Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Side 8
8 20. apríl 2018fréttir - viðtal
„TvíeflisT
við allT
móTlæTi“
Sveinbjörg Birna leiðir nýjan lista í Reykjavík
S
veinbjörg Birna Svein-
björnsdóttir, sem setið
hefur sem óháður borgar-
fulltrúi eftir að hún hætti
í Framsókn og flugvallarvinum,
hefur ákveðið að bjóða sig fram
undir nýjum merkjum fyrir kom-
andi borgarstjórnarkosningar.
Það yrði þá fimmtánda framboð-
ið í borginni, en framboðið hefur
ekki enn hlotið nafn.
„Það voru uppi ákveðn-
ar vangaveltur með nafnið. Það
komu auðvitað hugmyndir um
Óháðir og flugvallarvinir sem
mér fannst frekar klént,“ seg-
ir Sveinbjörg og hlær. „Stung-
ið var upp á Reykjavík er okkar.
Ég hafði samband við MC Gauta
út af því og hann var frekar ef-
ins með það, sem ég skil nú al-
veg. En þetta skýrist allt á næstu
dögum, Borgin okkar, Reykjavík,
kemur vel til greina,“ segir Svein-
björg sem mun kynna frambjóð-
endurna í fyrstu 10–15 sætunum
í næstu viku.
Fjöldi framboðstilboða
Sveinbjörg segist ekki hafa leit-
að sjálf til annarra framboða,
en þó hafi Frelsisflokkurinn, Ís-
lenska þjóðfylkingin og aðrir
haft samband við hana að fyrra
bragði: „Sjálf leitaðist ég ekki eft-
ir framboði hjá neinum öðrum
flokki, nei. En það höfðu margir
samband við mig, þar á meðal
Flokkur fólksins og fleiri flokk-
ar. Forystumenn innan Fram-
sóknarflokksins spurðu hvort
ég vildi ganga aftur í flokkinn.
Þá höfðu menn í Sjálfstæðis-
flokknum samband við mig, en
mér sýnist að þeir muni ekki ná
því flugi sem þeir vonuðust eft-
ir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
horfið frá sinni gömlu stefnu og
slagorði, „Stétt með stétt“. Svein-
björg segir hið nýja framboð vera
íhaldssamt hægri framboð: „Ég
myndi staðsetja það til hægri,
já. Ég styð einstaklingsframtak-
ið og vil að fólk fái að njóta þeirr-
ar uppskeru sem það sáir. En
að sama skapi vil ég öflugt kerfi
sem grípur þá er minna mega
sín. Ég vil hins vegar ekki algera
einkavæðingu í heilbrigðis- og
skólakerfinu, heldur vil ég geta
átt val þar um.“
Háleit markmið
„Ég geri mér vonir um að ná inn
þremur mönnum. Munurinn á
þessu framboði og því síðasta
hjá mér er að nú get ég lagt alla
þá vinnu sem ég hef unnið síð-
astliðin fjögur ár í dóm kjósenda.
Það er nefnilega alveg ljóst hverj-
ir hafa haldið uppi gagnrýni á
meirihlutann í borginni á þessu
kjörtímabili, það er ég og Guð-
finna Jóhanna. Það hafa Sjálf-
stæðismenn ekki gert, svo mikið
er víst. Þeir fóru strax undir pils-
faldinn hjá Degi borgarstjóra um
leið og hann lofaði að styðja Hall-
dór Halldórsson til formennsku
í Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga. Enda vorum við ekki tilbúin
að gera samkomulag með þeim í
upphafi síðasta kjörtímabils um
að veita meirihlutanum and-
stöðu.“
Nýjar lausnir í samgöngumálum
Sveinbjörg segist brenna fyrir
fjölmörgum málum sem þurfi að
taka á í borginni: „Ef ég væri að
sækjast eftir þægilegri innivinnu
hefði ég ekki sagt mig úr Fram-
sóknarflokknum því með því að
vera óháður borgarfulltrúi lækk-
uðu laun mín úr rúmlega 900 þús-
undum á mánuði í 380 þúsund.
