Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 50
50 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Helga Melkorka
Óttarsdóttir, lögmað-
ur og framkvæmda-
stjóri lögfræðistof-
unnar LOGOS, var í
viðhafnarviðtali í Við-
skiptablaðinu 26. apr-
íl sl. Í viðtalinu er
eftirfarandi haft eftir
Helgu Melkorku í
tengslum við svokall-
aða „metoo“-
byltingu:
„Við verðum aldrei söm. Við för-
um aldrei til baka. Það finnst mér
vera sterkast í þessu. Þetta er svo
mikið risamál að maður hefur
næstum fellt tár við að heyra
hvernig traðkað hefur verið á kon-
um, oftar en ekki í skjóli valds.“
Mér var afar brugðið við þessi
orð lögmannsins. Hún hefur und-
anfarin ár verið lögmaður Magn-
úsar Jónssonar, sem gengur undir
nafninu „Texashrottinn“, í
allsherjarmálaferlum við dóttur
mína, Hildi Ösp Þorsteinsdóttur,
en hún birti hroðalega frásögn
sína í DV hinn 16. mars sl. Þar
lýsti dóttir mín margra ára ofbeld-
issambandi við hrottann Magnús,
sem fólst í líkamlegu, andlegu og
kynferðislegu ofbeldi í skjóli valds
og peninga. Málaferli dóttur minn-
ar gegn hrottanum standa enn yf-
ir og hefur Helga Melkorka ekk-
ert dregið af sér í vörninni þrátt
fyrir að málstaður
skjólstæðings hennar
sé hrottalegt ofbeldi
gegn konum. Helga
Melkorka hefur nýtt
allar smugur í lögum
og réttarfari til að
koma málstað ofbeld-
ismannsins á fram-
færi.
Það er því mjög sér-
kennilegt hjá lög-
manni, sem segist
finna til með fórn-
arlömbum ofbeldis, að
taka að sér vörn fyrir ofbeldis-
mann. Gæti verið að peningar
lékju þar stórt hlutverk? Á heima-
síðu LOGOS kemur fram að heið-
arleiki, fagmennska og metnaður
sé sá grunnur sem fyrirtæki
Helgu Melkorku byggist á. Eftir
framgöngu hennar fyrir hönd
Magnúsar Jónssonar Texashrotta
gef ég lítið fyrir þau gildi.
Málsvari
ofbeldismanns
Eftir Þorstein
Vilhelmsson
Þorsteinn
Vilhelmsson
» Það er mjög sér-
kennilegt hjá lög-
manni sem segist finna
til með fórnarlömbum
ofbeldis að taka að sér
vörn fyrir ofbeldis-
mann.
Höfundur er faðir Hildar Aspar.
Einn þeirra fjöl-
mörgu, íslensku máls-
hátta sem hitta nagl-
ann nákvæmlega á
höfuðið er þessi: „Um-
gengni lýsir innri
manni“. Hér áður fyrr
voru orð eins og
„þrifnaður“ og „hirðu-
semi“ veigamikil hrós-
yrði gesta sem komu á
ókunnuga bæi og þá
jafnframt hrósyrði
gagnvart þeim sem þar fóru með
húsbóndavald. Hirðusemi lýsir svo
sannarlega mikilvægum mann-
kostum. Hún er vitnisburður um
virðingu okkar fyrir verðmætum,
umhverfi og öðrum einstaklingum.
Hirðuleysi ber hins vegar vott um
leti, ómennsku og skort á virðingu.
Minni umhirða – vaxandi frjó-
kornaofnæmi
Ég hef stundum áður vakið at-
hygli á þeirri dapurlegu staðreynd
að núverandi borgaryfirvöld hafa
verið eftirbátar allra sinna forvera í
umgengni. Reykjavík hefur aldrei
verið sýnt eins mikið hirðuleysi og
nú á tveimur síðustu kjör-
tímabilum. Grasfletir hafa verið
slegnir mun sjaldnar en áður og
umhirða útvistarsvæða minni með
tilheyrandi vaxandi frjókornaof-
næmi. Á sama tíma hefur nem-
endum í 8. bekk grunnskóla verið
ítrekað neitað um sumarvinnu hjá
borgaryfirvöldum. Undantekningin
er þó að vísu nú í sumar enda
kosningavor. Áttundubekkingar
mega því búast við
sumarvinnu á fjögurra
ára fresti – þegar kos-
ið er til borg-
arstjórnar.
