Morgunblaðið - 10.06.2017, Síða 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Norska skákmótið semhófst með pompi ogpragt í Stafangri í byrj-un vikunnar dregur til
sín tíu af tólf stigahæstu skákmönn-
um heims. Þegar það var upp-
haflega kynnt lögðu skipuleggj-
endur þess og stærsti styrktaraðili,
norska fyrirtækið Altibox, áherslu á
að ná saman öllum á topp tíu lista
FIDE. Smávægilegar breytingar á
elo-listanum sem birtur var í byrjun
maí sl. og eru þær helstar að Aser-
inn Mamedyarov hefur skotist upp í
í 5. sæti og Kínverjinn Liren Ding
situr í því tíunda. En það skiptir
Norðmenn litlu máli; þeir eru hvort
eð er allir að fylgjast með heims-
meistaranum Magnúsi Carlsen sem
þessa dagana skartar nýjum gler-
augum, nýrri hárgreiðslu og hefur
eignast kærustu, hina 22 ár gömlu
Synn Christin Larsen.
Mótshaldið hófst á mánudaginn
með hraðskákmóti keppendanna en
fimm efstu sætin þar tryggðu fleiri
skákir með hvítu í aðalmótinu.
Magnús var baneitraður og vann
með yfirburðum, hlaut 7 ½ vinning
af níu mögulegum en í 2. – 3. sæti
komu Nakamura og Aronjan með 5
½ v. hvor, Vachier-Lagrave varð
fjórði með 5 vinninga og Kramnik
náði 5. sæti á stigum.
Hressileg barátta í hraðskákinni
hefur svo vikið fyrir yfrið varfærn-
islegri taflmennsku á aðalmótinu; í
fyrstu þrem umferðunum hefur 13
skákum af 15 lokið með jafntefli.
Nakamura og Kramnik eru efstir
með 2 vinninga, síðan koma Magn-
ús, So, Aronjan, Vachier-Lagrave,
Caruana og Karjakin með 1 ½ vinn-
ing en lestina reka Anand og Giri
með 1 vinning.
Enn á Magnús eftir að vinna skák
og hefur gert jafntefli við So, Ca-
ruana og Nakamura. Sá síðastnefndi
hóf keppnina með því að vinna An-
ish Giri sem sjaldan tapar en vendi-
punkturinn kom í þessari stöðu:
Nakamura – Giri
Hollendingurinn hafði verið í
varnarstöðu lengi og biskupinn virt-
ist ofjarl riddarans en samt lék
Naka…
48. Bxd7! Hxd7+ 49. Ke5 Kf7 50.
Hb8!
Svartur ræðst inn á b7 og a7-
peðið fellur. Eftirleikurinn er auð-
veldur.
50. … He7+ 51. Kd5 Kf6 52. Hb7
He5+ 53. Kd4 Ha5 54. Hxa7 f4 55.
Kc4 Ha2 56. Kc5 h5 57. Ha8 Hc2 58.
Kb6 Hb2+ 59. Kc5 Hc2+ 60. Kb6
Hb2+ 61. Ka7 Hxg2 62. Hb8 Hf2 63.
Hb6+ Kg7 64. Kb7 Hxf3 65. a7 Ha3
66. Ha6 Hb3+ 67. Kc6
- og Giri gafst upp.
Nakamura dregur enga dul á þá
fyrirætlan sína að ná heimsmeist-
aratitlinum úr hendi Magnúsar en
árangur hans gegn Norðmanninum
er slakur. En þegar á hólminn er
komið þurfa fyrri viðureignir ekki
að skipta neinu máli. Góðir fræði-
menn voru fljótur að benda á nokk-
urn skyldleika við einn frægasta leik
Fischers frá lokaeinvígi áskor-
endakeppninnar árið 1971 og hefur
stundum verið tekinn sem dæmi um
það hvernig koma má betri stöðu í
verð með óvæntum uppskiptum:
Buenos Aires 1971; 7. einvíg-
isskák:
Fischer – Petrosjan
Það hafði margt fróðlegt gerst áð-
ur en þessi staða kom upp. Ridd-
arinn á c5 er greinilega mikill
stólpagripur en án þess a depla auga
lék Fischer … ..
