Morgunblaðið - 24.05.2018, Síða 57
UMRÆÐAN 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
SJÓNMÆLINGAR
Í OPTICAL STUDIO
Íslendingar eru
komnir það langt í
þróunarferlinu að það
ætti að vera hægt að
gera betur fyrir eldri
borgara. Hvers vegna
er ástandið eins og
það er?
EIR-málið
gaf tóninn
Árið 2010 birtist
auglýsing á bls. 21 í
Morgunblaðinu með hamingju-
óskum til hjúkrunarheimilisins
Eirar sem hafði þá nýlega tekið í
notkun 111 glæsilegar öryggis-
íbúðir í Fróðengi í Grafarvogi.
Þessa auglýsingu birtu Gildi líf-
eyrissjóður, Stafir lífeyrissjóður,
Lífeyrissjóður verzlunarmanna,
Sameinaði lífeyrissjóðurinn og
Virðing. Í nóvember 2012 var
verkefnið búið að setja húsrekstr-
arsjóð Eirar í þrot og eldri borg-
arar glötuðu a.m.k. tveimur millj-
örðum.
Kastað ryki í augu
eldri borgara
Ríkisendurskoðun kannaði með-
ferð með smáaura miðað við tvo
milljarðana sem hurfu frá eldri
borgurum enda ekki heimilt sbr.
svar Sveins Arasonar, þv. ríkis-
endurskoðanda, sem birt var á
mbl.is 7. nóvember 2012: „Stofn-
unin telur sér hins vegar óheimilt
að taka að sér fjárhagslega úttekt
á fjárhagsvanda húsrekstrarsjóðs
Eirar, enda er rekstur hans óvið-
komandi ríkissjóði,“ sagði í svari
hans. Málið er því að efninu til
óuppgert.
Aðeins hafa verið afhentir nán-
ast verðlausir pappírar í formi
skuldabréfa sem enginn getur los-
að sig við án affalla sem þekkist
varla á byggðu bóli.
Það kann að vera að einhver sé
sáttur við þessa afgreiðslu en
hvers vegna má ekki leita leiða
fyrir hina sem ósáttir eru og eiga
um sárt að binda vegna þessa?
Eigum við að afgreiða málin svona
og skilja sárin eftir opin? Nei!
Eignir Mosfellinga
Almenningur í Mosfellsbæ af-
henti bænum á sínum tíma nánast
skuldlausar eignir sem byggðar
voru upp fyrir sjálfsaflafé fé-
lagasamtaka í Mosfellsbæ. Voru
bænum afhentar þessar eignir til
varðveislu. Þegar Eir var stofnað
voru þessar eignir færðar inn í Eir
sem eiginfjárframlag bæjarins en
hvernig hafa þær varðveist þar? Í
heild glötuðust átta milljarðar í
Eirar-málinu og þar af tveir millj-
arðar frá eldri borgurum. Hvað
varð um eignir bæjarins?
Hver er og var ábyrgð meiri-
hlutans í Mosfellsbæ þegar litið er
til setu þeirra manna
í stjórn Eirar? Hvern-
ig brugðust þeir við
og hvers vegna er
enginn vilji til að
rannsaka þegar um
tveir milljarðar gufa
upp hjá gömlu fólki
sem má ekki vamm
sitt vita?
Við erum öll í skuld
við eldri borgara og
eigum að rannsaka
þetta skelfilega mál
og leita leiða til að
krefja ríkið og aðra
þá sem að þessu máli komu til að
finna leiðir til sanngirnisbóta til
handa þeim eldri borgurum, og
eftir atvikum aðstandendum, sem
hafa glatað sínu.
Bitnar á þjónustu og
gæðum, leigu og gjöldum
Í dag spyrja eldri borgarar sig
hvers vegna í ósköpunum leigan á
öryggisíbúð eða þjónustuíbúð sé
komin í um 250.000 krónur á mán-
uði. Það er ekki að undra að fólk
spyrji. Lögmálin í þessu efni láta
ekki að sér hæða frekar en fyrri
daginn.
Ástæðan er í grunninn að þegar
illa er farið með fjármuni, menn
reisa sér og öðrum hurðarás um
öxl og geta ekki höndlað með
verkefnin sem þeim er treyst fyrir
eru fjármunir sóttir til þeirra sem
síst skyldi. Þetta er vel þekkt.
Hefðu menn haldið vel utan um
fjármálin á þessum tíma, gætt að
réttindum eldri borgara t.a.m. með
þinglýsingum þeirra og tryggt
hagkvæm innkaup án umboðs-
vanda má ætla að ná hefði mátt
niður verðlagi og þannig leigunni
til lengri tíma. Svona er þetta,
þetta er ekkert flókið.
Meirihlutinn í Mosfellsbæ
Þegar lesið er um brúðkaups-
gjafir, sem stjórn Eirar borgaði
fyrir fyrrverandi stjórnarformann
sinn, og gjafakort frá Icelandair til
handa ættmennum framkvæmda-
stjóra Eirar, auk smíðavinnu verk-
taka Eirar fyrir framkvæmda-
stjórann, leiðir maður óneitanlega
huga að bæjarstjórn Mosfells-
bæjar.
Þáverandi framkvæmdastjóri
Eirar greiddi til baka kr. 200.000
gjafakort Icelandair en eldri borg-
arar glötuðu kr. 2.000.000.000.
Meirihlutinn í Mosfellsbæ hefur
aldrei gert upp mál varðandi fram-
sal lóða við Hulduhóla. Átt er við
lóðaleigusamninga sem Mosfells-
bær, fráfarandi byggingarfulltrúi
þar á bæ, gaf út í skjóli nætur án
þess að það væri borið undir bæj-
arráð. Jafnræði öreiganna varð þá
einhvern veginn aðeins fyrir einn
eldri borgara í Mosfellsbæ.
Meirihlutinn dregur fjöður yfir
þetta mál allt rétt eins og það sem
varðaði eldri borgara sem glötuðu
kr. 2.000.000.000. Þetta snýr allt
að umboðsvanda sem gegnsýrir
samfélagið í Mosfellsbæ langt ofan
í rætur þess. Það er óhollt. Því
verður að breyta en þetta breytir
sér ekki sjálft.
Ómenning í stjórnmálum
og fjármálum
Svo virðist sem innan meirihlut-
ans í Mosfellsbæ ríki enn ómenn-
ingin sem endurspeglast í orðum
eins útrásarvíkingsins: „Ég á þetta
og því má ég þetta.“ Þetta ber allt
að sama brunni umboðsvanda og
fjármálaóreiðu. Það svo endar með
því að í grunnstoðir samfélagsins
skortir fjármuni.
Það er sem Mosfellingar hafi
ekki gert upp hrunið og það að
rannsaka ekki Eirarmálið er van-
virðing við eldri borgara og þær
kynslóðir sem eru á leið í þessa
átt, þ.e. við öll hin.
Rannsökum Eirarmálið. Mælum
fyrir sanngirnisbótum þar sem
farið hefur verið illa með saklaust
fólk.
Illa farið með eldri borgara
í Mosfellsbæ og víðar
Eftir Svein Óskar
Sigurðsson »Hver er og var
ábyrgð meirihlutans
í Mosfellsbæ þegar litið
er til setu þeirra manna
í stjórn Eirar?
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Höfundur viðskiptafræðingur,
M.Sc. í fjármálum fyrirtækja og
skipar 1. sæti á lista Miðflokksins
í Mosfellsbæ fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar.
www.facebook.com/Midflokkurinn-
Moso
Allt um
sjávarútveg