Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Síða 70
70 fólk 20. apríl 2018
„Fries before guys“
Hvað halda margir um þig sem er alls
ekki satt? Að ég sé tussa, margir halda líka
að ég sé vitlausari en ég er.
Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund kalli
á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu?
Asos.com.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa?
One Dance með Drake.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? Pilsbuxur, „if you know
you know“.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið?
Hrafnhildi, vinkonu minni, það hefur ekki
klikkað í 15 ár.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Nei, bara alls ekki, hef
aldrei gert og mun aldrei gera. Mamma segir
samt að ég hafi gert það, en ég neita að
trúa henni.
Hverju laugstu síðast? Að ég væri mætt
fyrir utan stað, en var ekki lögð af stað.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Það geta aldrei allir í heiminum
verið sammála.
Ef þú mættir bæta við ellefta boð-
orðinu, hvernig hljómaði það? Fries
before guys“.
Hvaða einstakling finnst þér þú
þekkja, þótt þú hafir aldrei hitt hann?
Kylie Jenner.
Hvað er það merkilegasta sem hefur
gerst í heiminum á þínum líftíma?
Örugglega að Obama varð forseti eða það
urðu aldamót. Og iPhone.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við
hæfi að breyta í söngleik? Mean Girls, það
væri geggjað.
Ef þú yrðir handtekin án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda að
þú hefðir gert af þér? Vinir mínir myndu
klárlega halda að ég hefði lamið einhvern
illa eða fyrir að reka pimp-þjónustu,
mamma myndi halda að ég hefði misskilið
eitthvað eða lögreglan misskilið eitthvað.
Pabbi myndi halda að ég hefði verið hand-
tekin fyrir of hraðan akstur of oft.
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn myndi Lagarfljótsormurinn
finnast, Frikki Dór vinna Eurovision
fyrir Íslands hönd og Donald Trump
myrtur. Hver væri stærsta fyrirsögnin
í blaðinu þínu daginn eftir? Lagar-
fljótsormurinn ætti forsíðuna, sagan um
hann átti stóran hluta af æsku minni, blaðið
yrði myndskreytt alls konar ormum og
mismunandi sögusögnum sem hafa gengið
um hann. Trump og Frikki mættu vera á
öðrum miðlum, þeir myndu alveg taka yfir
internetið og þessir atburðir myndu ekki
fara framhjá neinum þótt mitt blað væri
tileinkað orminum.
Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek
í lífinu? Þau eru eiginlega tvö sem ég er
gríðarlega stolt af, ég gekk með barn og
fæddi það. Svo annað, ætli ég hafi ekki
verið í 10. bekk, þegar öll unglingadeildin
átti að fara í tveggja daga fjallgöngu. Ég
man ekki hvað fjallið hét, en við áttum að
fara upp fjallið, niður það og svo hálfhring
í kringum. Ég reyndi allt til að komast hjá
þessari fjallaferð, án árangurs. Sem endaði
þannig að af 30–40 manna hópi, alls ekki í
besta forminu úr hópnum, var ég langfyrst
upp, niður og hringinn. Það var ekkert nema
hugarfar mitt að komast heim sem hvatti
mig, því fyrr sem ég kæmist upp því fyrr
kæmist ég heim. Það þurfti reyndar oft að
stoppa mig, ég fór svo hratt.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Núðlur með Arom-
at og „skinny dipping“ í útlöndum!
Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir?
Engu, ég man ekki eftir því að hafa unnið
heimsmeistaratitil í neinu, en mér finnst
enginn vera betri en neinn, við erum öll
bara fín.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi,
allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja?
Viðlagið við Piece of me – Britney Spears
á virkum dögum og I'm so groovy – Future
um helgar.
