Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Blaðsíða 32
„Þarf að koma á'^MÆAi willí
uÍK.RUMAY'kAðAV' og fjölskylduábyrgðar"
Nancy Fugate Woods er prófessor og forstööumaöur
hjúkrunarskóla háskólans í Washington. Hún er heims-
þekkt fyrir rannsóknir sínar á heilbrigði kvenna. Meðal
rannsóknarverkefna, sem veriö er að vinna á hennar
vegum, má nefna rannsóknir á tíðahringnum, tíðahvörfum
og heilbrigði kvenna á öllum aldursskeiðum. í fyrirlestri
sínum á WENR-ráðstefnunni fjallaði hún um helstu
hjúkrunarrannsóknir er flokkast undir málaflokkinn heil-
brigði kvenna síðustu 30 árin og hvert væri líklegast að
framlag þeirra yrði á næstu árum. Hún rakti áhuga á
heilsufari kvenna til Florence Nightingale og sagði
hjúkrunarrannsakendur almennt hafa endurskoðað ýmsa
þætti varðandi heilbrigði kvenna og komið fram með
skilgreiningar og rannsóknaraðferðir sem hefðu aukið
skilning á hugtakinu. Hún nefndi sem dæmi að í ritgerð
Nightingale Cassöndru hefði höfundur bent á að konur
hennar tíma hefðu ekki næg tækifæri til að nýta sér greind
sína. Þannig hefði höfundur reynt að opna augu sam-
tíðarkvenna sinna fyrir nýjum hugmyndum og möguleikum.
Hjúkrunarfræðingar hefðu einnig tekið virkan þátt í
hreyfingu femínista á sjöunda áratugnum og verið virkir
gagnrýnendur heilbrigðiskerfisins og tekið þátt í ritun bóka
sem hefðu haft mikil áhrif á breytta sjálfsmynd kvenna, svo
sem bókin „Our bodies, Ourselves".
Endurskoðun hugtaksins „heilbrigði kvenna" hefði leitt af
sér að áhersla jókst á þá þætti sem einkenndu heilbrigði
kvenna, ekki var lengur einblínt eingöngu á sjúkdóma
kvenna, einkum þá er lutu að barneignum, heldur var litið á
heilsufar kvenna í víðara samhengi í samspili við þjóð-
félagsstöðu, kynþátt og fleiri atriði. Litið var á ýmsa þætti lífs
þeirra, svo sem tekjur, menntun og menningu, til að öðlast
aukinn skilning á lífi þeirra og heilsufari. Femínistar hafa lagt
áherslu á að vísindasagan sé mótuð af karlmönnum og
áhugamálum þeirra og áherslum, þannig veki mörg
viðfangsefni ekki áhuga kvenna. Því sé ekki líklegt að rann-
sóknir, sem eru mótaðar á þann hátt, auki þekkingu á
konum og fyrir konur. Rannsóknir femínista hafa lagt áherslu
á að breyta aðstæðum kvenna fremur en að leiða einungis
fram sannleika. Hlutverk þeirra er enn fremur að koma fram
með upplýsingar fyrir konur en ekki eingöngu um konur.
Getur þjóðfélagið gert konur veikar?
Rannsóknir á konum eru ekki nýjar af nálinni en rann-
sóknir, sem eru gerðar á forsendum þeirra, eru hins vegar
156
Nancy Woods.
nýlunda. Litið er á konurnar, sem rannsakaðar eru, sem
sérfræðinga í lífi sínu. Rannsóknirnar hafa m.a. beinst að
því hvernig þjóðfélagið getur gert konur veikar. En hvað á
Nancy Woods við með því? „Mér varð hugsað til femínista
og hreyfingar þeirra þegar við ræddum um að hið
persónulega væri pólitískt. Síðustu áratugi höfum við rætt
um forvarnir og hvernig við getum haldið sem bestri heilsu
með því að reykja ekki, borða hollan og góðan mat,
stunda líkamsrækt og fleira í þeim dúr. Við höfum rætt um
ýmsa þætti sem eru mikilvægir í heilsueflingu og lagt
áherslu á að einstaklingurinn beri ábyrgð á heilsufari sínu.
Það væri því á ábyrgð kvenna og karla sem einstaklinga
að vera við góða heilsu. En þegar við lítum á kringum-
stæður kvenna, þá er í sumum tilfellum erfiðara fyrir sumar
konur að varðveita heilsu sína. Sem dæmi má nefna að
konur í fátækrahverfum í Bandaríkjunum geta ekki farið út
að hlaupa þar sem umhverfið er of hættulegt. Þær eru því
mun ver settar en t.d. ég þar sem ég hef næga peninga til
að búa í öruggu umhverfi. Ég get farið út, gengið og
hlaupið að vild án þess að leggja mig í hættu. í mörgum
fátækrahverfum í Bandaríkjunum væri mér ekki óhætt að
fara út ein að ganga. Þarna er því stór hóp kvenna sem
getur ekki tekið þátt I heilsueflingu.
Annað dæmi eru reykingar. Við höfum ekki fyrr en
nýlega beint sjónum að því hvers vegna fólk reykir. Það
kemur í Ijós að konur reykja mikið vegna streitu, vegna
þunglyndis. Nikótín hefur áhrif á hvernig þeim líður og því
er nú notað lyf í reykingarmeðferð sem er oft notað við
þunglyndi. Þess vegna bjóðum við núna meðferð þar sem
lyf eru notuð sem hjálpartæki við að hætta reykingum. En
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000