Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 13
VELLÍÐAN FYRIR ALLA –
JÖFNUÐUR OG HEILSA
www.reykjavik.is
Ráðstefna á vegum
Reykjavíkurborgar og
Embættis landlæknis
miðvikudaginn
3. maí 2017 kl.
12.30–16.30,
Tjarnarsalurinn í
Ráðhúsi Reykjavíkur
Dagur B. Eggertsson
Joan Devlin
Dina von Heimburg
DAGSKR Á
12.00 Skráning og afhending gagna
12.30 Opnun og ávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
12.40 Healthy Cities - Connecting for Health
Joan Devlin, Chief Executive of Belfast Healthy Cities
13.20 Hvers vegna hefur ójöfnuður áhrif á líðan?
Ragna Benedikta Garðarsdóttir, dósent í félagssálfræði við Háskóla Íslands
13.35 Heilsa og vellíðan barna
Margrét Lilja Guðmundsdóttir, félagsfræðingur, sérfræðingur hjá
Rannsóknum & greiningu og aðjúnkt á íþróttafræðisviði Háskólans í Reykjavík
13.50 Heilsueflandi samfélag - Vellíðan fyrir alla
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti
landlæknis
14.05 HLÉ - Léttar veitingar
14.20 Velferðarvaktin - Bætt velferð efnalítilla barnafjölskyldna og þeirra
sem búa við sára fátækt
Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar
14.40 TINNA - Velferð reykvískra barna
Þuríður Sigurðardóttir, verkefnisstýra TINNU Reykjavíkurborg
14.55 Heilsugæslan og heilsa borgarbúa
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, sviðsstjóri skólaheilsugæslu, Heilsugæsla
höfuðborgarsvæðisins
15.10 Equity in health and well-being in municipalities - A political choice!
Dina von Heimburg, varaformaður Healthy cities í Noregi
15.30 Lýðheilsustefna Reykjavíkurborgar - Jöfnuður
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
15.50 Pallborð og samantekt
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra,
Katrín Jakobsdóttir alþingiskona, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðstjóri
áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis, Ragna Benedikta
Garðarsdóttir dósent við Háskóla Íslands og Vildís Bergþórsdóttir fagstjóri
hjúkrunar á heilsugæslustöðinni í Efra Breiðholti
Ráðstefnustjóri: Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi
umhverfismál Björt Ólafsdóttir,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
óskaði eftir því á ríkisstjórnarfundi
í gær að ráðuneyti hennar, ásamt
fjármálaráðuneytinu, fengi heimild
til að ganga til viðræðna við fulltrúa
Skútustaðahrepps um mögulega
aðkomu ríkisins að fráveitumálum
sveitarfélagsins. Ríkisstjórnin sam-
þykkti tillöguna.
Málið teygir sig allnokkur ár
aftur í tímann. Mývetningar hafa
farið þess á leit við stjórnvöld að
sveitarfélagið sé styrkt til þess að
gera úrbætur í fráveitumálum – en
án árangurs til þessa. Tilefnið er
bæði nýjar reglur um hreinsun frá-
rennslis en fyrst og síðast áhyggjur
manna af lífríki Mývatns og hugsan-
legt orsakasamengi við mengun af
mannavöldum.
Niðurstaða verkfræðistofunnar
Eflu, sem vann úttekt á fráveitumál-
um sveitarfélagsins, var sú að kostn-
aður sveitarfélagsins væri rúmlega
300 milljónir króna. Í sveitarfélag-
inu öllu búa um 400 manns og velta
þess er í kringum 400 milljónir.
Sveitarstjórnarmenn hafa því fyrir
löngu kynnt yfirvöldum þá niður-
stöðu að sveitarfélagið hefur ekki
bolmagn til að taka verkefni sem
þetta að sér eitt og óstutt.
Það er viðfangsefni viðræðnanna
sem nú hefjast að komast að niður-
stöðu um það hvort, og hversu stór-
an hluta verkefnisins ríkið er tilbúið
að axla.
Óhemju magn blábaktería í
Mývatni árin 2014 og 2015 eru talin
skýr merki ofauðgunar í vatninu af
mannavöldum. Niðurstöður mæl-
inga sýndu þá tólffalt það magn
sem talið er óhóflega mikið í leið-
beiningum Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO).
Blábakteríublómar eru náttúru-
legir í Mývatni vegna þess hve mikið
er af næringarefnum í lindarvatninu
sem rennur í það, og er kallað leir-
los af Mývetningum. Hins vegar
skapaðist það ástand við vatnið
þessi sumur að bakteríurnar yfir-
tóku lífríkið suma daga.
Líkur á því að óhófleg losun nær-
ingarefna í Mývatn hafi með þetta
að gera eru taldar miklar – og þar
komi meðal annars til frárennsli frá
þéttbýli, áburðargjöf og iðnrekstur.
– shá
Ríkið ræðir við Mývetninga um fráveitumál
Mývatn hefur verið á válista Umhverf-
isstofnunar lengi – hreyfing virðist
komin á málið. Fréttablaðið/vilhelM
Bretland Skjáþreyta á mögulega
þátt í aukinni sölu á prentuðum
bókum í Bretlandi, að því er segir á
fréttavef The Guardian. Sala á raf-
bókum minnkaði um 17% í fyrra og
hefur ekki verið minni síðan 2011.
Lesendur virðast hafa snúið sér að
hefðbundnum bókum á ný því að
sala á öllum tegundum prentaðra
bóka jókst um nær 9% í fyrra.
Haft er eftir framkvæmdastjóra
samtaka breskra útgefenda að fólk sé
farið að verða þreytt á öllum skjáum
sem það horfir á alla vikuna. Prent-
aðar bækur séu tilbreyting. – ibs
Skjáþreyta
dregur úr sölu
á rafbókum
lesendur í bretlandi eru orðnir þreyttir
á rafbókum. NOrDiCPhOtOS/GettY
frakkland Jean-Francois Jalkh,
sem átti tímabundið að gegna for-
mennsku í frönsku Þjóðfylkingunni
á meðan á forsetaframboði Marine
Le Pen stendur, þurfti í gær að segja
af sér vegna ásakana um að afneita
helförinni.
Jalkh, sem neitar ásökununum, er
sagður hafa talað með vafasömum
hætti um gasklefa nasista. Greina
franskir fjölmiðlar frá því að Jalkh
hafi dregið í efa að nasistar hafi
notað Zyklon B-gas til þess að myrða
gyðinga og aðra í útrýmingarbúðum.
Þá er hann sagður hafa verk Roberts
Faurisson, sem afneitar helförinni, í
hávegum.
Í samtali við BFMTV í gær tjáði
Le Pen sig um málið. Sagði hún að
þessi „rógburður“ hefði haft djúp-
stæð áhrif á Jalkh.
Steeve Briois, annar varaforseti
flokksins, mun nú taka við stjórn
hans af Jalkh. – þea
Sagður afneita
helförinni
Marine le Pen segir Jalkh hafa þurft
að þola rógburð. Fréttablaðið/ePa
f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 13l a u G a r d a G u r 2 9 . a p r í l 2 0 1 7
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-8
9
2
8
1
C
C
2
-8
7
E
C
1
C
C
2
-8
6
B
0
1
C
C
2
-8
5
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K