Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Síða 64
64 20. apríl 2018fréttir - eyjan
Orðið á
götunni
Orðið á götunni er að Dav-
íð Oddsson ritstjóri Morgun-
blaðsins sé alls ekki höfund-
ur Staksteina Morgunblaðsins
eins og margir hafa haldið allt
frá því Davíð tók við sem rit-
stjóri blaðsins
árið 2009.
Þess í stað sé
það Karl Blön-
dal aðstoðar-
ritstjóri sem
sé iðulega
sá sem skrifi
Staksteina og
marga leiðara
blaðsins sem túlka má sem
„harðasta hægrið“. Það eina
sem Davíð geri á Morgunblað-
inu sé að koma af og til í heim-
sókn á skrifstofuna og skrifa
stundum Reykjavíkurbréf.
Þessar upplýsingar hljóta
að vera vonbrigði fyrir þá sem
taka Staksteinum sem heil-
agri ritningu og nota þá til að
móta eigin skoðanir. Þetta
vekur einnig spurningar um
afrakstur vinnu þar sem Dav-
íð er ritstjóri með nærri fjór-
ar milljónir á mánuði þegar
það er í raun Karl Blöndal
sem sér um að koma málstað
Moggans á framfæri, það væri
kannski ráð fyrir Karl að koma
út úr skápnum sem Stak-
steinahöfundur þó það væri
aðeins til að láta nafn sitt bera
á góma þegar kemur að því að
finna eftirmann Davíðs.
Eini sem uppfyllir kröfurn-
ar til að verða ritstjóri Morgun-
blaðsins, þ.e.a.s. að mæta illa
til vinnu, eiga aðdáendur sem
fylgja öllu sem viðkomandi
segir í blindni og telja að 13,7%
sé „gott kjörfylgi“, er Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson. Það
er aldrei að vita nema hann
slái til á næstu tíu árum, því
nóg er til af kvótapeningum til
að niðurgreiða tapið.
Karl Blöndal,
aðstoðarritstjóri
Morgunblaðsins.
M
etfjöldi framboða verð-
ur á kjörseðli Reykvík-
inga í borgarstjórnar-
kosningunum sem fara
fram eftir rúmar fimm vikur. Alls
munu kjósendur geta valið á milli
fjórtán framboða, með fyrirvara
um að fleiri bætist ekki við: Sjálf-
stæðisflokkurinn, Samfylkingin,
Píratar, Vinstri græn, Viðreisn,
Miðflokkurinn, Framsóknar-
flokkurinn, Flokkur fólksins, Al-
þýðufylkingin, Sósíalistaflokk-
ur Íslands, Höfuðborgarlistinn,
Íslenska þjóðfylkingin, Frelsis-
flokkurinn, fyrirhugað kvenna-
framboð og fyrirhugað framboð
Sveinbjargar Birnu Sveinbjörns-
dóttur.
Grétar Þór Eyþórsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Há-
skólann á Akureyri, bendir á að
þessi fordæmalausi fjöldi flokka
eigi bara við um Reykjavík. „Mað-
ur sér ekki þessa tilhneigingu til
fjölgunar flokka annars staðar
en í Reykjavík, til dæmis á Akur-
eyri stefnir í fækkun framboða
ef eitthvað er.“ Grétar hefur hug-
mynd um hvers vegna fjölgun-
in á sér stað í Reykjavík. „Það er
búið að fjölga sætum í borgar-
stjórn þannig að möguleikarnir á
að ná inn manni eru mun meiri
en áður. Það eru rúm 4 prósent,
eða 2.400 atkvæði, enn minna ef
kjörsóknin minnkar. Það hlýt-
ur að hafa áhrif þegar fólk vegur
og metur hvort það eigi að freista
gæfunnar.“
Samfélagsmiðlar spila einnig
stórt hlutverk en mun auðveldara
og ódýrara er að koma skilaboð-
um á framfæri til kjósenda í dag
en áður. „Við erum búin að sjá
ákveðinn aðdraganda að þessu,
með fjölgun flokka eftir hrunið
og metfjölda flokka sem ná inn
á þing, bæði í kosningunum
2013, 2016 og 2017,“ segir Grét-
ar, en árið 2013 buðu níu flokk-
ar fram lista til Alþingis án þess
að ná inn manni. Í síðustu mæl-
ingum á fylgi flokka eru líkur á
að átta flokkar nái inn í borgar-
stjórn. „Það eru þrír flokkar alveg
á mörkunum, það munar mjög
fáum atkvæðum hvort það verði
fimm eða níu flokkar inni.“
DV ræddi við tvo frambjóð-
endur flokka sem hafa ekki mælst
með mikið fylgi í könnunum til
þessa til að fá svör hvers vegna
flokkarnir eru í framboði og hvað
sker þá úr frá hinum þrettán
framboðunum. n
Gunnlaugur Ingvarsson
borgarstjóraefni Frelsisflokksins
„Okkar rödd þarf að heyr-
ast, það er slagorðið okkar,“
segir Gunnlaugur Ingvars-
son, formaður og borgar-
stjóraefni Frelsisflokksins.