Kara Kristel Ágústsdóttir, förðunarfræðingur og kynlífsbloggari,
hefur vakið mikla athygli fyrir opinskáa og hispurslausa pistla sína um
kynlíf og ástarmál. Kara Kristel sýnir lesendum DV á sér hina hliðina. hin hliðin
lítt þekkt
ættartengsl
E
inn efnilegasti tónlistarmað-
ur Íslands er Birgir Steinn
Stefánsson. Birgir vakti fyrst
athygli með hljómsveitinni
September en sló síðan eftirminni-
lega í gegn með laginu „Can you
feel it“, sem
einmitt var
gefið út í sept-
embermánuði
2017. Lagið fór
umsvifalaust á
topp vinsælda-
lista hérlend-
is og hefur líka
gert það gott
úti í hinum
stóra heimi. Á
þessari stundu
hefur lagið
verið spilað 7,3 milljón sinnum
á Spotify. Það eru hreint út sagt
ótrúlegar tölur. Birgir var gestur
Brennslunnar á FM957 í vikunni
og sagði að velgengnin hefði gert
það að verkum að hann hefði ver-
ið í mestu vandræðum með að
ákveða hvaða lag hann myndi
næst gefa út enda mikilvægt að
það væri sterkt. Í þættinum var
nýjasta lag hans frumflutt en það
ber heitið „Home“. Um er að ræða
þrælsterkt popplag sem líklegt er
til vinsælda.
Birgir Steinn á ekki langt að
sækja hæfileikana því faðir hans er
tónlistarmaðurinn góðkunni, Stef-
án Hilmarsson. Þeir feðgar hafa
troðið upp saman, sérstaklega í
kringum jólavertíðina, og gáfu
meðal annars út lagið „Um Vetr-
arnótt“ fyrir tæpum þremur árum.
Hæfileikar Stef-
áns virðast hafa
gengið í erfðir.
Lag Birgis Steins „Can you feel it“ hefur
slegið í gegn víða um heim.
É
g hef mikinn áhuga á snyrti-
vörum. Og mér fannst þau
brúnkukrem sem ég var að
nota aldrei litur eða for-
múla sem ég var að fíla, þannig
að ég ákvað að búa til eitthvað
sem væri fullkomið fyrir mig, eft-
ir að hafa prófað fjölmörg sem ég
var ekki að fíla.“
Patrekur Jaime, sem er ný-
lega orðinn 18 ára, hefur stofn-
að fyrirtækið Patrekur Jaime
Cosmetics um vörur sínar. Auk
þess að vinna að nýja fyrirtæk-
inu, vinnur hann mikið við sam-
félagsmiðla og starfar einnig hjá
HLC, sem rekur fjórar verslanir í
Kringlunni.
The Queen er í einni stærð
og einum lit (medium) til að
byrja með. Patrekur Jaime byrj-
aði vinnuna fyrir um það bil
sex mánuðum og leggur mikla
áherslu á gæði og allt útlit vör-
unnar, en hann breytti um um-
búðir á síðustu stundu. „Ég verð
með dj og býð upp á veitingar,
auk þess að sýna The Queen.“
„Ég byrja að koma með
brúnkukremið, sem fer í sölu 1.
maí næstkomandi. Ég ætla síð-
an að sjá hvernig viðtökurn-
ar við því verða, en ég er þegar
byrjaður að þróa aðra vöru sem
kemur í lok sumars. Maður hef-
ur bara puttann á púlsinum og
er opinn fyrir öllum möguleik-
um sem eru í boði.“
Fylgjast má með Patreki Jaime
á Snappchat og Instagram:
Setur
eigin
snyrti-
vörur á
markað
Patrekur Jaime er þekktur á meðal þeirra sem
eru á samfélagsmiðlum, en hann er Snapchat-
stjarna og áhrifavaldur. Og nú sækir Patrekur
Jaime á ný mið, snyrtivörumarkaðinn, en fyrsta
varan, brúnkukrem sem ber nafnið The Queen,
verður kynnt um helgina.
Samfélagsmiðla-
áhrifavaldurinn
Patrekur Jaime:
PatrekurJaime
patrekur00