Morgunblaðið - 24.05.2018, Qupperneq 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Nánar á www.BILO.is
Eigum til afhendingar strax nýja vinnuflokkabíla,
7mannameð palli og 6mannameð sendirými.
INNUBÍLAR - FORDTRANSITI
Verð
4.490.000
+vsk
6manna
7manna
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Þingmenn úr röðum repúblikana og
demókrata á þingi Bandaríkjanna
hafa lagst gegn eftirgjöf Donalds
Trump forseta í samningaviðræðum
við stjórnvöld í Kína um viðskipti
landanna. Þingmennirnir hafa gert
ráðstafanir til að koma í veg fyrir að
stjórn Trumps geti aflétt refsiaðgerð-
um gegn kínverska fjarskiptarisanum
ZTE og dregið úr takmörkunum við
útflutningi á tækjum sem hægt væri
að nota til að njósna um Bandaríkja-
menn eða efla her Kína. Þingmenn-
irnir óttast að slíkar tilslakanir geti
stefnt þjóðaröryggi Bandaríkjanna í
hættu, að því er fram kemur í frétt
The Wall Street Journal.
Embættismenn landanna náðu ný-
lega samkomulagi um drög að samn-
ingi sem fæli í sér að bandarísk fyrir-
tæki gætu að nýju selt kínverska
fjarskiptafyrirtækinu tæknibúnað og
að aflétt yrði banni sem viðskipta-
ráðuneyti Bandaríkjanna setti við við-
skiptunum í síðasta mánuði. Talið er
að bannið geti orðið til þess að stór-
fyrirtækið verði gjaldþrota.
Samkvæmt samkomulaginu áttu
stjórnvöld í Kína að afnema tolla á
bandarískar landbúnaðarvörur sem
fluttar eru út til landsins, að því er
The Wall Street Journal hefur eftir
heimildarmönnum í báðum löndun-
um. Talið er að eitt af markmiðunum
með eftirgjöfinni hafi verið að hjálpa
Xi Jinping, forseta Kína, og fá hann til
að liðka fyrir viðræðum við einræðis-
stjórnina í Norður-Kóreu um að hún
afsali sér kjarnavopnum.
Donald Trump skýrði frá eftirgjöf-
inni í tísti á Twitter. Hann sagði að
þeir Xi Jinping væru að „vinna saman
að því að gera risastóru kínversku
símafyrirtæki, ZTE, kleift að hefja
viðskipti að nýju, fljótt. Of mörg störf
í Kína tapast. Viðskiptaráðuneytinu
hefur verið sagt að koma þessu í
verk!“
Margir þingmenn og embættis-
menn leyniþjónustu- og öryggisstofn-
ana Bandaríkjanna reiddust þessari
yfirlýsingu. Ástæðan er sú að við-
skiptaráðuneytið í Washington hefur
sakað fjarskiptafyrirtækið um að hafa
látið hjá líða að refsa starfsmönnum
þess sem bera ábyrgð á brotum á
refsiaðgerðum gegn klerkastjórninni
í Íran og einræðisstjórninni í Norður-
Kóreu. Bandarískir embættismenn
hafa einnig sagt í mörg ár að ZTE og
annað kínverskt fjarskiptafyrirtæki
geti notað búnað sinn til að njósna um
Bandaríkjamenn, en bæði fyrirtækin
neita því.
Bandarísk yfirvöld ákváðu í mars
að sekta ZTE um 1,2 milljarða doll-
ara, jafnvirði tæpra 130 milljarða
króna, og viðskiptaráðuneytið ákvað
síðan í apríl að banna bandarískum
fyrirtækjum að selja fjarskiptarisan-
um tæknibúnað og hluti sem notaðir
eru til að framleiða farsíma. Trump
sagði í fyrradag að hann sæi fyrir sér
að bannið yrði afnumið gegn því m.a.
að ZTE greiddi sekt að andvirði allt
að 1,3 milljarða dollara til viðbótar, að
sögn fréttaveitunnar AFP.