Frelsisflokkurinn varð til
eftir að Gunnlaugur, ásamt
Gústaf Níelssyni, gengu út
eftir trúnaðarbrest innan
Íslensku þjóðfylkingarinn-
ar skömmu fyrir þingkosn-
ingarnar 2016, en til stóð
að Gunnlaugur og Gústaf
yrðu oddvitar flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum. Hann hafnar
því þó að Frelsisflokkurinn sé klofningsframboð úr Íslensku þjóð-
fylkingunni. „Við erum miklu frekar klofningur úr Sjálfstæðisflokkn-
um og Framsóknarflokknum, svo er líka einn úr Vinstri grænum.“
Vill Gunnlaugur meina að þessir flokkar séu linir þegar kemur að
útlendingamálum og gangi aðeins í takt við „góða fólkið“ og vilja
Ríkisútvarpsins, linkind í útlendingamálum sé einnig það sem skilji
að Frelsisflokkinn og Flokk fólksins. Trúnaðarbresturinn frá 2016
komi einnig í veg fyrir að Frelsisflokkurinn geti unnið með Þjóðfylk-
ingunni.
Hvað ætlar Frelsisflokkurinn að gera í borginni?
„Við ætlum að rifta samningi Reykjavíkurborgar við Útlendinga-
stofnun, það er verið að henda fátækum Íslendingum út á götuna
til að hýsa hælisleitendur, það viljum við stöðva. Við viljum einnig
rifta samningi borgarinnar um mosku í Sogamýri og koma í veg fyrir
stækkun moskunnar í Skógarhlíð.“
Gunnlaugur leggur mikla áherslu á útlendingamál og líkir Frelsis-
flokknum við flokka á borð við Sanna Finna, danska Þjóðarflokkinn,
Frelsisflokk Geert Wilders í Hollandi og vísar til Emmanuel Macron
Frakklandsforseta um að koma í veg fyrir að fjármagn komi til lands-
ins frá Sádi-Arabíu. Nú eru flest útlendingamál á borði Alþingis en
ekki borgarstjórnar, er borgarstjórn stökkpallur inn á þing í fram-
tíðinni? „Já, það má segja það. Að komast inn í borgarstjórn vekur
athygli á flokknum og kemur okkur inn í umræðuna.“
Frelsisflokkurinn er ekki að mælast með mikið fylgi, svo ég spyrji
hreint út, hvers vegna eru þið í framboði?
„Við héldum fund í gær, það var góð mæting. Það er búið að fjölga
borgarfulltrúum upp í 23 og við höfum reiknað út að það þurfi bara
rúm 4 prósent til að ná inn, það gæti verið oddamaður. Við munum
eftir Ólafi F. Magnússyni úr Frjálslynda flokknum sem var oddamað-
ur og náði þannig að verða borgarstjóri,“ segir Gunnlaugur og brosir.
Sanna Magdalena Mörtudóttir
frambjóðandi Sósíalistaflokks Íslands
Ástæðan hvers vegna hún
sé að gefa kost á sér segir
Sanna eitt einfaldlega hafa
leitt að öðru. „Fyrir tæpu
einu og hálfu ári skrifaði
ég færslu á Facebook þar
sem ég talaði opinskátt um
hvernig það var að alast
upp í fátækt á Íslandi. Ég
var þá beðin um að tala á
málþingum og slíku og það
leiddi síðan til þess að ég
var ein af þeim sem stofnuðu Sósíalistaflokkinn 1. maí í fyrra.
Sósíalistaflokkurinn er enn að vinna að áherslum sínum fyr-
ir kosningar en Sanna segir þó ljóst að áherslan verði lögð á hús-
næðiskreppuna og lág laun og léleg lífskjör sem hin verst settu búi
við og valdaleysi þeirra. „Hin verr settu eru aldrei spurð og hags-
munir þeirra eru aldrei hafðir til grundvallar þegar ákvarðanir eru
teknar. Það er vegna þess að við sitjum ekki við borðið, okkur hef-
ur verið ýtt út úr stjórnmálunum, sem virðist eiga aðeins að verða
leikvöllur fyrir hin betur settu. Hin verr settu eru ekki á framboðs-
listum meginstraumsflokkanna, alla vega ekki svo ofarlega að þau
gætu náð kjöri. Nema hjá okkur sósíalistum, auðvitað. Framboð
sósíalista er í raun uppreisn hinna verr stæðu gegn elítunni sem
hefur tekið stjórnmálin yfir. Kjör okkar, hinna verst settu, munu
ekki skána fyrr en við stígum upp og krefjumst þess að komast sjálf
að borðinu til að fjalla um okkar eigin mál, okkar samfélag.“ Sem
dæmi um nauðsyn þess að fátækt fólk komist til valda nefndi Sanna
nýlega skýrslu fjármálaráðuneytisins þar sem talað var um lélegt
fjármálalæsi hinna fátæku. „Ég kunni á heimilisbókhaldið mitt upp
á tíu þegar ég var 9 ára. Það er raunveruleiki fátækra barna. Fátækt-
in kenndi mér allt um peninga. Ég veit allt um peninga og allt um
hvernig er að lifa án þeirra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
veit ekkert um peninga vegna þess að hann hefur enga hugmynd
um hvernig er að lifa án þeirra.“
Hvers vegna er þessum áherslum ekki komið að í öðrum flokkum,
hvers vegna þarf sérstakt framboð?
„Það er einfalt. Þeir flokkar sem eru fyrir eru ekki nógu róttæk-
ir. Þeir tala ekki gegn auðvaldinu, hafa gefist upp fyrir því. Forysta
hinna flokkanna á meira sameiginlegt og tengir betur við forystu
annarra flokka en eigin kjósendur. Sem sást til dæmis í vetur þegar
forysta VG gekk inn í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum þegar 97
prósent kjósenda flokksins var á móti því.“
Allt Að 15 frAmboð
n Framboðum fjölgar bara í reykjavík n „Okkar rödd þarf að heyrast“
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is
Grétar Þór Eyþórsson,
prófessor í stjórnmálafræði.