Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 96
Það var um tíu mínútum eftir að ég frétti af dauða Dans í júlí 1993 að ég ákvað að gera kvikmynd um líf hans og hina listrænu einstaklingana sem
voru með honum,“ þetta segir Kathy
Eldon, blaðamaður, kvikmynda
gerðar maður og stofnandi samtak
anna Creative Visions.
Heimur Kathy hrundi þegar einka
sonur hennar, Dan, sem var einungis
22 ára gamall blaðaljósmyndari var
drepinn í átökum í Sómalíu. Dan var
einn yngsti blaðaljósmyndari sem
fréttaveitan Reuters hefur nokkru
sinni ráðið og hafði áorkað mjög
miklu á sviði góðgerðarmála og sem
listamaður á sinni stuttu ævi.
„Hjarta mitt brast við fráfall Dans.
En ég ákvað að ég þyrfti að umbreyta
reiði minni og sorg í eitthvað jákvætt,“
segir Kathy.
Kathy er mikil ævintýrakona. Hún
fæddist í Bandaríkjunum og flutti
síðar til London og hóf að skrifa
barnabækur þar, færði sig síðar yfir
í bækur fyrir fullorðna og flutti svo
ásamt fjölskyldu sinni til Kenýa á
níunda áratug síðustu aldar. Þar starf
aði hún sem blaðamaður og fjallaði
um aðgerðir til að stuðla að friði í
landinu.
„Þegar Dan sonur minn ákvað að
feta í fótspor mín og verða blaða
ljósmyndari var ég ofboðslega stolt
af honum. Myndirnar hans voru
birtar í tímaritunum Time og News
week og í fjölda dagblaða víðsvegar
um heiminn. Þetta voru myndir sem
sýndu hungursneyð í Sómalíu og síðar
hræðilega borgarastyrjöld.“
Til að vinna úr sorginni þegar Dan
lést hóf Kathy að gera heimildar
myndir um málefni sem voru henni
hugleikin: uppbyggingu friðar, blaða
menn í hættu og félagslegt frum
kvöðlastarf. „Síðan ákvað ég að ef ég
vildi virkilega leggja mitt af mörkum
til að aðstoða fólk við að segja sögur
ætti ég að stofna samtök sem stuðluðu
að því að aðstoða þá sem við köllum
„listræna aðgerðarsinna“. Úr varð
stofnun Creative Visions fyrir tutt
ugu árum, sem Kathy stofnaði ásamt
Amy dóttur sinni, og hafa samtökin
unnið með 300 einstaklingum sem
hafa sagt sögur í gegnum dans, mynd
list, leiklist og kvikmyndir. Sögurnar
hafa allar snúist um að vekja athygli á
einhverjum málstað og ýta undir sam
félagsbreytingu.
Samtímis því að byggja upp sam
tökin tók Kathy saman dagbækurnar
sem Dan skildi eftir og gaf út bókina
The Journey is the Destination: The
Journals of Dan Eldon árið 1998.
Bókin er að koma út í nýrri útgáfu
með nýjum formála rituðum af
Kweku Mandela, barnabarni Nelsons
Mandela.
„Dan var mjög ungur þegar hann
lést og við vitum ekki hvað hann
hefði orðið – hann skildi eftir sig 22
dagbækur um ungt fólk sem var að
uppgötva sig sjálft og kanna mögu
leika sína í heiminum til að setja mark
sitt á hann. Þau töldu að þau gætu
lifað áhrifameira lífi, meira skapandi
og ævintýralegra, og lifað meira fyrir
aðra. Enda þurfum við að vinna með
og fyrir aðra,“ segir Kathy.
Hún segir að útgáfa dagbóka Dans
og útbreiðslan á sögu hans hafi haft
áhrif á marga. „Meðal þeirra er Blake
Mycoskie, stofnandi Toms Shoes sem
gefur eitt par af skóm til barna í neyð
fyrir hvert par sem selt er.“
Kvikmyndin um líf Dans var þó allt
af í huga Kathy. „Ég hófst strax handa
við að reyna að framleiða myndina og
flutti til Hollywood. Ég vildi segja sögu
hans og blaðamannanna sem voru að
vinna með honum. En ég þekkti engan
í Hollywood og þar sem var svo erfitt
að fá fjármagn þá fór ég að vinna að
ýmsu öðru á meðan. Ég byrjaði aftur
og aftur að vinna að myndinni og náði
að koma saman frábæru teymi af fólki.
Þegar Kweku Mandela ákvað að vera
með tókst okkur að fjármagna mynd
ina. Framleiðandinn var Marty Katz
sem framleiddi einnig Hotel Rwanda.“
Loks tókst að framleiða myndina
eftir tuttugu ára bið og er bíómyndin
The Journey is the Destination komin
á iTunes og er að sögn Kathy væntan
leg á Netflix á næstunni. „Við erum svo
að vinna að frekari dreifingu.“
Rauði þráðurinn í bíómyndinni
sem og öllu öðru sem Kathy hefur
unnið að er mikilvægi blaðamanna
og þess að segja góðar sögur. „Ég
byrjaði stuttu eftir andlát Dans að
vinna ásamt öðrum að sýningum og
ráðstefnum um blaðamenn í hættu.
