Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Qupperneq 38
20. apríl 2018KYNNINGARBLAÐHjólreiðar
GÁP er með nokkra hjólara á samningi, sem sjá um að kynna betur þær vörur sem
þar fást, eins og Cannondale-hjólin.
Cannondale er stórt og þekkt merki
á alþjóðavísu, með bæði götu- og
fjallahjól, sem eru létt og góð. Cann-
ondele býður lífstíðarábyrgð á stell-
unum og hafa skapað sér sérstöðu
með fjallahjólum sem eru bara með
gaffal öðrum megin, „kallast Lefty“.
Þannig er hjólið léttara, en í keppn-
um spilar þyngdin verulegu máli og
í alþjóðlegum keppnum erlendis er
lágmark á þyngd hjóla.
Agnar Örn Sigurðarson er 17 ára
nemandi á húsasmíðabraut í FB,
hann er búinn að æfa og keppa í
hjólreiðum síðan árið 2016. „Ég er
búinn að reyna fullt af íþróttum og
fann mig best í hjólreiðum.“
Hann vann Uphill-keppnina í
vetur og var það í annað sinn sem
hann keppti. „Það gekk ágætlega
í fyrra skiptið, þá tapaði ég á móti
þeim sem lenti síðan í öðru sæti þá,
þannig að ég ákvað að taka mig á
og æfa vel fyrir keppnina í ár,“ en
töluverður fjöldi keppti í ár.
Agnar er búinn að taka þátt í bæði
fjalla- og götuhjólakeppni, á cross
country-hjólum, hann hefur keppt
tvisvar í WOW Cyclothon, fyrst hjólaði
hann með Hjólakrafti og í seinna
skiptið keppti hann í fjögurra manna
liði fyrir King Cannondale GÁP Elite.
Agnar keppir eingöngu á Cann-
ondale-hjólum, „á léttu og stífu hjóli,
sem kallast Super Fix Ivo,“ segir Agn-
ar, sem á fjögur hjól í dag: fjallahjól,
racer, BMX og síðan hjól sem hann
setti saman sjálfur.
Er ekki nóg að eiga bara eitt hjól?
„Þetta er svona áhugafíkn, það er
ekki bara gaman að hjóla, það er líka
gaman að fikta í þeim og breyta.“
„Hjólreiðar eru öðruvísi,“ segir
Agnar aðspurður hvað það sé við
hjólreiðarnar sem heillar svona.
Næsta keppni hér heima er
Morgunblaðshringurinn 26. maí
næstkomandi hjá Agnari sem æfir og
keppir allt árið. „Nú er bara að æfa og
keppa og safna reynslu.“ Agnar fer út
9. maí í fyrstu keppnisferðina erlendis,
Tour de Himmelfart í Danmörku.
Prjónar um
göturnar á
Cannondale
AGNAr ÖrN AFrEKSHjóLArI: