Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
landi; annars væri hann starfandi í Bandaríkj-
unum eða annars staðar í Evrópu. Hann er
frábær í alla staði og verður sífellt betri, enda
kallaður Wonderkid, nýorðinn 45 ára!“
Þá nefnir Bjarni Hafþór að Óskar Einarsson
tónlistarmaður, sem gjarnan er kenndur við
Fíladelfíu, hefur skrifað út nótur fyrir hvert
einasta lag sem höfundurinn hyggst bjóða
hverjum sem vill, endurgjaldslaust.
Söngvararnir á Fuglum hugans eru, auk
höfundarins sjálfs, Baldur Björn Arnarsson,
Bjarni Arason, Björgvin Halldórsson, Dagný
Elísa Halldórsdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugs-
son, Elísabet Ormslev, Eyjólfur Kristjánsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Helgi Björnsson,
Helga Möller, Jóhann Helgason, Ína Val-
gerður Pétursdóttir, Magni Ásgeirsson, Mar-
grét Eir Hjartardóttir, Páll Rósinkranz, Ragn-
ar Bjarnason, Regína Ósk Óskarsdóttir,
Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Hilmarsson
og Stefanía Svavarsdóttir.
Ingunn sagði mér að gera þetta!
Bjarni Hafþór segir eiginkonu sína, Ingunni
Wernersdóttur, bera töluverða ábyrgð á því að
ráðist var í þetta stóra verkefni.
„Í gegnum tíðina hef ég stundum verið
spurður hvar hægt sé að finna lögin mín, en ég
hef sjaldnast getað svarað því, vegna þess að
þau eru fæst til nokkurs staðar! Og Ingunn,
sem hefur hlustað á eitthvað af lögunum sem
ég hef samið undanfarin ár og heyrt mig spila
eitthvað af þeim gömlu, sagði við mig fyrir
tveimur árum að það yrði að drífa í að gera
tónlist minni almennileg skil; safna saman og
gefa út.“
Sjálfur maldaði hann í móinn fyrst í stað.
Það væri galið verkefni, mikið að vöxtum, auk
þess rándýrt og þeir peningar fengjust aldrei
til baka. „Þegar hún benti mér á að pening-
arnir færu til íslenskra tónlistarmanna og
spurði hvort það væri slæmt varð ég kjaft-
stopp. Talaði við Þóri Úlfarsson og hann var
klár í slaginn.“
Þá varð ekki aftur snúið.
Bjarni Hafþór ólst upp á Húsavík; var þá
jafnan kallaður Haffi í Grafarbakka. Fjöl-
skyldan bjó nefnilega í húsi með því nafni, sem
vissulega var hægt að snúa út úr, en var þann-
ig tilkomið að annað hús á sama stað var fyrir
margt löngu byggt á bakka mógrafar.
Úr Grafarbakka heyrðist stundum músík
barnsins, þar sem það sat og glamraði á píanó.
„Benedikt Jónsson, kallaður Benni Donda,
jafnaldri minn og skólabróðir, hefur stundum
nefnt að það sé merkilegt hvað komið hafi út úr
glamrinu sem heyrðist stundum úr Grafar-
bakka. Það var víst ekki alltaf fallegt!“
Móðir Bjarna Hafþórs var Jóhanna Aðal-
steinsdóttir frá Vaðbrekku á Jökuldal, systir
þeirra kunnu hagyrðinga Ragnars Inga og Há-
konar, sem báðir eiga texta á Fuglum hugans,
og fleiri þekktra manna. Mikil listræn taug er í
Vaðbrekkufólkinu, það er ekki síst þekkt fyrir
kveðskap, og Bjarni Hafþór segir ekki ólíklegt
að eitthvað hafi hann þaðan enda á hann sjálf-
ur eina 50 texta á Fuglum hugans.
„Mamma var hins vegar alveg laglaus og
meira að segja alveg taktlaus! Mæður tala
náttúrlega alltaf um að börn þeirra hafi undra-
verða hæfileika og hún sagði mér að tónlistar-
gáfa mín hefði komið fram áður en ég varð
þriggja ára. Þá var hún að syngja Bí bí og
blaka fyrir okkur Helga litla bróður minn, með
sínu lagi. Hann sofnaði strax – við viljum
reyndar meina að liðið hafi yfir Helga, frekar
en hann hafi sofnað – en ég á þá að hafa stung-
ið hausnum fram úr efri kojunni og sagt:
Mamma, á ég ekki frekar að syngja þetta fyrir
okkur? Þetta var víst svo rosalegt hjá henni!“
Helgi Bjarnason, faðir Bjarna Hafþórs, var
hins vegar „hlaðinn af tónlist“ og söng af mik-
illi tilfinningu. „Afi föður míns hét Helgi Flóv-
entsson og var fræg eftirherma, skemmti-
kraftur og vísnagerðarmaður á fyrri hluta
síðustu aldar.“
Lög Bjarna Hafþórs eru af öllum stærðum
og gerðum og fjölbreytni er mikil á Fuglum
hugans. Ballöður, barnagælur og „Skriðjökla-
lögin“ sem hann kallar stundum svo; Hryssan
mín blá, Tengja og Mamma tekur slátur, svo
einhver séu nefnd. Á Fuglum hugans eru líka
nokkur vel þekkt íþróttalög.
