Morgunblaðið - 24.05.2018, Síða 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2016 Suburban LTZ
Glæsilegur 7 manna bíll, 4 kapteinsstólar.
Með sóllúgu, hiti í stýri, loftkæld og hituð sæti.
22” felgur. 5,3L V8, 355 hö. Keyrður 2400km.
Öll standsetning innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
12.990.000 m.vsk
2018GMCSierraSLT35”breyttur
Litur: Dark slate, svartur að innan.
Einnig til í lager: blár, silver og vínrauður
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur.
35” breyttur með kanta, 35” dekk og VISION felgur
Standsetning innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
10.290.000 m.vsk
2018 GMC Sierra SLT
Q6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og
loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning
innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
Litur: Stone blue, svartur að innan.
Einnig til Dark Slate, Silver og Red Quartz
VERÐ
9.590.000 m.vsk
RENAULT GRAND
SCENIC ZEN INTENSE
Dísel,sjálfskiptur. Rnr.248388.
Verð frá 3.890.000,-
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
Eigum fleiri útfærslur og liti á staðnum
NÝ
R B
ÍLL 7MANNA
Núverandi meiri-
hluti Reykjavík-
urborgar hefur lagt
ofurkapp á að flug-
völlurinn fari úr
Vatnsmýrinni, hvað
sem það kostar, því
þeir segja að það
þurfi lóðir til að
byggja fleiri íbúðir í
miðbænum í sam-
ræmi við þrenging-
arstefnu þessara
flokka sem vilja gera Reykjavík að
Dubai norðursins fyrir ríka al-
þjóðlega borgara. Lóðir í Vatns-
mýri verða mjög dýrar og hvað þá
bygging fjölbýlishúsa í botnslausri
mýri sem eiga að þola jarðskjálfta
7 á Richter án þess að haggast
eða halla. Verð íbúða í þessum
húsum yrði sko ekki fyrir ungt
fjölskyldufólk. En þau munu aldr-
ei rísa því flugvöllurinn verður
áfram í Vatnsmýrinni!
Skoðaðir hafa verið 25 mismun-
andi staðir fyrir flugvöll fyrir inn-
anlandsflug í nágrenni Reykjavík-
ur og seinasta athugun mælti
aðeins með einum stað til frekari
skoðunar; Hvassahrauni. Þeir
flugmenn sem til þekkja segja
þann stað alls ekki koma til greina
vegna þess að hann er í einni að-
flugslínu til Keflavíkurflugvallar
og vegna vafasamra veðurskilyrða,
verulegrar hættu ísingar auk þess
sem völlurinn yrði í hrauni og á
vatnsverndarsvæði þannig að af-
ísing véla og lendingarbrauta mun
eyðileggja það. Já, svo er það
kostnaðurinn sem er áætlaður yfir
200 milljarðar króna! Miðflokk-
urinn svo og 75% þjóðarinnar vilja
að flugvöllurinn verði áfram í
Vatnsmýrinni og verði tafarlaust
endurbættur til að þjóna betur
innanlandsflugi og sem vara-
flugvöllur millilandaflugs því hann
getur núna tekið á móti 24 þotum
í neyðartilvikum. Þá verða lend-
ingarbrautir lagfærðar og neyð-
arflugbrautin tekin aftur í notkun.
Þessi tillaga núverandi meiri-
hluta í Reykjavík í samgöngu-
málum gengur út frá
því að nýi flugvöll-
urinn verði fjármagn-
aðar í samgönguáætl-
un ríkissjóðs en ekki
af útsvarsgreiðslum
Reykvíkinga. Lands-
menn allir eiga sem
sagt að taka á sig
fjármögnun þessa
dýra samgöngu-
gæluverkefnis en ekki
má gleyma að Reyk-
víkingar greiða einnig
skatta í ríkissjóð.
Það er alveg ljóst
að það er ekki áhugi á Alþingi Ís-
lendinga fyrir þessu óskynsamlega
samgöngugæluverkefni Dags því
það er tugur annarra samgöngu-
verkefna sem eru meira aðkallandi
um land allt, eins og lagning og
viðhald vega, fækkun einbreiðra
brúa, jarðgöng eins og Sunda-
göng. Í flugmálum eru einnig
meira aðkallandi verkefni tengd
öryggismálum eins og viðhald og
stækkun flugvalla á Akureyri og
Egilsstöðum vegna alþjóðlegra
flugsamgangna og til að þjóna
sem varaflugvellir millilandaflugs
með nútíma GPS-staðsetningar-
og lendingarkerfum, stækkun
flughlaða fyrir fleiri og stærri vél-
ar svo og lenging og fjölgun flug-
brauta. Einnig lagfæring minni
flugvalla um land allt vegna
sjúkra- og útsýnisflugs. Þá er
bygging samgöngumiðstöðvar við
Reykjavíkurflugvöll á áætlun.
Ofannefnt 200 milljarða sam-
göngugæluverkefni núverandi
meirihluta Reykjavíkurborgar er
því óskynsamlegt og ofloforð í að-
draganda borgarstjórnarkosninga.
Hvað finnst þér, kjósandi góður?
