Fréttablaðið - 29.04.2017, Qupperneq 36
Þessi árlega hópkeyrsla er orðin eins konar vorhátíð bifhjóla-fólks,“ segir Njáll Gunn-
laugsson, formaður Sniglanna, en
samtökin hafa staðið fyrir slíkum
hópakstri í nærri þrjá áratugi, nán-
ast frá stofnun Sniglanna. Hópurinn
sem mætir hefur þó stækkað mikið
undanfarin ár og nú stefnir í að
um þúsund mótorhjól af öllu tagi
af ýmsum stöðum á landinu fylli
götur borgarinnar á mánudaginn.
„Hópkeyrslan verður með sama
sniði og undanfarin ár. Hjólin
safnast saman á Laugavegi upp úr
klukkan 11 og leggur hópurinn af
stað klukkan 12.30. Ekið er niður
Bankastrætið og Lækjargötu til
vinstri, inn Vonarstrætið og upp
Suðurgötuna. Hringbraut er svo
ekin í vestur og Ánanaustin yfir á
Geirsgötu, fram hjá Hörpu,“ lýsir
Njáll og bendir bifhjólafólki á að
sýna sérstaka aðgæslu, bæði vegna
framkvæmda sem þar standa yfir
sem og hópa ferðamanna sem ekki
viti af viðburðinum. „Hópurinn
þræðir svo Sæbraut að Kringlu-
mýrarbraut þar sem hún beygir inn
á Kirkjusandinn frá Sundlaugar-
vegi,“ segir Njáll en þetta verður í
síðasta sinn sem endastöðin verður
á Kirkjusandi vegna fyrirhugaðra
framkvæmda þar.
Húllumhæ á Kirkjusandi
„Á Kirkjusandi verður skemmtileg
dagskrá. Gestum og gangandi er
boðið að skoða mótorhjólin og svo
verða ýmsar skemmtilegar uppá-
komur. Til dæmis ætlar Pólverjinn
Damien Sarapuk að sýna listir
sínar á götuhjóli og vonir standa
til að nokkrir íslenskir strákar á
klifurmótorhjólum mæti á svæðið.
Sú dagskrá hefst klukkan 13.30.“
Njáll bendir á að þeir sem komi á
bíl geti lagt á malarplaninu næst
Laugarnesvegi. „Bestu staðirnir
fyrir þá sem vilja fylgjast með
hópkeyrslunni eru við Sæbraut og
þá sérstaklega á hljóðmönunum
nálægt Sólfarinu.“
Mikil vinna liggur að baki skipu-
lagningu svo stórs hópaksturs en
Njáll segir um 40 til 50 manns koma
að vinnunni, bæði við undirbúning
og á daginn sjálfan. „Við munum
til dæmis njóta aðstoðar bifhjóla-
klúbbsins Gaflara úr Hafnarfirði við
stjórn akstursins en gæslumenn og
-konur verða á öllum þeim gatna-
mótum þar sem farið er um auk
þess sem hópurinn fær lögreglu-
fylgd.“
Hópaksturinn hefur gengið vel
síðustu ár en Njáll biður ökumenn
þó að sýna bifhjólafólkinu tillitsemi
meðan á akstrinum stendur.
„Auk þess vorum við svo heppin
í ár að hópkeyrslan var tilefni til
gerðar verkefnaáætlunar í vinnu-
hópi nema í verkefnastjórnun hjá
Háskólanum í Reykjavík. Úr var
greinargóð skýrsla og áætlunargerð
sem mun nýtast til frambúðar.“
Vilja breyta umferðarlögum
Hópakstrinum þann 1. maí er fyrst
og fremst ætlað að minna aðra
ökumenn á að bifhjólin séu komin
á göturnar, en einnig til að skerpa
á þeim fjölmörgu baráttumálum
sem samtökin berjast fyrir.
„Sniglar hittu nýskipaðan ráð-
herra samgöngumála, Jón Gunn-
arsson, fyrir nokkrum vikum og
fóru yfir hagsmunamál sín. Á
síðastliðnum árum hafa Sniglar
eytt miklu púðri í að fá drögum að
umferðarlögum breytt til hagsbóta
fyrir bifhjólafólk og náð góðum
árangri í þeim efnum. Þess vegna
er okkur farið að lengja eftir að þau
líti dagsins ljós en ráðherra lofaði
að fari að sjá til sólar í þeim efnum
og að þau verði að öllum líkindum
lögð fram á haustþingi,“ segir Njáll.
Betri tryggingar og breytt
skoðunarhandbók
Tryggingamál hafa lengi verið
bifhjólafólki hugleikin. „Sífellt
er verið að skilgreina skilmála
tryggingarfélaganna, eins og að
bifhjólafólk megi ekki lána hjólin
sín og svo framvegis. Þá þarf engan
að undra þótt við spyrjum hvort
breyta megi öðrum þáttum í trygg-
ingarskilmálum. Sem dæmi má
nefna að margir eiga fleiri en eitt
mótorhjól, og ef viðkomandi má
ekki lána hjólið sitt þarf hann þá
nokkuð að borga slysatryggingu
ökumanns og eiganda nema einu
sinni, en ekki af öllum hjólunum?
