Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Blaðsíða 37
Helga Birna Ingimundardóttir hagfræðingur:
Hjúkrunarfræðingar, á ég að nýta
mér trúnaðarmanninn?
( nýjasta hefti tímarits Bandalags
háskólamanna, BHM-tíðindum 2.
tbl., skrifar Páll Halldórsson grein er
ber heitið „Hlutverk trúnaðarmanna".
Tilgangur þessarar greinar er að
árétta enn frekar það sem fram
kemur í grein Páls en út frá sjónarhóli
hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræð-
ingar sem láta sig varða málefni
trúnaðarmanna og réttindi á vinnumarkaði eru eindregið
hvattir til að lesa grein Páls Halldórssonar.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samþykkti 3.
júní 1994 starfsreglur trúnaðarmanna. Þær skiptast í 5
meginkafla sem eru: skipan og kosning trúnaðarmanna,
hlutverk trúnaðarmanna, skyldur Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga gagnvart trúnaðarmönnum félagsins, skyld-
ur trúnaðarmanna og réttindi þeirra gagnvart vinnuveit-
anda. Starfsreglur trúnaðarmanna eru byggðar á lögum nr.
94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og
birtast í heilu lagi í handbók Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga.
Skipan og kosning trúnaðarmanna
Trúnaðarmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eiga
samkvæmt starfsreglunum að vera starfandi innan hverrar
svæðisdeildar, á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og
öðrum heilbrigðisstofnunum. Aðalreglan er sú að trúnaðar-
maður sé kjörinn á vinnustað þar sem eru a.m.k. fimm
starfsmenn. Þá má einnig kjósa trúnaðarmann fyrir
ákveðið félagasvæði ef ekki er unnt að uppfylla ákvæðin
um lágmarksfjölda félagsmanna. Einnig mega einstakar
svæðisdeildir skipa trúnaðarráð sem þjóni þeim stofnun-
um sem ekki ná að uppfylla ákvæði um lágmarksfjölda
Hjúkrunarfræðingar, munið mikilvægi þess að tilkynna
nöfn kjörinna trúnaðarmanna til stjórnar svæðisdeildar
og skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þessi
áminning er mjög brýn þar sem skrifstofu félagsins ber
að tilkynna nöfn kjörinna trúnaðarmanna til viðkomandi
stofnana. Stofnanir verða að hafa rétt nöfn trúnaðar-
manna til að laun þeirra verði ekki skert þegar þeir
sækja þing, fundi, ráðstefnur eða námskeið á vegum
félagsins, t.d. vegna komandi kjarasamningsviðræðna.
félagsmanna. Mjög mikilvægt er að farið sé eftir þessum
ákvæðum og að þeir hjúkrunarfræðingar, sem starfa á
stofnunum sem ekki ná að uppfylla lágmarksfjölda félags-
manna, hafi trúnaðarmann.
Samkvæmt félagaskrá í dag eru starfandi 106 trún-
aðarmenn á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
þar af 74 í Reykjavík og nágrenni.
Hlutverk trúnaðarmanna
Hlutverk trúnaðarmanna er stórt og mikilvægt og nauð-
synlegt að hjúkrunarfræðingar geri sér grein fyrir störfum
þeirra og skyldum. í starfsreglum trúnaðarmanna eru eftir-
talin hlutverk og skyldur tilgreindar:
2.1 Trúnaðarmaður starfi sem tengiliður milli félags-
manna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og forráða-
manna stofnana annars vegar og milli félagsmanna og
stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga/svæðisdeildar
hins vegar.
2.2 Trúnaðarmaður leitist við að eiga góð tengsl við þá
sem hann þarf að eiga samskipti við og stuðli að sáttum
þegar til ágreinings kemur.
4.1 Trúnaðarmanni ber að standa vörð um réttindi og
skyldur félagsmanna.
4.2 Trúnaðarmanni ber skylda til að kynna sér ítarlega
kjarasamning Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Honum
ber að upplýsa félagsmenn um ný og breytt kjaraatriði og
fylgjast með að réttindi og skyldur félagsmanna og
stofnana séu virtar.
4.3 Trúnaðarmanni ber að taka við kvörtunum og fyrir-
spurnum félagsmanna og rannsaka efni þeirra og krefja
vinnuveitanda um lagfæringu ef þess gerist þörf. Kynna
skal stjórn félagsins slík mál.
4.4 Trúnaðarmanni ber að fylgjast með þegar nýir
félagsmenn ráða sig á stofnunina/svæðið og kynna þeim
hver sé þeirra trúnaðarmaður. Einnig skal hann kynna þeim
helstu atriði kjarasamninga og sérstök kjör á stofnuninni.
4.5 Trúnaðarmanni ber að standa fyrir vinnustaðafundi
um sérstök málefni ef viðkomandi svæðisdeild eða einstakir
félagsmenn óska þess. Fundargerðabók skal þá haldin.
4.6 Trúnaðarmanni ber að kynna félagsmönnum stöðu
samningamála þegar tilefni er tii, annast fundarboð, sjá um
atkvæðagreiðslu í félaginu á viðkomandi vinnustað eða
svæði og annast önnur trúnaðarstörf á vegum félagsins
sem stjórn félagsins felur trúnaðarmanni hverju sinni.
161
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000