Fréttablaðið - 29.04.2017, Síða 98
Sæbjörg, eða Sæja eins og hún er
gjarnan kölluð, sá mikla mögu-
leika í gamla rýminu. „Húsið er
afskaplega fallegt í „midcentury“-
stíl og því læddist smá Mad Men
fílingur í rýmið með leynihurð og
barskáp. Skáparnir voru komnir
til ára sinna og því þurftu þeir að
fara. Svo vildum við opna betur
inn í borðstofu og þess vegna var
veggurinn rifinn.“
Spurð út í hvort hún hafi fengið
frjálsar hendur í þessu verkefni
segir Sæja: „Eigendurnir voru með
nokkuð skýrar hugmyndir um
hvað þau vildu gera en voru alveg
opin fyrir mínum hugmyndum
líka. Þetta var því góð samvinna.“
Eigendum eldhússins þykir
gaman að halda veislur og bjóða
heim og því vildu þau hafa vínkæli
í eyjunni. „Þá fannst mér „möst“
að hafa barskáp til að geyma fal-
legu glösin og fleira og hann setur
alveg punktinn yfir i-ið í þessu
rými. Barskápurinn er með felli-
hurð sem tekur minna pláss og
getur því verið opinn að vild. Út
í enda, á háu skápunum þar sem
bakaraofnarnir eru, er svo leyni-
hurð niður á neðri hæðina sem
kemur mjög vel út. Í stað þess að
hafa venjulega hurð var ákveðið
að hurðin myndi falla inn í inn-
réttinguna og trufla því ekki
heildarmyndina,“ segir Sæja sem
lagði mikla áherslu á að innrétt-
ingarnar væru bæði praktískar og
smart á sama tíma.
Að sögn Sæju er fólk farið að
sækja í lokaðar innréttingar í
auknum mæli. „Eftir að opin rými
fóru að einkenna heimili meira
hafa lokaðar innréttingar orðið
vinsælli. Að geta lokað á mesta
dótið er mjög gott. Þetta snýst jafn
mikið um praktík og útlit.“
Töff og elegant útkoma
Sæja er ánægð með útkomuna sem
er bæði töff og elegant. „Skipu-
lagið virkar vel og smáatriðin,
eins og barskápurinn með spegil
innst, kemur skemmtilega út.
Veggeiningarnar eru svartbæsuð
eik og eyjan var sprautuð koksgrá
og smíðað af HBH innréttingum.
Ég valdi svo borðplötu út graffite-
marmara til að brjóta þetta aðeins
upp, hún kemur frá Fígaró,“ segir
Sæja svo, spurð út í innréttingar
eldhússins og þessa tilkomumiklu
borðplötu sem prýðir eldhúsið.
Gólefnið tengir eldhúsið og
borðstofuna saman og setur
skemmtilegan svip á rýmið. „Gólfið
í íbúðinni var mjög fallegt í svoköll-
uðu „basket weave“-munstri. Við
ákváðum að halda því en pússa
það upp og bæsa með gráum tón.
Útkoman gæti ekki verið betri.
Til að tengja rýmin tvö enn frekar
saman var ákveðið að setja braut
alveg yfir gluggana upp í loft og
hvítar gardínur í hörstíl voru settar
upp sem gefur rýminu mýkt.“
Sæja er svo sannarlega með eftir-
tektaverðan stíl og áhugasamir
geta kynnt sér verk Sæju nánar á
vef hennar, www. sid.is.
Gjörbreytt eldhús
með áherslu á praktík
Upprunalegt gólfefni var tekið í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐFInnA MAGnúsdóTTIR
Borðplatan sem varð fyrir valinu er út graffite-marmara.
MYnd/GUÐFInnA MAGnúsdóTTIR
spegillinn innst í skápnum setur skemmtilegan svip á
innréttinguna. MYnd/GUÐFInnA MAGnúsdóTTIR
Lokaðar innréttingar eru vinsælar
um þessar mundir að sögn sæju.
svartbæsaða eikin gefur eldhúsinu
svalt yfirbragð.
MYnd/GUÐFInnA MAGnúsdóTTIR
svona leit upprunalegt eldhús út.
Hönnun
Innanhússhönnuðurinn Sæbjörg Guðjónsdóttir tók nýverið í gegn eld-
hús og útkoman er vægast sagt glæsileg. Nýja eldhúsið er gjörólíkt því
upprunalega enda var innréttingunum skipt út og veggir rifnir niður.
Sæbjörg
Guðjónsdóttir
innanhússhönnuður
Guðný
Hrönn
gudnyhronn@365.is
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r38 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-7
F
4
8
1
C
C
2
-7
E
0
C
1
C
C
2
-7
C
D
0
1
C
C
2
-7
B
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K