Morgunblaðið - 24.05.2018, Page 2

Morgunblaðið - 24.05.2018, Page 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg Eigendur sýningarinnar Undur ís- lenskrar náttúru í Perlunni buðu starfsfólki Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins á sýninguna í þakklæt- isskyni fyrir „ótrúlega fagleg og vel unnin störf“ þegar kviknaði í Perl- unni í síðasta mánuði. Þáðu þeir boð- ið í gær. Töluverð tjón varð í brunanum 24. apríl. Eldur kom upp í einangrun á hitaveitutanki við inngang Perl- unnar. Slökkvistarfið reyndi á slökkviliðsmenn enda voru þrengsli á þeim stöðum sem þeir þurftu að at- hafna sig á. Unnið hefur verið hratt og örugglega að endurbótum í kjöl- far brunans, samkvæmt upplýs- ingum Gunnars Gunnarssonar, stofnanda og framkvæmdastjóra Perlu norðursins. Sýningin Undur íslenskrar náttúru var opnuð síðast- liðinn laugardag, 25 dögum eftir brunann. Áfram er unnið að upp- byggingu Perlunnar sjálfrar. Þökkuðu slökkviliðs- mönnum 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 TENERIFE Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. KOMIÐ Í SÖLU 6. október í 21 nótt 7. nóvember í 21 nótt 14. nóvember í 14 nætur HOTEL BEST TENERIFE Brottfarir: MeðGunnari Svanlaugssyni Sérkjör fyrir félaga í FEB – ekkert bókunargjald 60ára+ 595 1000 . heimsferdir.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. „Þessi blómakörfumynd eftir Kjarval telst til lykil- verka hans og er hreint fágæti. Það er afar sjaldgæft að svona mynd komi á uppboð enda eru þær í raun svo fáar.“ Þetta segir Tryggvi Páll Friðriksson hjá Gallerí Fold, en fyrirtækið stendur fyrir 110. mynd- listaruppboði sínu næstkomandi mánudag. Þar verður m.a. boðið upp verk eftir Jóhannes Kjarval sem hann mun hafa málað árið 1956. Verðmat gerir ráð fyrir að verkið fari á 6-7 milljónir króna. Spurður út í verðlagninguna segir Tryggvi að hún verði að teljast hófleg. „Þetta er varla bílverð. Og þó að oft sé hægt að kaupa fallegar Þingvallamyndir eft- ir Kjarval eru verk á borð við þetta nær ófáanleg. Þessi mynd er nátengd hinni frægu blómakörfumynd sem Kjarval færði bílstjórum BSR og er nú í eigu Listasafns Reykjavíkur. Þessar myndir málaði hann af blómakörfu sem Bifreiðastöð Reykjavíkur færði honum í tilefni sjötugsafmælis hans 1955. Þessi mynd sem nú er boðin upp er líkast til með Dyrfjöll í bak- grunni þar sem mynd Listasafnsins hefur veggfóður. Þessi finnst mér ekki síðri vegna þessa,“ segir Tryggvi. Meðal annarra verka sem boðin verða upp á mánu- dag er verkið Rosabaugur um gervitunglið eftir Svavar Guðnason og segir Tryggvi að hún hafi farið allvíða á sýningar. Verðmat á henni hleypur á 2-2,5 milljónum króna. Þá er einnig boðin upp uppstoppuð snæugla sem hann segir mjög sérstæðan grip í mörgu tilliti og er verðmat á henni 500 til 600 þús- und krónur. Fágætur Kjarval á uppboði Fágæti Blómakarfa eftir Kjarval er olíuverk og er 100x142 cm á stærð. Verkið var málað árið 1956.  Uppstoppuð snæugla meðal uppboðsgripanna Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Bæjarfulltrúar Kópavogs eru ekki sáttir við launakjör bæjarstjóra þrátt fyrir að hafa samþykkt þau einróma á sínum tíma. Theódóra S. Þorsteinsdóttir, odd- viti Bjartrar framtíðar, segir að hækkun á launum bæjarstjóra og bæjarfulltrúa byggist á tveimur ákvörðunum. „Bæjarstjórn samþykkti árið 2016 eftir ítarlega skoðun að hækka starfs- hlutfall bæjarfulltrúa úr 27% í 33% í ljósi þess að stefnumótunarhlutverk ýmissa nefnda hafði verið aukið. Þegar kjararáð úrskurðaði 45% hækkun á þingfararkaupi í lok árs 2016 var um það pólitísk sátt að taka ekki við þeirri hækkun heldur miða launin við