Fréttablaðið - 25.11.2017, Side 8

Fréttablaðið - 25.11.2017, Side 8
Náttúra „Þótt merki um gosóróa hafi ekki sést á jarðskjálftamælum verður að telja yfirgnæfandi líkur á því að eldsumbrot séu farin af stað í Öræfajökli sem hafi þrýst súrri og seigfljótandi líparítkviku upp undir yfirborð bergsins undir öskjunni, svona svipað og þegar tannkrem er kreist úr túpu,“ segir Ólafur G. Flóvenz, forstjóri Íslenskra orku- rannsókna. Ólafur telur kvikuhreyfingarnar vera mjög grunnt í fjallinu og þær geti brotist upp á yfirborðið hvenær sem er. Hann byggir þessa niður- stöðu sína á því að ekki hafi verið nein jarðhitavirkni þekkt í jöklinum. „Allar líkur benda til þess að kviku- uppsprettur í þessu stóra eldfjalli séu mjög djúpar og þess vegna verði ekki til venjuleg háhitakerfi þar. Þegar það svo gerist núna að það verður allt í einu til öflugt háhitakerfi að þá getur það ekki gerst nema að það sé kominn orkugjafi mjög grunnt. Þar af leiðandi dreg ég þá ályktun að það hafi kvika komist mjög nálægt yfirborði,“ segir Ólafur. Hann segist þó ekkert fullyrða um það hvort eða hvenær kvikan nái upp á yfirborðið, en hún sé komin nálægt því. Ármann Höskuldsson, eldfjalla- fræðingur hjá Jarðvísindastofnun HÍ, segir alla fræðimenn vera sam- mála um að jarðhitinn á svæðinu geti ekki verið af neinum öðrum ástæðum en að kvika sé að hreyfa sig. Hins vegar sé ekki vitað enn hversu djúpt hún liggur. „Nú þarf bara að klára að koma upp mælum og fá nógu góðar gervihnattamyndir upp á þessa aflögun. Ármann segir rannsóknir á fjallinu vera mjög erf- iðar í framkvæmd. „Það er sjór fyrir sunnan og jökull fyrir norðan og svo er þetta bara fjall sem nær 2.000 metra upp í loftið.“ Ármann segir menn ekki geta gert ráð fyrir nýjum tíðindum á hverjum degi. „Þetta er ekki þannig að hlut- irnir séu að gerast frá degi til dags. Svo kannski eftir tíu daga erum við komin með meira af gögnum, sjáum eitthvað meira eða að það breytist eitthvað meir.“ jonhakon@frettabladid.is HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Straumhvörf Audi A3 e-tron sameinar tvo heima Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron hefur átt mikilli velgengni að fagna. Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP. 50 kílómetra drægni á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar er samanlögð heildardrægni allt að 940 km. Verð frá 4.270.000 kr. Telur að kvikan sé grunnt undir yfirborði fjallsins Súr og seigfljótandi kvika er komin upp undir yfirborð bergsins undir öskju Öræfajökuls, telur forstjóri Íslenskra orkurannsókna. Gæti komið á yfirborðið hvenær sem er. Sérfræðingur hjá Jarðvísindastofnun segir unnið að því að koma upp mælum og fá betri gervihnattamyndir en að rannsóknir séu erfiðar í framkvæmd. Ármann Höskuldsson eld- fjallafræðingur. Heimild: Jökulhlaup í Öræfum og Markarfljóti vegna eldgosa undir jökli.  Jarðvísindastofnun Háskólans, Veðurstofa Íslands, Ríkislögreglustjóri, 2016 askjan og mögulegar gossprungur í Öræfajökli Samfélag Stofnfundur Vestfjarða- stofu verður haldinn 1. desember næstkomandi og mun hún taka til starfa strax í kjölfarið. Pétur G. Markan, formaður Fjórðungssam- bands Vestfirðinga, segir þetta afar viðeigandi dagsetningu og að lands- menn muni verða mikið varir við þetta nýja fyrirbæri. „Vestfjarðastofa er verkefnafyrir- bæri sem ég hóf að vinna að ásamt góðu fólki fyrir um það bil tveimur árum. Þetta verkefni skeytir saman Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfjarða sem gerir það að verkum að atvinnu- þróunarverkefni og byggðaþróunar- verkefni færast undir sama hatt. Við þessa breytingu verður meira flæði, meiri dýnamík og meiri nálgun allra starfsmanna að ólíkum verkefnum.“ – aig Draumalið fyrir Vestfirði í mótun Samfélag Báðar stúlkurnar tvær sem fundust meðvitundarlausar í miðbæ Reykjavíkur á fimmtudags- kvöld eru komnar til meðvitundar. Stúlkurnar eru fimmtán ára gamlar. Hefur önnur þeirra þegar verið flutt á barnadeild Landspítalans.  Guðmundur Páll Jónsson, lög- reglufulltrúi hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu, segir að grunur leiki á um að stúlkurnar hafi innbyrt fíkniefnið MDMA. – sks Stúlkurnar tvær tóku líklega inn dópið MDMA 2 5 . N ó v e m b e r 2 0 1 7 l a U g a r D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 1 1 2 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 3 -3 F E 4 1 E 5 3 -3 E A 8 1 E 5 3 -3 D 6 C 1 E 5 3 -3 C 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.