Fréttablaðið - 29.04.2017, Qupperneq 48
Við sendum sms
áður en við leggjum
af stað þar sem fram
kemur áætlaður komu-
tími og gps-linkur þar
sem hægt er að fylgjast
með því hvar bíllinn er
staddur hverju sinni.
Það þótti sjálfsagt
að krakkar væru í
vinnu. Tímarnir hafa
breyst og nú er ekkert
pláss fyrir unglinga á
vinnumarkaðnum.
Egill Helgason
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Egill Helgason á góðar minningar frá þeim tíma þegar hann var sendill á hjóli.
Það var algengt þegar Egill var á unglingsaldri að strákar væru að vinna í fyrirtækjum
sem sendlar. Allir voru þeir á reið-
hjólum og ferðuðust um bæinn
þveran og endilangan. „Ég var
sendill hjá Friðrik Brekkan en
hann hannaði og prentaði boli
árið 1973. Þetta voru bolir með
alls kyns myndum, broskörlum og
fleiru. Bolirnir voru aðallega seldir
í Hagkaup í Lækjargötu en Friðrik
var með vinnuaðstöðu í bílskúr í
Blönduhlíð. Ég hjólaði með bolina
á bögglaberanum niður í miðbæ,“
rifjar Egill upp. „Friðrik er leið-
sögumaður í dag, skemmtilegur
karakter. Við vorum tveir strákar
í vinnu hjá honum og hlustuðum
á Jimi Hendrix og Frank Zappa
á meðan við hjálpuðum honum
við prentunina og að sendast.
Svona bolir voru nýjung á þessum
tíma og mjög vinsælir,“ segir Egill
en segja má að Friðrik hafi verið
framúrstefnulegur í bolagerðinni
en alls kyns bolir urðu eftirsóttir á
hippaárunum.
„Einu sinni var ég að flýta mér
mikið á milli staða og þá keyrði
leigubíll á mig á Snorrabraut. Ég
kastaðist af hjólinu en leigubíl-
stjórinn ók mér heim. Um kvöldið
kom bílstjórinn til að athuga með
mig en þá var ég kominn út í fót-
bolta. Það héldu mér engin bönd
á þessum aldri,“ segir Egill sem
slasaðist ekki alvarlega og kippti
sér ekki mikið upp við þessa lífs-
reynslu.
„Ég vann líka á tímabili sem
sendill fyrir tollstjóraembættið.
Í því starfi fólst meðal annars að
fara út í sjoppu fyrir starfsmenn.
Það voru allir sendlar á hjólum
á þessum tíma, unglingsstrákar
sem fóru um borg og bý. Maður
var sendur hingað og þangað í
einhverjum erindum, jafnvel þótt
ekkert væri að gera í fyrirtækinu. Í
minningunni var alltaf gott veður
og þetta var skemmtilegur tími.
Ég átti gult Raleigh-reiðhjól sem
ég notaði í sendlastarfinu. Við
félagarnir vorum allir í vinnu á
sumrin. Ég man eftir einum sem
fékk vinnu á bensínstöð, það þótti
okkur félögunum mjög fínt starf
og öfunduðum hann mikið. Seinna
vann ég við ýmis störf, fiskvinnslu,
í blikksmiðju, byggingarvinnu og
fleira. Það þótti sjálfsagt að krakkar
væru í vinnu. Tímarnir hafa breyst
og nú er ekkert pláss fyrir unglinga
á vinnumarkaðnum. Ef maður
var ekki í vinnu var maður litinn
hornauga, álitinn einhver ræfill,“
upplýsir Egill. Sjálfsagt eiga margir
sem komnir eru yfir miðjan aldur
skemmtilegar minningar frá
sendlatímabilinu.
Með brosboli á
bögglaberanum
Sjónvarpsmaður-
inn Egill Helgason
byrjaði ungur að
vinna. Hann var
aðeins tólf ára
þegar hann starf-
aði sem sendill
á reiðhjóli og fór
um bæinn.
„Hægt er að panta til átta á kvöldin á virkum dögum og fá sent heim samdægurs,“ segir Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson,
eigandi netverslunarinnar Boxins. Mynd/Anton Brink
Það sem aðgreinir okkur frá öðrum netverslunum er sú þjónusta að viðskipta-
vinir okkar geta valið tveggja tíma
afhendingarhólf. Hægt er að panta
til átta á kvöldin á virkum dögum
og fá sent heim samdægurs,“ segir
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson,
eigandi netverslunarinnar Boxins.
„Viðskiptavinurinn veit einnig
alltaf hvenær von er á okkur með
vörurnar. Við sendum sms áður en
við leggjum af stað þar sem fram
kemur áætlaður komutími og gps-
linkur þar sem hægt er að fylgjast
með því hvar bíllinn er staddur
hverju sinni.
Tími er dýrmætur, sérstaklega
hjá fjölskyldufólki. Báðir foreldrar
vinna yfirleitt úti og krakkarnir eru
í tómstundum. Því eru stundir sem
fólk getur átt saman afar dýrmætar
og við viljum ekkert stress. Sam-
kvæmt Meniga fer meðalmann-
eskja 158 sinnum út í búð á ári og
ef við miðum við að hver búðar-
ferð taki um klukkutíma með
akstri til og frá, eyðum við sex og
hálfum sólarhring á ári í búðinni.
Með heimsendingarþjónustu
okkar erum við því að bjóða fólki
upp á tvær vikur aukalega í frí á
ári,“ segir Sigurður.
„Við settum Boxið á laggirnar
í október og höfum byggt hægt
og rólega upp. Boxið er sjálfstæð
Vörur heim innan tveggja tíma
Boxið er ný matvöruverslun á netinu en vefurinn fór í loftið síðasta haust.
Verslunin býður allar helstu nauðsynjavörur til heimilisins sem afgreidd-
ar eru með einungis tveggja tíma fyrirvara, sé þess óskað.
netverslun en flestar vefverslanir
í boði eru í samvinnu við versl-
unarkeðjur. Boxið er því fyrsta
hreinræktaða matvöruverslunin á
netinu. Við kaupum vörur af fram-
leiðendum og birgjum, allt það
helsta fyrir heimilið svo sem kjöt,
kjúkling, fisk, mjólkurvörur, græn-
meti, snyrti- og hreinlætisvörur.
Það er fákeppni á þessum markaði
en við viljum meina að við bjóðum
upp á öðruvísi þjónustu og bjóð-
um upp á samkeppnishæft verð.
Við afhendum vörurnar ferskar og
fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af
því að fá útrunnar vörur eða vörur
á síðasta söludegi frá okkur,“ segir
Sigurður.
„Frá því að við opnuðum höfum
við vaxið stöðugt og þétt. Við
höfum lært í leiðinni og aðlagað
okkur þörfum neytandans. Við
stefnum á enn meiri vöxt.“
4 kynninGArBLAÐ 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A r dAG U r
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-B
F
7
8
1
C
C
2
-B
E
3
C
1
C
C
2
-B
D
0
0
1
C
C
2
-B
B
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K