Morgunblaðið - 24.05.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.05.2018, Qupperneq 6
6 Svartiskógur, Sviss&Alsace sp ör eh f. Haust 3 Heillandi staðir mæta okkur í þessari yndislegu ferð um Svartaskóg, Sviss og Alsace héraðið í Frakklandi. Í ferðinni munum við kynna okkur helstu aðdráttaröfl þessara þriggja landa á þessu dásamlega svæði og sjáum m.a. kraftmestu fossa meginlands Evrópu, Rínarfossa. Gist verður í bænum Lörrach alla ferðina. 15. - 22. september Fararstjóri: Ester Helgadóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 199.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Mismunandi fylgi framboðslistanna í Reykjavík eftir borgarhlutum er enn mjög áberandi í lokakönnun Fé- lagsvísindastofnunar fyrir borgar- stjórnarkosningarnar á laugardag. Könnunin var birt hér í blaðinu í gær. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur langtum meira fylgis í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal og á Kjalar- nesi en aðrir flokkar. Þar ætla um 40% íbúa að kjósa flokkinn en með- alfylgi hans í borginni er 26,3%. Fylgi Samfylkingarinnar er lang- mest í Miðbæ og Vesturbæ, 39%. Meðalfylgi flokksins í borginni er 31,8%. Greint eftir fjórum borg- arhlutum Í könnuninni er fylgi framboðs- listanna greint eftir fjórum borgar- hlutum. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er einnig yfir meðaltali, 28,3%, í Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti. Aftur á móti er það undir meðaltali í Miðbæ og Vesturbæ, þar sem það er aðeins 18,6%, og í Hlíðum, Laugar- dal og Háaleitis- og Bústaðahverfi, þar sem það er 22%. Þessu er öfugt farið hjá stærsta flokknum í Reykjavík, Samfylking- unni. Auk Miðbæjar og Vesturbæjar er fylgi hennar yfir meðaltali í Hlíð- um, Laugardal og Háaleitis- og Bú- staðahverfi, þar sem það er 36,5%. Fylgið er undir meðaltali í Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti, 24,9%, og í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfars- árdal og á Kjalarnesi, þar sem það er 25,3%. Vesturhlutinn vinstrisinnaður Ef skoðað er fylgi annarra fram- boða eftir borgarhlutum kemur í ljós að Píratar, VG og Sósíalista- flokkurinn eiga eins og Samfylk- ingin mest fylgi í Miðbæ og Vestur- bæ. Fylgi Pírata þar er 10,8%, fylgi VG 10,1% og Sósíalistaflokksins 6,9%. Miðflokkurinn hefur mest fylgi í Árbæ, Norðlingaholti og Breiðholti, 8%. Fylgi Viðreisnar er mest í Hlíðum, Laugardal og Háa- leitis- og Bústaðahverfi, 6,4%. Þegar fylgi við borgarastjóraefni framboðanna er greint eftir hverf- um kemur sama mynstur í ljós. Samkvæmt könnuninni vilja að með- altali 43,5% borgarbúa Dag B. Egg- ertsson, oddvita Samfylkingarinnar, sem næsta borgarstjóra. Eyþór Arnalds, oddvita sjálfstæðismanna, nefndu 29,4% og Vigdísi Hauks- dóttur, oddvita Miðflokksins, nefndu 8,5%. Vigdís vinsæl í Grafarvogi Stuðningur við Dag er mestur í Miðbæ og Vesturbæ, þar sem hann er 55,6%, en minnstur í Árbæ, Norð- lingaholti og Breiðholti, þar sem hann er aðeins 32%. Stuðningur við Eyþór er mestur í úthverfunum, þar sem hann er 36-37%, en minnstur í vesturhlutanum, þar sem hann er tæplega 21%. Stuðningur við Vigdísi er langmestur í Grafarvogi og að- liggjandi hverfum, 16,3%. Í skoðanakönnuninni, sem birt var í gær, var fjöldi þátttakenda 1.610. Haft var samband bæði í síma og tölvupósti. Fjöldi þeirra sem svöruðu var 1.113, eða 69,1% úrtaks- ins. 1,6% ætluðu að skila auðu, 0,7% sögðust ekki ætla að kjósa, 15,7% höfðu ekki gert upp hug sinn og 12,9% vildu ekki svara. Ólík viðhorf eftir búsetu í borginni  Fylgið við vinstriflokkana mest í Miðbæ og Vesturbæ  Sjálfstæðismenn sterkastir í úthverfunum  Stuðningur við borgarstjóraefnin fylgir sama mynstri  Nær 56% í Miðbæ og Vesturbæ vilja Dag Fylgi við flokka, borgarstjóraefni og mikilvægustu málefnin eftir hverfum í Reykjavík Dagur B. Eggertsson eða Eyþór Arnalds?Sjálfstæðisflokkur eða Samfylking? Hvaða málefni er mikilvægast? Sjálfstæðis- flokk Samfylkingu Annan flokk eða lista Heimild: Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið dagana 17.