar í kaffihléum, bitabox í
hádegi alla 3 dagana og móttaka í Ráðhúsinu. Eftir 1. apríl 2000 er
gjaldið 25.000 kr. fyrir félagsmenn. Hægt er að skrá sig beint á
heimasíðu WENR http://www.hjukrun.is eða nálgast
skráningaeyðublöð hjá Úrval-Útsýn, ráðstefnuþjónustu, netfang:
bryndis@icelandtravel.is eða á skrifstofu félagsins.
Allar nánari upplýsingar veita:
Heimasíða WENR http://www.hjukrun.is
Úrval-Útsýn, ráðstefnudeild, sími 585 4000,
netfang: congrex@icelandtravel.is
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, sími 568 7575, netfang:
adalbjorg@hjukrun.is