Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Blaðsíða 40
-HiMð kjúkv'unAv'fv'^ðinMAr
um sameíníngu sjúkrahúsanna?
Eftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir Ragnheiði Alfreðs-
dóttur, deildarstjóra gjörgæslu Landspítala við Hringbraut,
og Ingibjörgu Hauksdóttur, deildarstjóra A-4 í Fossvogi.
1. Hvernig líst þér á sameiningu sjúkrahúsanna?
2. Telur þú að sameiningin muni hafa einhver
áhrif á starf þitt?
3. Telur þú að sameiningin eigi eftir að hafa áhrif
á gæði heilbrigðisþjónustunnar?
4. Telur þú sameininguna leiða af sér aukna
hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins?
Ragnheiður Alfreðsdóttir,
deildarstjóri gjörgæslu
Landspítala við Hringbraut
-4 Mér líst vel á sameiningu sjúkra-
húsanna. Það á þó alveg eftir að
koma í Ijós hvernig sameiningin þróast
og hvaða jákvæðu og neikvæðu þætti
hún á eftir að hafa í för með sér. Ég tel að með
sameiningunni geti orðið faglegur ávinningur en áríðandi að
henni sé fylgt vel eftir, t.d. með því að stefna að því að
byggja eitt sjúkrahús, þ.e. sameina sjúkrahúsin undir einu
þaki. Með því munu sérhæfðar deildir, eins og t.d. gjör-
gæsla nýtast betur, bæði hvað varðar starfsfólk, þekkingu,
reynslu, húsnæði og tæki.
Hvað varðar stjórnun þá vænti ég þess að boðleiðir
verði greiðari og skiivirkari og að pýramídinn fletjist út. Þó á
ég von á að samstarf aukist. Við hér á gjörgæslu Land-
spítala erum til dæmis þegar farin að ræða við starfsfólk
gjörgæslu í Fossvogi um samstarf í fræðslumálum og
símenntun. Ég sé einnig fyrir mér að hjúkrunarfræðingar,
sem hafa áhuga á, geti tímabundið farið í kynningu á aðra
deild og fái með því tilbreytingu í starfi, aukna reynslu og
þekkingu. Auk þess gæti viðkomandi miðlað deild sinni af
nýrri reynslu og þekkingu. Að lokum vænti ég að launamál
skýrist og að framgangskerfið verði réttlátara á milli
sjúkrahúsanna en það tel ég mjög brýnt.
Það er mjög erfitt að sjá nú hvaða áhrif sameiningin
mun hafa. Þó sé ég fyrir mér aukið samstarf, hraðari
164
þróun í fjölmörgum málum, svo sem gæðamálum, sjúkra-
skráningu, nýju vaktaskýrslukerfi o.s.frv. Mörg verkefni
hafa setið á hakanum vegna þess að skortur á starfsfólki
leyfir ekki að þeim sé sinnt. Ef kraftar starfsfólks spítalanna
eru sameinaðir eru meiri líkur á að það geti farið að sinna
fleiru en daglegum verkum. Ég óttast þó að yfirstjórnendur
kunni að fjarlægjast starfsfólkið á gólfinu en það teldi ég
mjög slæmt. Það þarf þó ekki að gerast ef vilji yfirstjórnar
er fyrir því að láta stærð spítalans ekki koma í veg fyrir náin
samskipti milli yfirmanna og undirmanna.
3Ég er jákvæð og vona að fjárveitingar til gæðamála
verði auknar og meiri tíma varið í þau. Aukin sam-
vinna ætti auk þess að bæta gæði heilbrigðisþjónustunnar.
Þetta stjórnast af því hvernig haldið verður á málum og
hver viljinn er. Hins vegar tel ég ekki að spítalinn sé orðinn
það stór að hætta sé á því að gæðin minnki. En þetta er
eitt af því sem tíminn mun leiða í Ijós.
4Eins og ég hef þegar nefnt á ég frekar von á því að
sameiningin stuðli að hagræðingu. Á þessu stigi
málsins er þó eingöngu hægt að spá og spekúlera.
Sameiningu sjúkrahúsanna tel ég vera þátt í því að auka
hagræðingu. Húsnæði spítalans í dag skapar óhagræð-
ingu í rekstri af ýmsum ástæðum, meðal annars þeim sem
ég hef þegar nefnt. Auk þess er þjónustan að breytast og
ástand þeirra sjúklinga, sem nýta sér þjónustuna, er að
breytast og því er nauðsynlegt að starfsemin öll fylgi með.
Ingibjörg Hauksdóttir,
deildarstjóri A-4 í Fossvogi
H Ég hef verið fylgjandi samein-
I ingu sjúkrahúsanna og haft þá
trú að hún komi skjólstæðingum
okkar til góða, en það byggist þó á
því að réttar ákvarðanir verði teknar.
T.d. tel ég það ranga ákvörðun að þyrja á því að sameina
„æðakírúrgíuna”. Réttara hefði verið að taka fyrst ákvarð-
anir um stærri sérgreinar, t.d. bæklunar- og krabbameins-
deildirnar. Annars hefði ég viljað sjá metnaðarfulla fram-
tíðarsýn í sjúkrahúsþjónustu í landinu, t.d. með því að gera
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000