Fréttablaðið - 29.04.2017, Síða 72

Fréttablaðið - 29.04.2017, Síða 72
 24 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 LAUGARDAGUR Staða skólastjóra við Foldaskóla Skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Foldaskóla. Foldaskóli er elsti hverfisskólinn í Grafarvogi, stofnaður árið 1985. Í skólanum eru um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er safnskóli unglingadeilda í Hamra-, Húsa- og Foldahverfi og er um helmingur nemenda á því skólastigi. Við skólann er starfrækt einhverfudeild og sérstök ráðgjafardeild (fardeild) vegna nemenda með atferlis- og geðraskanir sem þjónar grunnskólunum í Grafarvogi og á Kjalarnesi. Skólinn er Grænfánaskóli og tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi skóli. Einkunnarorð skólans eru siðprýði, menntun og sálarheill. Skólinn vinnur í anda uppeldis til ábyrgðar og Olweusaráætlunar gegn einelti. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og mikið samstarf er við félagsmiðstöðina Fjörgyn og nærsamfélagið. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Meginhlutverk skólastjóra er að: • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. • Stjórnunarhæfileikar. • Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Umsókn fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2017. Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2017. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Guðlaug Sturlaugsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins. Meginmarkmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi. Seðlabankinn skal enn fremur stuðla að fjármálastöðugleika. Þá sinnir Seðlabankinn jafnframt viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðla- banka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, þekkingu, sveigjanleika og jákvæðum sam- skiptum. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is en umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2017. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veita Arnar Freyr Guðmundsson, forstöðumaður upplýsingatækniþjónustu, netfang afg@cb.is, sími 569-9600 eða Íris Guðrún Ragnarsdóttir, starfsmannastjóri, netfang iris.g.ragnarsdottir@sedla- banki.is Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf gagnagrunnsstjóra. Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Gagnagrunnsstjóri Helstu verkefni: • Uppbygging og umsjón með SQL Server umhverfi bankans. • Gagnagrunnshönnun og tæknileg úrlausnarefni. • Aðgangsstýringar og öryggismál. Menntunar- og hæfniskröfur: • Reynsla af uppbyggingu og umsjón með SQL um- hverfum • Þekking og reynsla á tólum tengdum SQL Server • Þekking á viðskiptagreind og uppbyggingu vöruhúsa er kostur • Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi • Færni í mannlegum samskiptum Starfið er í upplýsingatækniþjónustu sem er eining innan rekstrar- og starfsmannasviðs bankans og annast þróun, rekstur og viðhald á tölvukerfi og hugbúnaði bankans. Seðlabankinn leitar eftir starfskrafti með þjónustulund, metnað, frumkvæði, sjálfstæði, ögun í vinnubrögðum og áhuga á að takast á við krefjandi verkefni. Bankinn býður upp á gott starfsumhverfi og góða möguleika á endur- menntun/símenntun. Smiðir óskast Stólpi ehf. er traust og rótgróið fyrirtæki sem býður gott starfsumhverfi og sinnir fjölbreyttum verkefnum. Við leitum að smiðum með reynslu, helst á aldrinum 35-50 ára,til framtíðarstarfa. Einnig kemur til greina að ráða samsett teymi. Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti (fridrik@stolpiehf.is) eða í síma 824 6166 Sæferðir í Stykkishólmi óska eftir skipstjórnarmanni og vélstjórum til starfa. Eftirfarandi stöður í boði: Yfirstýrimaður á Breiðafjarðarferjunni Baldri frá 1.júní til 31.ágúst 2017. Kröfur um réttindi: • Viðkomandi þarf að hafa alþjóðlegt skipstjórnarskírteini: STCW II/2 (Yfirstýrimaður 3000bt og minna) • Gott væri ef viðkomandi hefði lokið Hóp og neyðar- stjórnunar námskeiði • Um er að ræða frekar mikla vinnu þar sem annar Yfir- stýrimaðurinn verður í fæðingarorlofi hluta af tímabilinu. Yfirvélstjóri á Breiðafjarðarferjunni Baldri ein föst staða og ein afleysingarstaða sumar 2017. Kröfur um réttindi: • Viðkomandi þarf að hafa alþjóðlegt vélstjórnarskírteini: STCW II/3 (Yfirvélstjóri 3000kw og minna) Allar umsóknir verða að berast skriflega á póstfangið baldurbru@eimskip.is Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 852-2220 Ferðamálafélag A-Hún auglýsir eftir ferðamálafulltrúa Ferðamálafélag Austur-Húnavatnssýslu auglýsir stöðu ferðamálafulltrúa lausa til umsóknar. Starfssvið: o Í starfinu felst meðal annars: • Umsjón og rekstur upplýsingamiðstöðvar í Austur-Húnavatnssýslu. • Vinna við stefnumótun og markaðssetningu ferðamála á svæðinu í samráði við Ferðamálafélag Austur-Húnavatnssýslu og aðra samstarfsaðila. • Vinna að ferðamálatengdum verkefnum, auk annarra fjölbreytilegra verkefna. o Starfsaðstaða er m.a. í húsnæði Þekkingarsetursins á Blönduósi. o Þess er vænst að væntanlegur Ferðamálafulltrúi búi á starfssvæði Ferðamálafélags Austur Húnavatnssýslu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun og reynsla á sviði ferðamála (háskólapróf kostur) • Reynsla af markaðssetningu æskileg • Reynsla af verkefnastjórn æskileg • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti • Góð tölvukunnátta • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni er mikilvæg • Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Edda Brynleifsdóttir, formaður Ferðamálafélags A-Hún, í s: 862-0474 alla virka daga frá kl.10-16. Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi á netfangið ferdahun@gmail.com. 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C C 3 -0 9 8 8 1 C C 3 -0 8 4 C 1 C C 3 -0 7 1 0 1 C C 3 -0 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.