„Það fyrsta gerði ég fyrir KA-menn 1989,
sumarið sem þeir urðu Íslandsmeistarar.
Stebbi heitinn Gull., sem var formaður knatt-
spyrnudeildar, kom til mín þegar þrjár eða
fjórar umferðir voru eftir af Íslandsmótinu og
spurði hvort ég gæti ekki samið hvatningar-
söng fyrir því! Við þekktumst vel, ég bjó við
hliðina á KA-svæðinu og börnin mín voru þar í
íþróttum. Mér þótti því vænt um félagið þótt
ég sé sjálfur Þórsari fyrst og síðast.“
Á Fuglum hugans er nokkurra ára upptaka
þar sem Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngur.
Besta íþróttalag Íslands
„Fyrst ég gerði þetta fyrir KA skuldaði ég
Þórsurum að sjálfsögðu lag og samdi fyrst
Deyja fyrir klúbbinn, sem í fyrra var kosið
besta íþróttalag Íslands í heilmikilli keppni á
FM 957. Dagný Elísa Halldórsdóttir, Áskels-
sonar landsliðsmanns í fótbolta, syngur það lag
og á 100 ára afmælis Þórs 2015 gerði ég lagið
Ég er Þórsari sem Páll Rósinkranz syngur.“
Í safni Bjarna Hafþórs er líka Pollamótslag
Þórs og að öllu þessu sömdu gat hann ekki
skilið æskufélagið sitt eftir og samdi þvínæst
lag fyrir Völsung á Húsavík en það er á diska-
safninu í nýrri útsetningu, sungið af Ínu Val-
gerði Pétursdóttur.
Bjarni Hafþór hefur víða komið við í at-
vinnulífinu í gegnum tíðina, en sinnir nú að-
allega eigin fjárfestingum. Hann segir Fugla
hugans skref í átt að því að fela öðrum þau
verkefni í ríkari mæli en hingað til en snúa sér
að frekari listsköpun. Jafnvel skriftum.
„Ég veit ekki hvað ég mun skrifa en er þó
með eitt verkefni í gangi. Á orðið sjö eða átta
stuttar jólasögur fyrir fullorðna; þær eru alls
ekki fyrir börn, ekki dónalegar en þær eru
bara svo furðulegar! Það er ekki víst að neinn
annar en ég hafi húmor fyrir þeim en ég er
samt að hugsa um að semja annað eins til við-
bótar og gefa jafnvel út. Og ef af því verður get
ég lofað þér að það verður skrýtnasta jólabók
sem nokkurn tíma hefur komið út.“
Þeir sem til þekkja vita að Bjarna Hafþóri
er trúandi til alls. Bráðum verður því hugs-
anlega hægt að hlakka til jólanna enn frekar
en venjulega …
Mamma, á ég ekki frekar að
syngja þetta fyrir okkur?
Bjarni Hafþór Helgason „tónskáld frá Húsavík“ hefur samið músík frá unglingsaldri Gefur út
75 lög sín á fimm diskum Telur útgáfuverkefnið það stærsta í sögu íslenskrar dægurlagatónlistar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fuglar hugans Hef stundum verið spurður hvar hægt sé að finna lögin mín, en ég hef sjaldnast getað svarað því, segir Bjarni Hafþór.
VIÐTAL
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Margir muna Bjarna Hafþór Helgason af sjón-
varpsskjánum; hann var fastagestur í stofum
landsmanna árum saman sem frétta- og dag-
skrárgerðarmaður. Ákveðinn hópur kannast
við hann úr viðskiptalífinu, einhverja rámar í
lunkinn markaskorara með fótboltaliðum Þórs
á Akureyri og Víkings í Reykjavík og enn aðrir
tengja hann við tónlist, sennilega ekki síst eft-
irminnileg dægurlög í flutningi hinna akur-
eyrsku Skriðjökla, þeirrar miklu gleðisveitar.
