Morgunblaðið - 30.11.2017, Side 1
F I M M T U D A G U R 3 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 282. tölublað 105. árgangur
MIKIL VIÐ-
SKIPTI MEÐ
BRÉF Í KVIKU
DOPPÓTT LÍSA
AÐ HÆTTI
KUSAMA
KYNFERÐIS-
OFBELDI ÞARF
AÐ RÆÐA
BÓKAÚTGÁFA 18 KIM LEINE 66VIÐSKIPTAMOGGINN
Agnes Bragadóttir
Arnar Þór Ingólfsson
Magnús Heimir Jónasson
Flokksstofnanir Vinstri grænna,
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks samþykktu í gær að ganga til
ríkisstjórnarsamstarfs á grundvelli
málefnasáttmála flokkanna þriggja,
sem kynntur var innan flokkanna í
gær. Fyrsti ríkisráðsfundur ríkis-
stjórnar Katrínar Jakobsdóttur verð-
ur haldinn á Bessastöðum í dag. Mest
spenna var á flokksráðsfundi Vinstri
grænna, en tveir þingmenn flokksins,
Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk
Brynjólfsdóttir greiddu atkvæði gegn
stjórnarsamstarfinu vegna óánægju
með málefnasamninginn. Sömu tveir
þingmenn höfðu áður lýst sig mót-
fallna því að ganga til viðræðna við
Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk
um ríkisstjórnarmyndun. Ekki er
ljóst hvernig samstarfi þeirra við
þingflokk VG verður háttað í fram-
haldinu, en telja má líklegt að flokk-
urinn gangi einungis með 9 þingmenn
af þeim 11 sem kjörnir voru til Al-
þingis, inn í ríkisstjórnarsamstarfið.
Flokksráð VG var þó samþykkt því
að ganga til ríkisstjórnarsamstarfs-
ins, en það var samþykkt með 80% at-
kvæða á fundi ráðsins.
Flokkurinn mun fá þrjá ráðherra-
stóla. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins verður Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra, auk þess
sem Steingrímur J. Sigfússon verður
forseti þingsins. Þá fær flokkurinn
einnig umhverfisráðuneytið.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins
og miðstjórn Framsóknarflokksins
samþykktu ríkisstjórnarsamstarfið.
Í Valhöll komu um 250 fulltrúar úr
starfi Sjálfstæðisflokksins saman síð-
degis og hlýddu á Bjarna Benedikts-
son, verðandi fjármálaráðherra nýrr-
ar stjórnar, kynna sáttmálann.
Niðurstaða fundarins varð að stjórn-
arsáttmálinn var samþykktur ein-
róma en Sjálfstæðisflokkurinn mun
meðal annars fara með utanríkismál
og sjávarútvegs- og landbúnaðarmál í
nýrri stjórn. Ráðherrum flokksins
fækkar um einn frá fyrri stjórn.
Miðstjórn Framsóknarflokksins
kom saman á Hótel Sögu í gærkvöldi
og þar kynnti Sigurður Ingi Jóhanns-
son sáttmálann fyrir sínu fólki. Hlaut
hann góðar viðtökur framsóknar-
manna og var samþykktur, en Sig-
urður Ingi mun samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins taka við embætti
samgöngu- og sveitarstjórnarráð-
herra, á meðan Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir verður menntamálaráðherra.
Þá mun flokkurinn einnig fá velferð-
arráðuneytið.
Katrín tekur við keflinu í dag
Flokksstofnanir flokkanna þriggja samþykktu ríkisstjórnarsamstarf undir forystu Katrínar Jakobs-
dóttur Tveir þingmenn VG greiddu atkvæði gegn stjórnarsáttmálanum 33 þingmenn styðja stjórnina
MFengu samþykki … »4
Kostnaður íslenska ríkisins við að
sækjast eftir fulltrúa í Öryggisráði
SÞ var meiri en milljarður króna, á
árunum fyrir hrun. Þessar tölur er
þó ekki að finna í ríkisbókhaldinu,
þar sem kostnaðarliðir voru færðir
á aðra bókhaldslykla, ef þess var
nokkur kostur. Þetta hermir
Styrmir Gunnarsson eftir fyrrver-
andi utanríkisráðherra, í einum
kafla nýrrar bókar sinnar. »72
AFP
Öryggisráð Ísland sóttist eftir sæti í
ráðinu fyrir tímabilið 2009-2010.
Kostnaðinum við
umsóknina var leynt
Fyrstu tíu mánuði ársins voru um
7.900 ökutæki afskráð og sett í end-
urvinnslu.
Guðlaugur Gylfi Sverrisson,
rekstrarstjóri vöruflokka hjá Úr-
vinnslusjóði, segir nær öruggt að
metið falli í ár og að um 9.000 öku-
tæki fari í endurvinnslu.
Gamla metárið 2008 hafi einhver
fjöldi ökutækja verið afskráður án
þess að það birtist í þessum tölum.
Sá fjöldi hafi hins vegar verið
hverfandi. »6
Metfjöldi ökutækja
í endurvinnslu í ár
Mælingar jarðvísindamanna við Háskóla Íslands
benda til að í syðri sigkatli Bárðarbungu séu um
100 metrar niður á vatn. Hafa þeir látið gera þrí-
víddarlíkön sem byggð eru á þessari og fleiri
myndum Ragnars Axelssonar á Morgunblaðinu
af Bárðarbungu og Öræfajökli.
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við
Háskóla Íslands, segir þrívíddarmyndir af jökl-
unum ekki hafa verið unnar áður úr svona ljós-
myndum. Ætlunin er að fylgjast áfram með
breytingum í eldstöðvunum með þessum hætti,
enda hræringar enn í gangi. »32
Morgunblaðið/RAX
Hundrað metrar niður á vatn
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504