Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Side 52
52 lífsstíll - kynlíf 20. apríl 2018 H úrra, ég er ein þeirra útvöldu!“ – hugsaði ég með bros á vör og kitl í maga þegar mér barst tilkynning þess efnis að umsókn mín um inn- göngu hefði verið samþykkt. Nei, ég var ekki að sækja um skólavist í Yale, og ekki heldur um hrein- dýr til að skjóta eða skólagarð til að rækta rófur í sumar. Ég hafði sótt um inngöngu í swingpartí í Reykjavík, en slíkir viðburðir eru álíka sjaldgæfir og ályktanir rík- isstjórnarinnar gegn stríðsrekstri stórvelda sem bitna á borgurum Mið-Austurlanda. Aldrei fyrr hafði ég mætt í stórt boð af þessu tagi á Íslandi, en ef til vill muna lesendur eftir frá- sögnum mínum af heimsóknum í skylda klúbba erlendis, þar á með- al Fata Morgana sem er staðsettur um 20 mínútur fyrir utan miðborg Amsterdam og þykir ansi góður. Greinarnar má nálgast á vef undir- ritaðrar hér fyrir neðan. Sex hundruð Íslendingar spenntir fyrir makaskiptum Áður en þið rjúkið inn á rafræna Reykjavík til að senda inn umsókn fyrir næsta partí er vert að geta þess að málið er ekki svo einfalt. Viðburður sem þessi er tilkynntur á samfélagsvefnum www.sdc.com, en skammstöfunin stendur fyr- ir Swingers Dating Club. Ætla má að flestir Íslendingar sem stunda swing, eða dreymir um það, séu skráðir á vefinn. Á heimsvísu eru yfir þrjár milljónir notenda skráð- ir á vefinn, Íslendingar eru um 600 en þeim hefur fjölgað hratt síðustu misseri. Það eru samt nokkrar glóandi gjarðir sem nauðsynlegt er að stökkva í gegnum áður en hægt er að eiga von á sjóðheitu boðskorti í swingpartí í pósthólfið á SDC. Til að nota vefinn þarf að búa til prófíl, hann getur verið fyrir einstakling eða par. Upplýsingar um útlit, reynslu, væntingar og vilja eru fylltar út, ásamt því sem myndum er hlaðið upp á vefinn. Ókeypis aðgangur býður upp á takmarkaða möguleika, en fyr- ir fólk sem er alvara er kostnaður ekki sérlega mikill, mánuðurinn kostar álíka mikið og hádegistil- boð fyrir einn á lekkerum veitinga- stað, og heilt ár kostar hér um bil það sama og miði á söngleik og strætófargjald í leikhúsið og til baka. Virknin á vefnum er mikil – þar eru hópar, viðburðir auglýstir, sólarlandaferðir, skíðaferðir, sigl- ingar (já, allt sérstaklega fyrir fólk í lífsstílnum), spjallsvæði, grein- ar og ég er örugglega að gleyma svona tuttugu hlutum. Sögur um slæma hegðun ferðast hratt Margir nýta sér ferðatilkynningar og stefnumótaóskir – þannig er hægt að komast í samband við fólk í svipuðum hugleiðingum, til dæmis ef ráðgert er að eyða heitri helgi á Akureyri eða í Aberdeen. Einnig er bráðnauðsynlegt að hafa aðgang að upplýsingum og um- sögnum um klúbba ef heimsókn- ir eru ráðgerðar á nýjum stöðum. Í lífsstílnum gilda ákveðnar reglur sem vert er að kynna sér, því þó að þagmælska ríki almennt í samfélaginu ferðast fiskisagan um dólgshátt eða slæma hegðun á ógnarhraða milli fólks. Á SDC er afskaplega mikilvægt að notend- ur gefi hver öðrum umsagnir – því fleiri jákvæðar umsagnir og því skýrari upplýsingar, því meiri líkur eru á að þar fari fólk sem er alvara og þess virði að hitta. Að sjálfsögðu er eitthvað um gerviprófíla og bull á vef sem þessum, en stjórn- endur leggja sig fram við að gera notkun hans passlega flókna til að tröllalæti séu sem minnst. Kynlífsróla er staðalbúnaður En aftur að gleðskapnum í Reykjavík. Tæp- lega 40 manns hlutu náð fyrir aug- um skipuleggj- enda, þar af þrír einhyrningar (stakar kon- ur) og þrjú stök naut (karlmenn), restin pör. Mun færri komust að en vildu. Veislan var haldin í veg- legu einbýlishúsi á nokkrum hæð- um, en meðal annars var búið að útbúa leiksvæði, hengja upp kyn- lífsrólu og skella upp nuddbekk. Heitur pottur og gufubað ásamt sturtum voru einnig á staðnum. Kertaljós og kósí tónlist, og nóg af krókum og kimum fyrir skraf, kel- erí og aðra lostaleiki. Gestgjafar báðu kvenkyns gesti um  að mæta í lekkerum og pass- lega eggjandi klæðum og hælum, en karlmenn voru vinsamlega beðnir um að vera snyrtileg- ir til fara. Boðið var upp á freyðivín í fordrykk og léttar veitingar á föstu formi, en þeir sem kusu að drekka meira komu með eig- ið áfengi au- kreitis. Gestir áttu einnig að mæta með eig- in handklæði, sleipiefni, smokka og aðra auka- hluti eftir geðþótta. Veislan hófst klukk- an 21.30 á föstudagskvöldi og stóð fram undir morgun. Í næsta blaði mun ég ræða við gestgjafana ásamt nokkrum gest- um úr veislunni. Þangað til hvet ég áhugasama til að kynna sér lífsstílinn, til dæmis með grúski á internetinu. n Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur og kynlífsráð- gjafi hjá Áfalla- og sálfræðimið- stöðinni Hamraborg 11 www.raggaeiriks.com raggaeiriks@asm.is Um 40 Íslendingar mættu í swingpartí í Reykjavík Ragga Eiríks mætti í fyrsta stóra kynlífsboðið sitt á íslenskri grundu „Gestir áttu einnig að mæta með eigin handklæði, sleipiefni, smokka og aðra aukahluti eftir geðþótta. Sv ið SE t t m y n d Orðskýringar Swing – orðið hefur oft verið ranglega þýtt „makaskipti“ á íslensku. Ranglega, því orðið takmarkast við að makar skiptist á mökum með öðrum mökum … Swing er meira en það því um er að ræða áhugamál eða athæfi sem snýst um rómantísk eða kynferðisleg samskipti fullorðins fólks. Kannski mætti kalla það samþykkt fjöllyndi, í jákvæðustu merkingu þeirra orða. Lífsstíll (e. lifestyle) – orðið sem flest- um þykir þægilegast að nota um áhuga- málið. Sniðugt, því orðinu má skjóta inn í sakleysislegar samræður ef þörf er á að komast að því hvort viðmælandi hafi þekkingu eða áhuga á swingi. Einhyrningur (e. unicorn) -–stök kona sem stundar swing. Stakar konur eru nánast undantekningarlaust velkomnar í partí og klúbba. Orðið gefur til kynna að þær eru sjaldgæfar og eftirsóttar. Merkilegt er að það er ekki til orð yfir stakan karlmann sem stundar lífsstílinn – stakir karlmenn hafa því miður á sér slæmt orð í þessu samhengi fyrir að láta gredduna hlaupa með sig í gönur. naut (e. bull) – stakur karlmaður með stóran getnaðarlim sem hefur samfarir við konu, gjarnan á meðan maður henn- ar fylgist með.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.