Fréttablaðið - 25.11.2017, Qupperneq 99
Bækur
Er ekki allt í lagi með þig?
HHHHH
Höfundur: Elísa Jóhannsdóttir
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Prentun: Bookwell Digital Oy, Finn-
landi
Síðufjöldi: 315
Kápuhönnun: Alexandrea Buhl
Er ekki allt í lagi með þig? er glæný
raunsæ unglingabók og frumraun
höfundarins, Elísu Jóhannsdóttur,
en fyrir bókina hlaut hún Íslensku
barnabókaverðlaunin nú í ár.
Sagan gerist að mestu í ótilgreind-
um smábæ úti á landi og fjallar
örlítið um skin en aðallega skúrir í
lífi nokkurra unglingsstúlkna sem
þar búa. Athyglin beinist að einelti,
vináttu og vinslitum og það hvern-
ig við komum fram við fólkið í
kringum okkur. Aðalsöguhetjurnar
eru tvær stúlkur, aðkomustúlkan
Ragnheiður og Hekla, vinsælasta
telpan í bænum. Þær verða góðar
vinkonur stuttu eftir að Ragnheið-
ur flytur í bæinn en um leið og fer
að hausta og skólinn byrjar fer að
síga á ógæfuhliðina. Það kemur til
árekstra innan vinkvennahópsins
auk þess sem það kemur til átaka
við aðra krakka í bænum og stelp-
urnar blandast inn í rifrildi sem
tengjast þeim sjálfum óbeint.
Sagan er sögð ýmist frá sjónarhóli
Ragnheiðar eða Heklu og þannig
öðlast lesandinn tvöfalda innsýn í
söguna og kemst að leyndar málum
sem þær
sjálfar telja
a ð þ o l i
ekki birtu
dagsljóss-
ins. Með
þessu móti
f l a k k a r
samkennd
l e s a n d a
sífellt á
milli að
m i n n s t a
k o s t i
t v e g g j a
persóna.
Þetta stíl-
b r a g ð
t e k s t
ágætlega og viðbrögð söguper-
sóna við því sem aðrir segja og
gera eru skiljanlegri í ljósi þeirra
vandamála sem þær sjálfar standa
frammi fyrir.
Fremst í bókinni kemur fram
að höfundur hafi skrifað bókina
gagngert vegna vöntunar á sögu
þar sem fjallað er um gerendur
eineltis og „skoðað hvað þurfi að
gera til að einelti nái að grassera“.
Þetta er göfugt markmið og alsiða
að barnabækur hafi það að mark-
miði að fræða unga lesendur og
kenna þeim betri siði. Oft er upp-
eldisfræðilegt gildi barna- og ungl-
ingabóka þó stundum á kostnað
listrænna markmiða og er það
raunin með Er ekki allt í lagi með
þig? Vandamálin sem um er fjallað
eru afspyrnu mörg og ekki nógu vel
unnið úr nærri öllum. Þetta á til að
mynda við um annars vegar sam-
skipti Ragnheiðar við móður sína
og hins vegar samskipti Heklu og
foreldra hennar. Sömuleiðis er
strákastússið á stelpunum fremur
ósannfærandi og hefði jafnvel
farið betur að sleppa þeim hluta
sögunnar. Viðfangsefnið er þó
vissulega áhugavert og talar beint
til hins ætlaða lesendahóps – ungl-
inganna – og fróðlegt er að fá bæði
að fylgjast með fórnarlömbum ein-
eltis og gerendum. Sterkasti boð-
skapur bókarinnar, og sá sem skýr-
ast kemur fram, er að dæma ekki
aðra fyrirfram sem og að sökin er
sjaldnast alfarið hjá einum aðila en
um leið þurfum við að læra að axla
ábyrgð á gjörðum okkar og biðjast
afsökunar þegar þess er þörf.
Helga Birgisdóttir
Niðurstaða: Áhugavert efni sem
ekki er unnið nógu vel úr.
Betur má ef duga skal
Ljóðaslamm er það kallað þegar skáld etja saman ljóðum sínum í keppni um hylli áhorfenda,
en tilþrifin við lesturinn eru mikil-
fengleg og margs konar. Í kvöld fer
fram ljóðaslamm í Iðnó undir yfir-
skriftinni Tjarnarslamm og er Ólöf
Rún Benediktsdóttir skipuleggjandi
viðburðarins ásamt Jóni Magnússyni
en bæði eru þau þaulreyndir slamm-
arar.
Ólöf Rún segir að þau hafi farið af
stað eftir að hafa tekið þátt í verkefni
hjá Bókmenntaborginni. „Í fram-
haldinu fórum við út til Þýskalands,
Póllands, Eistlands og Danmerkur og
hittum ljóðaslammara og fengum að
kynnast því hvernig þau skipulögðu
ljóðaslamm. Þegar við komum heim
ræddum við einnig við Borgarbóka-
safnið en þau hafa verið mjög dugleg
að skipuleggja svona uppákomur og
við erum í samstarfi við þau núna.
Vonandi verðum við svo með fleiri
ljóðaslömm á næstunni.
Við héldum nokkur óformleg
ljóðaslömm í sumar á Rosenberg og
það verða slammarar úr þeim hópi
sem verða á sviðinu í Iðnó. Allt færir
textasmiðir og flytjendur og svo eru
líka skáld inn á milli sem við erum að
draga inn og vonandi fá fleiri áhuga
á þessu formi og flutningi.“ Það eru
þau Andrea Francis Kemp, Brynjar
Jóhannesson, Davíð Þór, Davíð
Tómas, Hannah Jane, Irene og Óli
Hrafn Jónasson, einnig þekktur sem
Holy Hrafn, sem munu lesa listir
sínar að þessu sinni. Dagskráin hefst
kl. 19 og er aðgangur ókeypis. – mg
Erum að draga fleiri skáld í slammið
Ólöf Rún Benediktsdóttir er annar
skipuleggjenda viðburðarins og sjálf
reyndur ljóðaslammari.
það verða slamm-
arar úr þeim hópi
sem verða á sviðinu í iðnó.
Borgarbókasafn menningarhús
Reykjavik City Library
Gerðubergi Sólheimum
Grófinni Spönginni
Kringlunni
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Reykjavik City Museum
Árbæjarsafn
Landnámssýningin
Sjóminjasafnið í Reykjavík
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Viðey
Listasafn Reykjavíkur
Reykjavik Art Museum
Hafnarhús
Kjarvalsstaðir
Ásmundarsafn
Jöklakerti eftir Brynjar Sigurðsson
LISTILEGAR
GJAFAHUGMYNDIR
• SAFN- OG SÝNINGARTENGDAR VÖRUR
• ÍSLENSK HÖNNUN OG HANDVERK
• ERLEND GJAFAVARA
• BÆKUR, KORT OG VEGGSPJÖLD
m E N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 51L a u g a r D a g u r 2 5 . N ó v E m B E r 2 0 1 7
2
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
3
-1
3
7
4
1
E
5
3
-1
2
3
8
1
E
5
3
-1
0
F
C
1
E
5
3
-0
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K