„Þetta er ekki að sigra“
Eftirgjöfin varð til þess að banka-
nefnd öldungadeildar Bandaríkja-
þings samþykkti einróma í fyrradag
drög að frumvarpi um að herða tak-
markanir við útflutningi á tæknibún-
aði til Kína, auka eftirlit til að tryggja
að útflutningurinn stefndi ekki
þjóðaröryggi í hættu og torvelda
stjórn Trumps að aflétta refsiaðgerð-
unum gegn ZTE.
27 repúblikanar og demókratar í
öldungadeildinni birtu einnig bréf þar
sem þeir hvöttu samningamenn
Trumps til að hafna hvers konar til-
lögum Kínverja um að Bandaríkin
drægju úr takmörkunum við sölu á
tæknibúnaði til að auka útflutninginn
til Kína. Þingmennirnir sögðu að
hafna þyrfti hvers konar samningi
sem myndi auðvelda sölu á búnaði
sem gæti verið mikilvægur í hernaði,
gert Kínverjum kleift að efla her sinn
og grafið undan þjóðaröryggishags-
munum Bandaríkjanna. Þeir lögðust
einnig gegn því að viðskiptabanninu á
kínverska fjarskiptafyrirtækið yrði
aflétt.
The Wall Street Journal segir að
Kínverjar hafi í byrjun maí lagt fram
tillögu um að slaka á þessum tak-
mörkunum og embættismenn úr röð-
um samningamanna Trumps hafi
íhugað að samþykkja hana til að auka
útflutninginn til Kína. Embættis-
menn öryggisstofnana hafi hins vegar
lagst gegn tillögunni og komið í veg
fyrir að hún yrði rædd frekar.
Á meðal repúblikana sem skrifuðu
undir bréfið er Marco Rubio, þing-
maður frá Flórída. Hann gagnrýndi
eftirgjöfina í ZTE-málinu á Twitter
og hét því að öldungadeildin myndi
koma í veg fyrir hana. „Því miður eru
samningamenn Kína að skjóta okkur
ref fyrir rass og sigra í viðskiptavið-
ræðunum núna,“ tísti Rubio. „Þeir
hafa komist hjá tollum og náð samn-
ingi um ZTE án þess að fallast á neina
mikilvæga tilslökun með því að nota
viðræðurnar við Norður-Kóreu og
landbúnaðarmálin til að styrkja
samningsstöðu sína. Þetta er ekki að
sigra.“
Orðalagið bendir til þess að tístið
hafi verið ætlað sem skot á Trump,
sem hefur lýst sér sem sigurvegara
og afburðasnjöllum samningamanni.
N-Kórea mikilvægur þáttur í
viðskiptaviðræðunum
Forsetinn sagði á blaðamannafundi
í Hvíta húsinu í fyrradag að viðræð-
urnar við Norður-Kóreu hefðu mikil
áhrif á viðræðurnar við Kína um við-
skipti. „Þegar ég hugsa um viðskiptin
við Kína hugsa ég einnig um hvað þeir
gera til að hjálpa okkur að semja um
frið við Norður-Kóreu. Það er mjög
mikilvægur þáttur,“ hefur fréttavefur
CNN eftir Trump.
Forsetinn sagði einnig á blaða-
mannafundinum að hann myndi af-
lýsa eða fresta fyrirhuguðum fundi
með Kim Jong-un, leiðtoga einræðis-
stjórnarinnar í Norður-Kóreu, ef
hann samþykkti ekki fyrst skilyrði
Bandaríkjastjórnar. Trump vildi ekki
svara því hvaða skilyrði hann setti en
áréttaði síðar að Norður-Kóreustjórn
þyrfti að samþykkja kjarnorkuaf-
vopnun.
Stefnt hefur verið að því að leið-
togafundurinn verði haldinn í Singa-
púr 12. júní en óvissa er um hvort af
honum verði vegna nýlegra yfirlýs-
inga Norður-Kóreustjórnar sem hafa
kynt undir efasemdum um að hún sé í
raun og veru reiðubúin að afsala sér
kjarnavopnum þótt hún hafi lofað því
að stefna að kjarnorkuafvopnun á
Kóreuskaga.
Trump áréttaði þó í fyrradag að
hann teldi enn að Kim væri „svo
sannarlega mjög einlægur“ í loforð-
um sínum um kjarnorkuafvopnun.