Mér fannst ég hins vegar skulda
mínum kjósendum að bjóða mig
fram aftur, enda mörg mál sem ég
brenn fyrir í borginni.“ En hvaða
mál skyldu það vera? „Ábyrg fjár-
málastjórn, markviss sýn í skóla-
og húsnæðismálum, raunhæf-
ar lausnir í samgöngumálum
og standa vörð um flugvöllinn.
Ég vil hefja samtal við stærstu
vinnustaðina, t.d. um að breyta
vaktafyrirkomulagi Landspítal-
ans og upphafi kennslutíma Há-
skóla Íslands, til að dreifa um-
ferðarálaginu betur. Samkvæmt
flæðisgreiningum myndi nú-
verandi gatnakerfi standa und-
ir sér næstu 10–15 árin ef ráðist
yrði í slíkar breytingar og á með-
an gætum við greitt niður skuldir
og safnað í sjóði til að hugmyndir
eins og Borgarlína og Miklabraut
í stokk séu raunhæfari.“
Umdeild hitamál
Sveinbjörg hefur vakið athygli
fyrir ýmis umdeild mál sem
hafa klofið þjóðina. Að undan-
förnu hefur hún barist fyrir því
að nemendum verði bannað að
vera með snjallsíma í skólastof-
um sem er þó frekar léttvægt
þegar moskumálið og ummæli
hennar um að Reykjavíkurborg
sæti uppi með „sokkinn kostnað“
vegna barna hælisleitenda sem
kæmu inn í skólakerfið í stuttan
tíma, eru höfð til hliðsjónar. Hún
segir ummæli sín um „sokkinn
kostnað“ hafa verið mistúlkuð
á alla vegu: „Það sem ég átti við
var að sveitarfélögin fengju ekki
fjármagn frá ríkinu til að greiða
fyrir skólagöngu barna hælisleit-
enda ólíkt því sem á við um hús-
næðiskostnað, dagpeninga og
strætókort, sem ríkið endur-
greiðir sveitarfélögunum. Allt
nema kostnaðinn við skólakerf-
ið. Það er það sem ég gagnrýndi.
Gagnrýni mín leiddi til þess að í
janúar samþykkti skóla- og frí-
stundasvið Reykjavíkurborgar að
hefja samtal við ríkið um þetta
og er þetta komið inn í stefnuna
hjá þeim sem samþykkt var um
daginn.“ Aðspurð út í moskumál-
ið segir Sveinbjörg: „Ég er enn
þeirrar skoðunar að sveitarfé-
lög eigi ekki að gefa lóðir til trú-
félaga, en lögum samkvæmt eiga
þau aðeins að gefa lóðir undir
kirkjur þjóðkirkjunnar. Ég tel að
það eigi að afturkalla lóðarút-
hlutunina, sérstaklega þegar litið
er til þess að engar framkvæmd-
ir eru hafnar á lóðinni, þrátt fyrir
að liðin séu fimm ár frá því henni
var úthlutað.“
Segist höfða til breiðs hóps
„Það er búið að manna nán-
ast allan listann. Þetta er auðvit-
að heilmikil vinna og 90% þeirra
sem ég hef talað við hafa sagt
þetta óvinnandi verk, en ég tví-
eflist við allt mótlæti,“ segir Svein-
björg. En til hverra höfðar Svein-
björg, hverjir eru það sem munu
kjósa hana? „Ég tel mig höfða til
breiðs hóps fólks sem vill skyn-
sama rödd í borgarstjórn. Ég
höfða til hóps Framsóknar- og
Sjálfstæðismanna sem sveiflast
á milli flokka, einnig hægri-krata
sem finna sér ekki farveg í Sam-
fylkingunni og eru kenndir við
arm Jóns Baldvins. Þá finnst mér
ég einnig fá meðbyr frá framsýnu
ungu fólki,“ segir Sveinbjörg að
lokum. n
Trausti Salvar Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
„Ég geri
mér
vonir um að
ná inn þremur
mönnum.
M
y
N
d
H
a
N
N
a