Skrefagjald og
spánnýir sorp-
skattar
Stefna borgaryf-
irvalda í sorphirðu- og
sorpeyðingarmálum
hefur verið jafn
óheppileg og hún er til
fyrirmyndar í ýmsum
nágrannasveit-
arfélögum Reykjavíkur. Hér hefur
öll viðleitnin farið í það að vekja
tortryggni og óánægju borgarbúa í
stað þess að vinna í sameiningu
með almenningi að því að auka og
vanda flokkun úrgangs. Dregið hef-
ur úr tíðni sorphirðu í Reykjavík,
sérstakar bláar tunnur seldar á
okurverði, sendir út mælingamenn
um alla borg til að mæla fjarlægð
sorptunna frá gangstéttarbrún og
nýr skattur eða skrefagjald lagt á
þá sem hafa tunnurnar meira en 15
metra frá brúninni. Borgarbúum
var jafnvel hótað með ruslatunnu-
löggæslumönnum sem áttu að
hnýsast í einkalíf fólks með því að
róta í sorptunnum þess. Nýjasta
útspilið hjá borgaryfirvöldum í
þessum málaflokki eru djúpgámar
sem nú á að koma fyrir hér og þar
um borgina með enn nýjum gjöld-
um á borgarbúa.
Veggjakrot á opinber mannvirki
og fasteignir einstaklinga hefur nú
stóraukist aftur, hvoru tveggja í og
við miðbæinn og í úthverfum, eftir
að verulega dró úr því fyrir um
áratug þegar farið var í sérstakt
átak til að stemma stigu við þessari
hvimleiðu skemmdarstarfsemi. En
borgaryfirvöld láta sér fátt um
finnast eins og búast mátti við.
Borgarstjóri í felum
Alvarlegt umhverfisóhapp átti
sér stað er klóakfrárennsli Vestur-
bæinga rann óhindrað út í fjöruna
við Ægisíðu, vikum saman, án þess
að gerðar yrðu ráðstafanir og án
þess að borgaryfirvöld sæju ástæðu
til að tilkynna borgarbúum um
þessa mengun við mjög fjölfarna
útivistarstíga. Þegar fjölmiðlar
reyndu að hafa uppi á borgarstjóra
til að fá fréttir og skýringar á
óhappinu og furðulegum við-
brögðum yfirvalda, þá lét hann
aldrei ná í sig. Hann var yfir það
hafinn að blanda sér í pípulagnir.
Þá hefur drykkjarvatn Reykvíkinga
mengast nokkrum sinnum í vetur,
vegna viðhaldsleysis, auk þess sem
svifryksmengun í Reykjavík hefur
aukist gífurlega vegna samgöngu-
stefnu borgaryfirvalda.
Allt eru þetta dæmi um fádæma
hirðuleysi sem ber ótvíræðan vott
um virðingarleysi gagnvart um-
hverfi okkar og samfélagi.
Búskussar í borginni
Eftir Mörtu
Guðjónsdóttur »Reykjavík hefur
aldrei verið sýnt
eins mikið hirðuleysi og
nú á tveimur síðustu
kjörtímabilum.
Marta Guðjónsdóttir
Borgarfulltrúi
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
SÖLUAÐILAR
Reykjavík:
Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588
Meba Kringlunni s: 553-1199
Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900
Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900
Kópavogur:
Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320
Meba Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður:
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar
s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49
s: 421-5757
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi
s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður
Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður
Austurvegi 11 s: 482-1433
Vestmannaeyjar:
Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333