Áður hafði forsetinn sagt að hann
teldi Kim hafa verið „mjög hreinskil-
inn“ og „mjög heiðvirðan“ í viðræðun-
um um málið.
Sumir fréttaskýrendur telja að við-
ræðurnar við Norður-Kóreu hafi svo
mikla pólitíska þýðingu fyrir forset-
ann að hann sé tilbúinn að gera næst-
um hvað sem er til að tryggja að leið-
togafundurinn verði haldinn. Þeir
skírskota meðal annars til þess að
stuðningsmenn hans hafa talað um að
Trump verðskuldi friðarverðlaun
Nóbels fyrir að knýja Norður-Kóreu-
stjórn til samninga um kjarnorkuaf-
vopnun. Þeir óttast að hann sé að búa
sig undir að lýsa yfir sigri í viðræðun-
um og sætta sig við samning sem fæli
til að mynda í sér að Norður-Kóreu-
stjórn héti því að eyða eldflaugum,
sem gætu dregið til Bandaríkjanna,
án þess að fallast á algera kjarnorku-
afvopnun.
Hafna eftirgjöf Trumps
Repúblikanar og demókratar á Bandaríkjaþingi leggjast gegn tilslökun Trumps í viðskiptaviðræðum
við Kínverja Þingmennirnir hafna afnámi banns við sölu á tæknibúnaði til að auka útflutning til Kína
Kjarnorkutilraunasvæði Norður-Kóreustjórnar
Heimildir: USGS/Yonhap/Stjórnvöld í
Suður-Kóreu/38north.org/DigitaGlobe
Norður-
göng
Austur-göng,
um 800 m
löng
*38 North er verkefni á vegum
stofnunar Johns Hopkins-háskóla
sem sérhæfir sig í rannsóknum á
málefnum Norður-Kóreu
Kjarnorkutilraunasvæðið í grennd
við þorpið Punggye-ri er í fjalli í
norðaustanverðu landinu. Sex
kjarnorkusprengjur voru sprengdar
þar í tilraunaskyni, síðast
í september 2017
Einræðisstjórn
Norður-Kóreu tilkynnti
fyrr í maí að hún hygðist
„gereyðileggja“
kjarnorkutilraunasvæðið
Erlendum fréttamönnum
var boðið að fylgjast
með eyðileggingu
ganga sem voru notuð í
kjarnorkutilraununum
Skrifstofur og
fleiri byggingar
Vestur-
göng
Suður-
göng100 m
Byggist á
gervihnattamyndum
sem sérfræðingar 38 North
rannsökuðu*
PJONGJANG
75 km
SEOUL
KÍNA
Punggye-ri-
kjarnorku-
tilraunasvæðið
Yongbyon-
kjarnorkustöðin
SUÐUR-
KÓREA
NORÐUR-
KÓREA
Útsýnispallur þar
sem fréttamenn
geta fylgst með
eyðileggingu
ganganna
Eins og að eyðileggja
sönnunargögn
» Hópur erlendra fréttamanna
hóf í gær um 20 klukkustunda
ferð til kjarnorkutilraunasvæð-
is Norður-Kóreustjórnar í
grennd við þorpið Punggye-ri.
» Einræðisstjórnin hefur lofað
að eyðileggja kjarnorku-
tilraunasvæðið og boðið er-
lendum fréttamönnum að
fylgjast með eyðileggingu
ganga sem hafa verið notuð til
kjarnorkutilrauna. Fréttamenn-
irnir fara þangað með lest og
rútu og gert er ráð fyrir að
eyðilegging ganganna hefjist í
dag eða á morgun.
» Engum erlendum vopna-
eftirlitsmönnum eða sérfræð-
ingum var boðið að fylgjast
með eyðileggingu ganganna.
» Verði göngin eyðilögð geta
erlendir sérfræðingar ekki tek-
ið sýni úr þeim til að afla upp-
lýsinga um hvers konar kjarn-
orkusprengjur voru sprengdar
í þeim í tilraunaskyni. Segja
má að með því að eyðileggja
göngin sé Norður-Kóreustjórn
að eyðileggja sönnunargögn,
að sögn vopnasérfræðinga.