22. Rxd7+! Hxd7 23. Hc1 Hd6 24.
Hc7 Rd7 25. He2 g6 26. Kf2 h5 27.
f4 h4?
Petrosjan hefði betur sleppt þess-
um leik en staðan var erfið.
28. Kf3 f5 29. Ke3 d4+ 30. Kd2
Rb6 31. Hee7 Rd5 32. Hf7+ Ke8 33.
Hb7 Rxb4 34. Bc4!
Það fór vel á því að uppáhalds-
biskup Fischers ætti síðasta orðið.
Petrosjan gafst upp.
Hárgreiðsla heims-
meistarans, gleraug-
un og kærastan
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Einbeittur Magnús Carlsen að tafli í Stafangri.
Bílar
Árið 2004 hafði ég
eftir góða endurhæf-
ingu í Klúbbnum
Geysi fengið starf í
gegnum klúbbinn hjá
Íslandsbanka, svo-
kallað RTR-starf.
Eftir svo sumarstarf í
bankanum lá leiðin í
Fjölbraut í Ármúla
þar sem ég kláraði
stúdentinn 2008. Mér
fannst ég ótrúlega
ungur skyndilega
miðað við hve það að flosna upp úr
framhaldskóla hafði setið þungt í
mér. Á þessum tímapunkti kom
aldrei til greina að snúa aftur í
Klúbbinn Geysi þó ég væri í góðu
sambandi. Háskólaárin hins vegar
reyndust alger martröð og gaf ég
drauminn upp á bátinn snemma
árs 2014.
Árið 2013 fór ég fyrst á end-
urhæfingardeild LSH á Kleppi.
Eftir endurhæfingu, ströggl og
baráttu ákvað ég loks að snúa aft-
ur í Klúbbinn Geysi í ársbyrjun
2016. Klúbburinn Geysir var eina
úrræðið sem kom til
greina en mig óraði
ekki fyrir því hve
skemmtilegt og ár-
angursríkt það yrði.
Ég tók virkan þátt í
starfi klúbbsins. Ég
skrifaði skjáfréttir,
útbjó og stjórnaði
þáttum fyrir Útvarp
Geysi, og kom á fót
námskeiðum um
knattspyrnu og sögu.
Meðal góðra manna
sem komu í útvarpið
voru Bjarni Fel. og
Arnar Gunnlaugsson, meiriháttar
upplifun og reynsla að eiga viðtal
við þessar goðsagnir.
Í Klúbbnum Geysi ríkir mann-
auðsstefna þar sem horft er á
styrkleika hvers og eins. Enginn
tekur að sé verkefni sem hann er
ekki tilbúinn að taka að sér á eig-
in forsendum. Í því tilliti eru fé-
lagar eigin herrar í Klúbbnum
Geysi.
Ég hef fengið gríðarlega mikið
út úr námi sem ég hef átt kost á
að stunda á háskólasviði. Þar er
meðal annars lögfræði, sagnfræði
og markaðshagfræði í Danmörku.
Auk þess sem ég var tvö sumur í
tungumálaskóla í Bretlandi. Í
skóla hef ég lært og öðlast þekk-
ingu, þrátt fyrir að hafa ekki út-
skrifast. Svo lengi lærir sem lifir.
Maðurinn finnur alltaf sjálfan sig
á endanum og vinnur við það sem
hugur hans stendur til. Þá veit ég
ennfremur að Klúbburinn Geysir
verður alltaf til staðar hvenær
sem ég þarf á honum að halda.
Í dag, laugardaginn 10. júní, er
Geysisdagurinn haldinn í 6. sinn.
Þennan dag komum við saman og
eflum karnivalstemningu í Skip-
holti 29. Tónlist, flóamarkaður,
pizzuveisla og óvæntar uppá-
komur. Allir velkomnir.
Dyr opnast
Eftir Kára Ragnars »Maðurinn finnur
alltaf sjálfan sig á
endanum og vinnur
við það sem hugur
hans stendur til.
Kári
Ragnars
Höfundur er félagi í Klúbbnum Geysi.
kgeysir@kgeysir.is
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda. Morg-
unblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar
smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda
inn grein“ er valinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
STÆRÐ FRÁ 360-550 L
FARANGURSBOX
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Baðaðu þig í gæðunum
Vandaðar vörur, gott verð og fjölbreytt úrval
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15