-21. maí sl. 44% 29% 8,5% 3,8% 15% Ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? Hver vilt þú helst að gegni embætti borgarstjóra Reykjavíkur eftir borgarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi? Hver af eftirtöldum málaflokkum telur þú að muni ráða mestu um hvaða flokk þú kýst í borgarstjórnarkosningum? 39% 19% Miðbær og Vesturbær 21%28%25% Miðbær og Vesturbær Hlíðar, Laugardalur, Háaleiti og Bústaðahverfi 21%23%26% Hlíðar, Laugardalur, Háaleiti og Bústaðahverfi Miðbær og Vesturbær 37% 22% Hlíðar, Laugardalur, Háaleiti og Bústaðahverfi 25% 28% Árbær, Norðlingaholt og Breiðholt 24%20%23% Árbær, Norðlingaholt og Breiðholt Árbær, Norðlingaholt og Breiðholt 25% 40% Grafarvogur, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes 22%26%25% Grafarvogur, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes Grafarvogur, Grafarholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes Öll hverfi Reykjavíkur Öll hverfi Reykjavíkur Öll hverfi Reykjavíkur Mesta fylgi eftir hverfum 26% 32% 42% Dagur B. Eggertsson Eyþór Arnalds Vigdís Hauksdóttir Líf Magneu- dóttir Aðrir Dagur B. 56% Eyþór 37% Dagur B. 51% Eyþór 36% Velferðar- og jafnréttismál Samgöngumál Húsnæðismál Fjármál borgarinnar Skólamál Annar mála- flokkur 25% 25%21% 32% 34% 24%22% 11% 10% MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta er allt á áætlun, en fráfarandi borgarstjórn á eftir að halda þarna einn fund og verður það 5. júní næst- komandi. Þegar honum er lokið verð- ur farið í framkvæmdir inni í borg- arstjórnarsalnum og unnið hratt,“ segir Helga Björk Laxdal, skrifstofu- stjóri borgarstjórnar, í samtali við Morgunblaðið. Kosið verður til sveitarstjórna næstkomandi laugardag og mun þá borgarfulltrúum fjölga úr 15 í 23. Fundarsalur þeirra í Ráðhúsi Reykjavíkur hefur, að sögn Helgu Bjarkar, haldist nær óbreyttur frá því að húsið var tekið í notkun árið 1992 og er því þörf á bæði viðhaldi og breytingum að loknum kosningum. „Samhliða breytingum verður far- ið í venjulegt viðhald á salnum, s.s. að slípa upp parket og mála, en einnig verða ný húsgögn látin inn í salinn. Það er hins vegar lögð áhersla á að upprunalegt útlit fái að halda sér að mestu leyti – þó verður aðeins léttara yfir borðunum,“ segir Helga Björk. Aðspurð segir hún borgarfull- trúana 23 fá sæti við tvö skeifulaga fundarborð í stað þess borðs sem nú má finna inni í fundarsalnum. Þá er stefnt að því að klára framkvæmd- irnar áður en ný borgarstjórn tekur til starfa. Verði salurinn hins vegar ekki tilbúinn í tæka tíða verður annað rými í húsinu nýtt tímabundið undir fundarhöld eða fundað í sal annars staðar í Reykjavík. Allir fulltrúar í eitt rými Borgarfulltrúar hafa vinnuaðstöðu við Tjarnargötu 12 í Reykjavík. Eru flokkarnir þar með sameiginlegt vinnurými fyrir fulltrúa sína auk fundaraðstöðu, en nú stendur til að opna vinnurýmin alveg og bjóða borgarfulltrúum upp á svokallað „hot-desk“ þar sem fleiri en einn eru um sama skrifborðið. Einnig verða þar tvö fundarherbergi og kaffistofa. „Það eina sem þarf að gera er að taka niður nokkra veggi og opna rýmið alveg,“ segir Helga Björk og bætir við að á jarðhæð hússins verði einnig að finna rými sem borgar- fulltrúar geta meðal annars nýtt til þess að taka á móti borgarbúum. Salurinn tekinn í gegn  Framkvæmdir hefjast í borgarstjórnarsal Ráðhússins snemma í júní  Vinnuaðstöðu borgarfulltrúa einnig breytt Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ráðhúsið Inni í borgarstjórnarsal er stórt skeifulaga borð en eftir breyt- ingar verða borðin tvö fyrir fulltrúana 23 sem þar sitja eftir kosningar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.