Flugvöllurinn verður
í Vatnsmýrinni
Eftir Jón Hjaltalín
Magnússon » Þetta 200 milljarða
samgöngugælu-
verkefni núverandi
meirihluta Reykjavíkur-
borgar er því óskyn-
samlegt og ofloforð í
aðdraganda borg-
arstjórnarkosninga.
Jón Hjaltalín
Magnússon
Höfundur er verkfræðingur og fram-
bjóðandi Miðflokksins í Reykjavík.
Nú í aðdraganda
kosninga keppast
framboð við að lofa
kjósendum bót og
betrun í borginni.
Loforðin eru misraun-
hæf og sum jafnvel
óraunhæf með öllu.
Hér mætti nefna
stærstu kosningalof-
orð Samfylkingar –
Borgarlínu strax og
Miklubraut í stokk – sem verða
ekki fjármögnuð án stórkostlegrar
skuldsetningar.
Það er vissulega mikilvægt að
fjárfesta í bættum almennings-
samgöngum. Það verður nauðsyn-
legur liður í lausn samgöngu-
vandans. Hér þarf þó útfærðar,
raunhæfar og skynsamlegar lausn-
ir. Hófsömustu áætlanir um Borg-
arlínu gera ráð fyrir 70 milljarða
kostnaði og virðist fullkomlega
óljóst hver – ef nokkur – aðkoma
ríkis og annarra sveitarfélaga verð-
ur að verkefninu. Þá má hafa í
huga að opinberum framkvæmdum
hættir til að fara langt fram úr
kostnaðaráætlunum.
Eins mætti vel ímynda sér bíla-
umferð Miklubrautar neðanjarðar
sem losað gæti byggingarland á eft-
irsóttu svæði borgarinnar. Sú hug-
mynd kemur upphaflega frá Sjálf-
stæðisflokknum. Á þessu stigi er
tillagan þó óútfærð og hóflegar
áætlanir gera ráð fyrir 21 milljarðs
kostnaði. Engin svör hafa fengist
um skipulag framkvæmdarinnar
eða tímaramma hennar – eða nokk-
uð annað sem skipt gæti máli við
útfærsluna.
Samfylkingin virðist hafa gleymt
að huga að fjármögnun þessara
risavöxnu loforða áður en farið var
að framleiða markaðsefni. Við stutt-
lega skoðun á fjármálum borg-
arinnar sést glöggt að reksturinn
getur ekki staðið undir fram-
kvæmdum af þessum toga – nema
með stórkostlegri og óráðlegri
skuldsetningu.
Nýbirtur ársreikningur Reykja-
víkurborgar sýnir glöggt að enginn
afgangur er af venjubundnum
rekstri borgarinnar sem staðið gæti
undir framkvæmdum, fjármagns-
kostnaði eða fjárfestingum, nema
gripið verði til frekari eignasölu.
Þessi staða er uppi nú
á toppi hagsveiflunnar
þegar skatttekjur á
hvern íbúa hafa aldrei
verið hærri að raun-
virði.
Þá hafa skuldir
borgarinnar aukist um
45% á kjörtímabilinu,
þrátt fyrir 30 milljarða
aukningu á skatt-
tekjum árlega. Lang-
tímaskuldir, eða hin
eiginlega lántaka borg-
arinnar hefur aukist um fjórðung.
Því er varla hægt að komast að
annarri niðurstöðu en þeirri að
rekstur Reykjavíkurborgar standi
ekki undir frekari skuldsetningu.
Eina haldreipi meirihlutans gæti
verið þær 15 milljarða arðgreiðslur
frá Orkuveitunni sem meirihlutinn
hefur boðað. Arðgreiðslur sem
stæðu eingöngu undir agnarsmáum
hluta þeirra framkvæmda sem lofað
er. Eðlilegra væri að nýta svigrúm í
rekstri Orkuveitunnar til að lækka
þjónustugjöld til borgarbúa. Þess í
stað heldur meirihlutinn álögum í
hámarki og þjónustugjöldum í há-
marki. Allt á kostnað borgarbúa.
Ekki eingöngu væri óráðlegt að
steypa borgarsjóði í frekari skuldir
svo fjármagna megi óábyrg kosn-
ingaloforð, heldur væri það senni-
lega beinlínis ógerlegt. Hver ætti
annars að veita þá risavöxnu fyrir-
greiðslu sem þyrfti til verksins?
Áætlanir Samfylkingarinnar
byggjast því miður á fjárhagslegum
sjónhverfingum. Stóru útgjaldalof-
orðin verða aldrei að veruleika fyrr
en borgarsjóður hefur undirgengist
heilmikla tiltekt. Auðvitað á að
byrja á réttum stað. Það þarf að
taka til í rekstri borgarinnar,
minnka yfirbygginguna og greiða
niður skuldir. Lækka álögur og
þjónustugjöld. Sýna ábyrgð og ráð-
deild þegar sýslað er með fjármuni
borgarbúa.
Fjárhagslegar
sjónhverfingar
Eftir Hildi
Björnsdóttur
Hildur Björnsdóttir
» Áætlanir Samfylk-
ingar eru því miður
byggðar á fjárhags-
legum sjónhverfingum.
Höfundur skipar 2. sætið á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
hildurbjornsdottir@gmail.com