almenna launavísitölu og eina leiðin til þess var að breyta samningi bæjarstjóra,“ segir Theó- dóra. „Bæjarstjóri Kópavogs er á allt of háum launum. Ég lagði það til við meirihlutann að launabreytingarnar frá júní 2014 fram í maí 2018 yrðu vegnar saman því ég vildi vita hver hækkunin væri en við því var ekki orðið,“ segir Theodóra, sem segist sitja uppi með það að hafa ekki form- lega látið andstöðu sína í ljós. „Bæjarfulltrúar meirihlutans geta staðfest tölvupóstsamskipti þar sem ég fór fram á endurskoðun,“ segir Theódóra, sem mun láta það verða sitt fyrsta verk þegar ný bæjarstjórn tekur við að flytja tillögu um að for- sætisnefnd endurskoði launakjör bæjarfulltrúa og bæjarstjóra. Theó- dóra segir að launabreytingar bæjar- stjóra og bæjarfulltrúa hafi allar ver- ið upp á borðinu og fréttatilkynningar um þær sendar til fjölmiðla. Nú séu að koma kosningar og málið dregið upp aftur. Hún segir að breytingar á launum bæjarstjóra og bæjarfulltrúa verði ekki lagfærðar nema allir séu sammála og það hafi verið hennar mistök að hafa ekki staðið fastar í fæturna með sannfæringu sína. Meirihlutinn ber ábyrgð Birkir Jón Jónsson, Framsóknar- flokki, segir meirihluta Sjálfstæðis- flokks og Bjartrar framtíðar bera ábyrgð á launakjörum bæjarstjóra. „Í byrjun nýs kjörtímabils 2014 lagði meirihlutinn grunninn að og samþykkti starfssamning við bæjar- stjóra. Samfylkingin greiddi atkvæði á móti, Vinstri græn sátu hjá og Framsókn mótmælti,“ segir Birkir Jón og bendir á að bæjarfulltrúar hafi ekki haft annað val en að samþykkja nýjan ráðningarsamning með teng- ingu við launavísitölu sem innihélt 26% hækkun í stað 45%. „Laun bæjarstjóra Kópavogs, 2,5 milljónir á mánuði, keyra fram úr öllu hófi. Laun hans eiga að vera í takt við kjör annarra bæjarstjóra,“ segir Birkir Jón, sem telur sjálfsagt að ný bæjarstjórn endurskoði launamál bæjarstjóra. Pétur Hrafn Sigurðsson, oddviti Samfylkingarinnar, tekur í sama streng með ábyrgð meirihlutans á ráðningarkjörum bæjarstjóra og seg- ir að launakjör bæjarstjóra verði endurskoðuð. „Með því að samþykkja launasamn- inginn í fyrra varð launahækkun bæjarstjóra 600.000 en hefði orðið 900.000 ef við hefðum ekki samþykkt. Við hefðum getað sett fram tillögu að minni hækkun sem meirihlutinn hefði eflaust hefði ekki samþykkt,“ segir Pétur og segir að bæjarstjóri geti ekki skotið sér undan ábyrgð á ráðningar- samningum, þar sem hann sé oddviti sjálfstæðismanna sem samið hafi um launin við hann ásamt Bjartri framtíð. „Ég tek fulla ábyrgð á breytingum á starfshlutfalli bæjarfulltrúa en laun bæjarstjóra verða endurskoðuð eftir kosningar,“ segir Pétur. Stóðu einhuga að launahækkun  Bæjarfulltrúar í Kópavogi segjast ósáttir við launakjör bæjarstjóra sem þeir sjálfir samþykktu  Laun þeirra sjálfra hækkuðu samhliða  Bæjarstjóri hyggst leggja fram tillögu sem taki mið af ráðherralaunum „Það samþykktu allir tillögu forsætisnefndar um hækkun launa bæjar- fulltrúa og mín laun taka mið af þeim. Í forsætisnefnd sitja fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og minnihlutans. Það er hefð fyrir því að leggja ekki fram tillögu um launabreytingar bæjarfulltrúa nema í fullri sátt,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, sem telur að bæjarfulltrúar séu að skorast undan ábyrgð á þeim hækkunum sem þeir samþykktu rétt fyrir kosningar. „Ég hef ákveðið að mitt fyrsta verk eftir kosningar verði að leggja það til við forsætisnefnd að endurskoða kjör bæjarfulltrúa og bæjarstjóra og að þau taki mið af ráðherralaunum.“ Taka mið af launum bæjarfulltrúa HEFÐ FYRIR SAMSTÖÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.