Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Side 66
66 fólk 20. apríl 2018
Þá viku sem hátíðin stendur lítur því út fyrir að með-
alaldur Facebook-notenda á Íslandi hafi lækkað
all verulega. DV leit yfir síður nokkurra þekktra Ís-
lendinga og fékk leyfi til að birta barnamyndir þeirra
ásamt mynd eins og þau líta út í dag. Varðveitum
barnið í okkur.
Frægir taka þátt á Facebook
Heldur mál-
þing í tilefni
stórafmælis
Rithöfundurinn Elísabet Krist-
ín Jökulsdóttir, sem bauð sig fram
til embættis forseta Íslands í fyrra,
fagnaði stórafmæli sínu 16. apríl
síðastliðinn. Elísabet, sem varð sex-
tug, heldur málþing í tilefni afmæl-
isins og er boðið upp á fjölbreytta
dagskrá, sem hæfa ætti öllum.
Málþingið fer fram á sunnudag
í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8 og
stendur frá kl. 15–17. Soffía Auður
Birgisdóttir setur þingið. Elísabet
sjálf mun lesa upp ljóð og Borg-
ar Magnason leikur á kontrabassa.
Leikhópurinn Ra Ta Tam flytur
leikatriði og Hólmfríður M. Bjarnar-
dóttir, Hrund Ólafsdóttir, Bergljót
Soffía Kristjánsdóttir og Guðrún
Steinþórsdóttir flytja allar erindi.
A
ndlit leikarans og leikstjórans góðkunna,
Gísla Arnars Garðarssonar, prýddi aug-
lýsingaspjöld á Cannes nýlega. Um er
að ræða auglýsingaplakat sjónvarpsþátt-
anna One Night sem Øystein Karlsen leikstýrir
og skrifar handrit að.
Tveir leikarar leika aðalkarlhlutverk myndar-
innar, Gísli Örn í ensku útgáfunni og Anders
Baasmo Christiansen í þeirri
norsku. Mótleikkona þeirra,
MyAnna Buring, leikur hins
vegar í báðum útgáfum, en
tökur þeirra fóru fram á sama
tíma í október og nóvember
á síðasta ári. Hún leikur þó á
sænsku í norsku útgáfunni, en
þættirnir eru alls tíu.
One Night fjallar um par sem
kynnist á blindu stefnumóti.
„Hver sena var tekin tvisvar, á
ensku og norsku. Vegna andláts í fjölskyldu Anders
gat hann ekki leikið í báðum útgáfum. Þannig að
Gísli Örn tók það að sér,“ segir Karlsen.
„Gísli Örn kom inn með þriggja daga
fyrirvara, sem er frábært. En það sem
er líka vert að minnast á er að Buring
fór í gegnum 250 blaðsíðna handrit, á
tveimur tungumálum, með þriggja mánaða gam-
alt barn sitt sem er á brjósti.“
Deilir aðalhlutverki
með Norðmanni
Gísli Örn
Anders og Buring í
hlutverkum sínum.
Barnamenning:
Manuela Ósk,
athafnakona
og eigandi
Miss Universe
Iceland.
Helga
Möller
söngkona
Helga Vala
Helgadóttir,
þingkona
Samfylk-
ingarinnar.
Elsa Nielsen listakona