Fréttablaðið - 29.04.2017, Side 110
LISTASALUR MOSFELLSBÆJAR
Opið fyrir umsóknir vegna sýningarhalds í Listasal Mosfellsbæjar á árinu 2018
Óskað er eftir umsóknum um einka- og samsýningar.
Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í
Bókasafni Mosfellsbæjar og er lánaður
endurgjaldslaust til sýnenda.
Fylgja skulu með myndir af verkum,
ferilskrá og lýsing á fyrirhugaðri sýningu.
Nánari upplýsingar og eyðublöð má finna á
vefsíðu Bókasafns Mosfellsbæjar:
www.bokmos.is/listasalur
eða í síma 566 68 22
Umsóknir skulu vera vandaðar og berast fyrir 6.
júní 2017.
Umsóknir sendist til:
Listasalur Mosfellsbæjar
Kjarna, Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
eða á póstfangið: listasalur@mos.is
einnig er hægt að sækja um rafrænt.
Sæunn Þorsteinsdóttir var aðeins fimm ára gömul þegar hún byrjaði að læra á selló hjá Hauki Hannessyni við Tónlistar-skóla Íslenska Suzukisam-
bandsins. Síðan þá hefur talsvert
vatn runnið til sjávar og Sæunn er
í dag í fremstu röð íslenskra tón-
listarmanna og þó víðar væri leitað.
Á undanförnum árum hefur Sæunn
spilað víða um heim með fjölda
heimsþekktra tónlistarmanna og
hlotið mikið lof gagnrýnenda. Hún
var á meðal þeirra Íslendinga sem
tóku þátt í Reykjavik festival, tón-
listarhátíðinni í Los Angeles, fyrir
skömmu en er nú komin heim til
þess að halda tónleika í Hörpu á
sunnudag ásamt Angelu Draghicescu
píanóleikara.
Sjö ára gömul fluttist Sæunn með
fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna
og hún segir að allt síðan þá hafi
hún í raun verið á ferðinni fram og
til baka á milli þessara tveggja landa.
„Við fluttumst fyrst til Iowa City, en
þar hafa margir Íslendingar verið
í gegnum árin, en síðan þá hef ég
búið í Cleveland, New York og núna
Seattle.“
Ekkert annað
Sæunn segir að hún hafi nú reyndar
ekki alltaf verið þess fullviss að sellóið
ætti eftir að verða hennar ævistarf.
„Nei, ég ætlaði að verða augnlæknir
og var með hinar og þessar pælingar.
En svo þegar ég kom aðeins fram á
táningsárin þá var þetta nú komið
nokkurn veginn á hreint. Ég man
reyndar að mamma, en hún er fiðlu-
leikari og fiðlukennari, var margoft
búin að spyrja mig: Geturðu ekki
gert eitthvað annað?“ segir Sæunn og
hlær við tilhugsunina. „En ég sagði
náttúrulega bara nei. Ég get ekki gert
neitt annað. Þannig var það bara.“
Sæunn segir að það hafi líka verið
henni mikil gæfa hversu frábæra
kennara og gott samverkafólk hún
hefur haft á sínum ferli. „Ég hef verið
alveg rosalega heppin. Mér finnst ég
líka vera alveg sérstaklega heppin að
geta verið að gera það sem ég er að
gera. Það eru ekki margir sem geta
það og fyrir mér eru þetta mikil for-
réttindi sem ég er þakklát fyrir.“
Að gleyma sér
En hvað skyldi það vera við sellóið
sem gerði það að verkum að Sæunn
gat á sínum tíma ekki hugsað sér að
fást við neitt annað? „Það er kannski
bara fyrst og fremst það sem er að
finna í allri lifandi tónlist. Að vera
með öðrum tónlistarmönnum í
þessu andartaki. Að vera lifandi. Að
vera að tjá sig um lífið og fólkið og
allt það sem gefur lífinu gildi. Fyrir
mér er þetta að vera inni í tónlist-
inni og það er engu líkt.“
Sæunn segir að þessi tilfinning sé
Það eru alltaf meiri fiðrildi í mér þegar ég er að spila
hérna heima en það er alltaf miklu skemmtilegra
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari hefur á undanförnum árum komið fram sem einleikari með mörgum af
þekktustu hljómsveitum heims, stofnað kammerhópinn Decoda og er rísandi stjarna í heimi klassískrar
tónlistar. Sæunn er nýkomin heim frá LA en á sunnudaginn kemur hún fram á kammertónleikum í Hörpu.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari er nýkomin frá Bandaríkjunum en á sunnudaginn heldur hún tónleika í Hörpu. FréttABlAðið/Anton Brink
eitthvað sem hún hverfi í raun algjör-
lega inn í. „Já, þegar þetta virkar þá
geri ég það. Maður finnur tilfinning-
una þegar þetta er eins og það á að
vera og maður þjálfar þetta. Þjálfar
bæði hvernig er að vera inni í tónlist-
inni og hvernig er að vera það ekki.