Nú hefur „tónskáldið frá Húsavík“, eins og
Tryggvi Gíslason, skólameistari MA, kallaði
Bjarna Hafþór fyrstur manna, við brautskrán-
ingu vorið 1978, ráðist í það þrekvirki að gefa
út nánast alla sína tónlist, 75 lög á fimm disk-
um, flest í nýjum útsetningum Þóris Úlfars-
sonar í flutningi sumra þekktustu tónlistar-
manna landsins. Safnið kallar höfundurinn
Fugla hugans.
„Þetta mun vera stærsta útgáfuverkefni af
þessu tagi í sögu íslenskrar dægurtónlistar.
Alls koma um 100 tónlistarmenn að verkefn-
inu, þar af helmingurinn við nýjar upptökur,“
segir Bjarni Hafþór í samtali við Morgun-
blaðið í tilefni útgáfunnar.
Hann hefur samið tónlist frá unglingsaldri
og ástæða þess að skólameistari kallaði hann
tónskáld voru fjögur lög sem Bjarni Hafþór
samdi fyrir leikritið Hlaupvídd sex eftir Sigurð
heitinn Pálsson, sem leikfélag skólans sýndi
um veturinn. „Ég spilaði lögin sjálfur á píanó í
sýningunni, en síðan hafa þau hvergi heyrst
fyrr en nú.“
Hann segir nokkrar gamlar upptökur not-
aðar. „Við vildum ekki hrófla við þeim, en tók-
um upp 61 lag frá grunni.“
Sú vinna hófst í Lundgaard-hljóðverinu í
Danmörku, en þangað héldu Þórir og Bjarni
Hafþór með hljómsveit og upptökumanni.
„Addi 800 tók upp, Gulli Briem spilaði á
trommur, gítarleikarar eru Jón Elvar Haf-
steinsson og Pétur Valgarð Pétursson, Friðrik
Sturluson spilaði á bassa og Þórir á ýmiskonar
hljómborð.“
Litlu skúffulögin lifnuðu við
Bjarni Hafþór segir Þóri hafa undirbúið
verkefnið vel, útsett öll lögin og prentað bók
fyrir hvern tónlistarmann þannig að allt var
klárt þegar sest var niður í hljóðverinu.
„Þetta eru miklir fagmenn og það var mjög
gaman að fylgjast með þeim vinna. Tónlistin er
afar fjölbreytt enda eru elstu lögin frá því ég
var unglingur; heimavistarslagarar frá
menntaskólaárunum, og þau nýjustu frá 2016.
Mér þótti sérstaklega vænt um að þeir voru
ekki síst hrifnir af því elsta; lítil skúffulög sem
samin voru fyrir okkur félagana fóru allt í einu
á mikið flug – lifnuðu í höndunum á þessum
mönnum.“
Eftir að Þórir lýsti einkennum lags og sagði
hvaða áferð hann vildi fá, spilaði hluta þess,
annaðhvort gamla útgáfu sem gefin hafði verið
út eða upptöku úr síma Bjarna Hafþórs þar
sem hann raulaði lagið, settist hver á sinn stað
og talið var í. Höfundurinn söng laglínuna á
meðan spilað var og sjaldnast þurfti að taka
hvert lag upp nema tvisvar, einstaka sinnum
þrisvar. Síðan voru gerðar smávægilegar lag-
færingar en annars var grunnurinn tilbúinn.
„Hvert lag tók 15 til 20 mínútur. Þannig var
unnið í rúma viku þangað til allt var klárt.“
Hér heima var tekin upp spilamennska 12
strengjaleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands,
einnig blásturshljóðfæraleikara, frekari áslátt-
ur og allur söngur en 21 söngvari er á Fuglum
hugans. „20 söngvarar og ég,“ segir Bjarni
Hafþór og hlær. „Þórir færði nefnilega fyrir
því alls konar rök að ég ætti að syngja ákveðin
lög og ég hef reyndar fengið hrós fyrir söng-
inn, m.a. frá Björgvini Halldórssyni.“
Bjarni Hafþór kveðst býsna montinn vegna
þess og er sérstaklega ánægður með heildar-
útkomuna. Segist hafa fengið frábær viðbrögð.
„Ýmsir fagmenn sem vel þekkja til lýsa mikilli
hrifningu með allan frágang og vinnslu, sem er
mjög gleðilegt. Það er mín lukka að starfa með
Þóri Úlfarssyni. Vegna þess að hann er ein-
stæður faðir tveggja drengja býr Þórir á Ís-