Blaðamenn sem voru nógu hugrakkir
til að deyja fyrir fréttina sína.“
Hún bendir á að enginn vilji deyja
fyrir frétt en margir leggi líf sitt í hættu
til að segja fréttir. Að mati Kathy eiga
blaðaljósmyndarar, og blaðamenn
almennt, mjög erfitt uppdráttar núna
og mikilvægi þeirra hafi sennilega
aldrei verið meira. „Blöð eru ekki
lengur að senda fólk á vettvang eins
og þau gerðu í gamla daga. Á sama
tíma er mjög jákvætt að allir séu með
síma og geti sent myndir. Hins vegar
er það mikilvæga við blaðaljósmynd
ara að þeir eru einmitt blaðamenn og
geta lagt mat á hver fréttin raunveru
lega sé og sagt frá á aðeins hlutlægari
hátt heldur en hver sem er á staðnum.
Þetta er lesandanum til góðs. Blaða
ljósmyndarar eru að deyja út enda
eru þeir ekki að fá nægan stuðning og
blaðamenn sem vinna fyrir blöð með
góðan orðstír eru einnig í vanda núna
þar sem sífellt verður erfiðara að fjár
magna starfsemina.“
Kathy bendir á að þetta hafi leitt til
þess að fjölmiðlar séu nú í auknum
mæli reknir undir stórfyrirtækjum
og erfitt geti verið að meta hagsmuni
þeirra fyrirtækja. „Stjórnun frétta er
mjög óhugnanlegt fyrirbæri,“ segir
Kathy.
Ljóst er að Kathy hefur alltaf beitt
sér fyrir að segja fréttir og að vekja
athygli á mikilvægum málstað en hún
segir að andlát Dans hafi hins vegar
ýtt henni út í það að láta meira að sér
kveða. „Allar fréttir og sögur sem ég
hafði sagt voru mikilvægar en engan
veginn jafn mikilvægar og sagan sem
ég var að fara að segja. Það er mögu
leiki einstaklingsins til að breyta
heiminum í kringum sig og máttur
þess að segja sögur.“
Kathy er stödd á Íslandi meðal
annars til að taka þátt í alþjóðlegu
ráðstefnunni What Works. Kathy
hefur áorkað mörgu og skrifað fjölda
bóka, nú síðast bókina In the Heart of
Life þar sem hún fjallar meðal annars
um fráfall Dans og tók hana 16 ár að
skrifa. En hún segist hvergi nærri vera
hætt.
„Ég held að við getum bjargað heim
inum í kringum okkur, það er með
daglegum aðgerðum þar sem er sýnd
góðvild. Fólk þarf ekki að fljúga til
Sómalíu og stofna góðgerðar samtök
til að láta gott af sér leiða, það er hægt
að byrja í samfélaginu í kringum sig.
Ég er mjög innblásin af Íslandi sem
fordæmi fyrir heiminn um friðsælt
og opið samfélag.“
Hver var
Dan Eldon?
Daniel
Eldon
fæddist
árið 1970
í Englandi.
Foreldrar
hans voru
Bretinn
Michael Eldon og Kathy frá
Bandaríkjunum. Hann átti
eina systur, Amy, fædda
1974. Árið 1977 flytur fjöl-
skyldan til Nairobi í Kenýa.
Hann útskrifast þaðan úr
menntaskóla árið 1987 og
tekur í kjölfarið árspásu frá
skóla.
Hann skipuleggur fyrstu
safaríferð sína frá Kenýa
til Suður-Afríku sumarið
1989. Um haustið hefur
hann háskólanám við
Pasadena City College í
Bandaríkjunum. Hann helst
lítið í skóla enda kominn
með vaxandi áhuga á bæði
ljósmyndun og að láta
gott af sér leiða. Sumarið
1990 leiðir Dan hóp fjórtán
ungmenna á aldrinum
15 til 21 árs frá Kenýa til
flóttamannabúða í Malaví
með 17 þúsund dollara
sem söfnuðust fyrir íbúa
flóttamannabúðanna.
Um jólin 1991 fer hann
til Sómalíu og heimsækir
þar flóttamannabúðir.
Næsta árið er hann einn
yngsti ljósmyndarinn að
fylgjast með þróun mála
í Sómalíu og fer að vinna
fyrir fréttaveituna Reuters.
Í apríl 1993 birtast myndir
hans í Time og Newsweek
og fer hann að skapa sér
orðspor sem blaðaljós-
myndari. Í júlí 1993 er Dan
ásamt þremur öðrum ljós-
myndurum grýttur til bana
af sómölskum mönnum í
Mogadishu.
Kathy Eldon ásamt dóttur sinni Amy og syni sínum Dan. MynD/LisA LEvArt
Dan Eldon á vettvangi sem ljósmyndari í sómalíu. MynD/KAthy ELDon
Blaðaljósmyndarar
mikilvægari en nokkurn sinni fyrr
Dan Eldon, einn yngsti blaðaljósmyndari Reuters-fréttaveitunnar, var drepinn
í Sómalíu árið 1993. Móðir hans er rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður og
hefur haldið minningu Dans á lofti með því að styðja við listamenn til að segja
sögur í gegnum samtök sín Creative Visions í tuttugu ár.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r36 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-B
F
7
8
1
C
C
2
-B
E
3
C
1
C
C
2
-B
D
0
0
1
C
C
2
-B
B
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K