Þetta þarf maður að þjálfa markvisst
til þess að komast inn í tónlistina og
geta gleymt sér í henni.“
komin á kortið
Sæunn er nýkomin frá Los Angeles
þar sem Reykjavik Festival, tónlist-
arhátíð á vegum fílharmóníusveitar
borgarinnar, þar sem íslenskri sam-
tímatónlist af öllum gerðum voru
gerð ákaflega góð skil. Hátíðin
hlaut frábærar viðtökur, bæði hjá
almenningi sem gagnrýnendum
í mörgum af virtustu dagblöðum
Bandaríkjanna. Sæunn segir að
hátíðin hafi verið alveg einstök
upplifun. „Þetta var alveg rosalega
frábært. Alveg æðislegt að sjá alla
þessa Íslendinga og alls konar tón-
listarmenn. Það hefur líka verið að
gaman að lesa alla þessa jákvæðu
umfjöllun í miðlunum úti og ég er
á því að þetta geri gríðarlega mikið
fyrir íslenska tónlist. Í fyrsta lagi er
magnað að þessari hátíð skuli hafi
verið komið á og Daníel Bjarnason
og aðrir sem að því hafa komið eiga
mikinn heiður skilinn. Afrakstur-
inn er líka sá að það er farið að taka
eftir því sem er að gerast í tónlist á
Íslandi. Þetta á stóran þátt í að koma
okkur á kortið.“
Sæunn segir að hún hafi ekki
aðeins haft ánægju af því að spila á
hátíðinni heldur ekki síður að fara
á aðra viðburði. „Ég reyndi svona að
ná helstu tónleikunum enda kem
ég ekki heim það oft. Það er gaman
fyrir mig að heyra svona aðeins
hvað er að gerast. Ég reyni að hlusta
á Sinfóníuhljómsveit Íslands á RÚV
á fimmtudagskvöldum eins og ég get
og það er ljómandi. En þess vegna
var sérstaklega gaman fyrir mig að
fá að heyra alla þessa íslensku tón-
list í íslenskum flutningi.“
Alltaf sérstakt
Á sunnudaginn verður Sæunn með
tónleika í röðinni Sígildir sunnu-
dagar í Norðurljósum Hörpu ásamt
Angelu Draghicescu píanóleikara.
Sæunn segir að óneitanlega verði
þessir tónleikar gjörólíkir því sem
hún hafi verið að gera í Los Angeles
fyrir skömmu. „Þetta er aðeins öðru-
vísi en í LA þar sem ég var að spila
nýjan sellókonsert eftir Pál Ragnar
Pálsson. Að þessu sinni eru þetta
hefðbundnari tónleikar, selló og
píanó, með Beethoven og förum
svo meira inn í bæði ameríska tón-
list með verki eftir William Bol-
com sem við höfum báðar verið að
vinna með í Bandaríkjunum en við
spiluðum þetta einmitt í Carnegy
Hall. Svo erum við með verk bæði
frá Rúmeníu og Íslandi, Jón Nordal
og svona hitt og þetta skemmtilegt.“
Sæunn er spennt fyrir tónleikun-
um og segir að það sé alltaf gaman
að koma heim og spila. „Já, þetta
er alltaf heim og þetta er alltaf sér-
stakt. Það er aldrei eins og að spila
einhvers staðar annars staðar. Það
eru alltaf aðeins fleiri fiðrildi í mér
þegar ég er að fara að spila hérna
heima en á sama tíma er það alltaf
miklu skemmtilegra.“
MAður finnur
tiLfinningunA
ÞegAr ÞettA er einS og
ÞAð á Að verA og MAður
ÞjáLfAr ÞettA. ÞjáLfAr
bæði Hvernig er Að verA
inni í tónLiStinni og
Hvernig er Að verA ÞAð
ekki. ÞettA ÞArf MAður
Að ÞjáLfA MArkviSSt tiL
ÞeSS Að koMASt inn í
tónLiStinA og getA
gLeyMt Sér í Henni.
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r50 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-8
E
1
8
1
C
C
2
-8
C
D
C
1
C
C
2
-8
B
A
0
1
C
C
2
-8
A
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K