Sú trygging er stærsti hluti trygg-
ingariðgjaldsins og skiptir eig-
endur bifhjóla verulegu máli.“
Njáll nefnir einnig endur-
skoðun skoðunarhandbókar fyrir
mótorhjól sem bið hefur orðið á.
„Við lýsum yfir vilja okkar til að
setjast niður með Samgöngustofu
til að klára þessi mál. Má þar nefna
tillögu um minni gerð skráningar-
merkja sem passar betur aftan á
mótorhjólin en þessi stóru merki
sem eru í sömu stærð og á mörgum
bílum í dag.“
Er illa við víravegrið
Sniglar hafa verið í góðu samstarfi
við Vegagerðina á undanförnum
árum og samið meðal annars
handbækur um bifhjólavænt
vegumhverfi og skilað skýrslu um
núllsýn á Þingvallavegi en þar varð
dauðaslys í fyrra þegar ungur bif-
hjólamaður lét lífið eftir árekstur
við vegrið. „Okkur er farið að
lengja eftir áþreifanlegum aðgerð-
um eins og undirakstursvörnum.
Tökum sem dæmi Kambana þar
sem notast er við víravegrið í alltof
þröngum aðstæðum. Bifhjólafólki
er mjög illa við víravegrið þar sem
stólpar þeirra eru mjög illa varðir
og við viljum helst ekki sjá þau á
vegunum. Það er því algjört lág-
mark að notast við undiraksturs-
varnir á stöðum sem þessum að
okkar mati.“
Ekkert prófsvæði
í höfuðborginni
Njáll bendir á að aksturskennslu-
svæði fyrir mótorhjól verði engin á
höfuðborgarsvæðinu þegar Kirkju-
sandur verður lagður af sem próf-
svæði. „Eina skipulagða kennslu- og
prófsvæði fyrir mótorhjól verður
þá á Akureyri. Það finnst okkur að
sjálfsögðu ótækt og nauðsynlegt
að gera úrbætur í þeim efnum með
öryggi próftaka í huga.“
Mörg önnur mál eru í deiglunni
hjá Sniglum, líkt og réttindamál
og hinar svokölluðu gangstéttar-
vespur. „Við viljum hvetja fólk til
að skoða heimasíðuna okkar á
sniglar.is og þar má meðal annars
finna samantekt á baráttumálum
okkar síðustu þrjá áratugina. Besta
leiðin til að styrkja samtökin er
að ganga í þau en á forsíðunni
er umsóknarform. Einnig verða
haldnir vikulegir fundir á miðviku-
dagskvöldum klukkan 20 í félags-
heimili Sniglanna í Skeljanesi, yst í
Skerjafirði.“Leiðin sem hópakstur Sniglanna mun fara þann 1. maí.
Útgefandi:
365 miðlar
Veffang:
Visir.is
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumaður auglýsinga:
Atli Bergmann, atli.bergmann@365.is, s. 512 5457
Njáll Gunnlaugsson, formaður Sniglanna, segir baráttumál bifhjólasamtak-
anna fjölmörg. MyNd/Eyþór
Framhald af forsíðu ➛
Slysum á bifhjólamönnum hefur fjölgað.
Bifhjólamenn héldu fund á fimmtudagskvöld þar sem Einar Magnús Magnússon,
sérfræðingur hjá Samgöngustofu,
lagði fram tölur um slys hjá bif-
hjólamönnum. Þar kom fram að á
síðasta ári jókst fjöldi slasaðra og
látinna bifhjólamanna og er það
um 42% fjölgun á milli ára. Árið
2016 urðu 47 slys á bifhjólamönn-
um en þau voru 33 árið 2015.
Átján manns létust í umferðinni
á síðasta ári og af þeim voru tveir
bifhjólamenn.
Skráðum þungum bifhjólum
hefur fjölgað mikið á undan-
förnum árum. Bifhjólamönnum
sem slasast alvarlega eða látast á
slíkum hjólum hefur fækkað hlut-
fallslega ef tekið er mið af heildar-
fjölgun þeirra sem aka slíkum
hjólum. Í útreikningum Sam-
göngustofu kemur fram að flest
slysin verða í júní, júlí og ágúst. Af
þeim 78 sem slösuðust á léttu bif-
hjóli á árunum 2007-2016 voru 16
sem slösuðust alvarlega eða létust,
það er 21%. Hlutfallið er hærra,
eða 41% þegar kemur að þungum
bifhjólum en samtals slösuðust
626 ökumenn þungra bifhjóla en
259 þeirra slösuðust alvarlega eða
létust.
Á fundinum var brýnt fyrir
ökumönnum bifhjóla að vera vel
útbúnir, sjáanlegir og tillitssamir.
Aftur fjölgun á slysum
hjá bifhjólamönnum
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
MEÐ TUDOR
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
Eitt mesta úrval landsins
af rafgeymum í allar
gerðir farartækja
2 KyNNINGArBLAÐ 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A r dAG U r
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-D
8
2
8
1
C
C
2
-D
6
E
C
1
C
C
2
-D
5
B
0
1
C
C
2
-D
4
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K