Morgunblaðið - 24.05.2018, Síða 63
samt fram eftir degi með að stíga of-
an í ylvolga laugina en tókst á við
hverja hríð í alls konar stellingum
uppi í rúmi til að auka líkur á að
Klumpur svokallaði kæmi niður með
réttum hætti. Stúlkurnar mínar þrjár
höfðu nefnilega allar komið skakkar
niður og lengt fæðingar mínar mun
meira en raunverulegt tilefni hefði
verið til. Þegar ég fann þörfina fór ég
í laugina og þvílík dásemdartilfinning
að finna vatnið umlykja bumbu og
bak – ólýsanlegur léttir! Í hverri hríð
hékk ég á sundlaugarkantinum með
hendurnar utan um Þorleif minn,
kreisti hann í bak og fyrir, reif í föt
hans og andaði haföndun í takt við
hans. Þess á milli svamlaði ég um,
spjallaði við fjölskylduna mína og
grínaðist eins og ekkert væri í gangi.
Þegar klukkutímarnir liðu var ég orð-
in aðeins þreyttari og dormaði inn á
milli til að hvíla mig fyrir næstu hríð.
Hopp og vatnsdans milli hríða
Þegar útvíkkun var mæld næst, í
kringum kvöldmat, var hún orðin átta
og ég sá fyrir endann á hafönd-
unargöngunum. Kollurinn var samt
ekki alveg á réttum stað svo í gang
fóru nokkrar aðgerðir til að pota hon-
um rétt niður og hleypa honum út.
Reboza-hristingur, hálfgert splitt í
hríðum, hægri og vinstri hliðarlegur,
vatnsdans og hopp milli hríða, ég var
tilbúin að gera hvað sem er og taldi
einfaldlega hugann á að gera allt til
að hjálpa syni mínum og sjálfri mér í
þessu ferli fæðingarinnar.
Þorleifur minn þreyttist ekki á að
minna mig á jógaöndunina og hélt
mér við efnið með hvatningarorðum:
„Þú ert hetja, þú ert svo dugleg, ég er
svo stoltur af þér, þú ert farvegur lífs-
ins, ég elska þig, þú getur þetta, haltu
áfram svona.“ Stundum urðu hríð-
arnar tvöfaldar og þrefaldar í tíma-
lengd og þá átti ég til að missa kjark-
inn, gleyma öndun og herpast saman
í von um að allur kraftur fæðing-
arinnar myndi hreinlega ganga til
baka og gefa mér hvíld. Svo var auð-
vitað ekki og eina sem virkaði var að
hlusta á ástmann minn og halda okk-
ar striki með haföndun og segja
linnulaust við hugann: ég get þetta,
ég get þetta, ég get þetta, mér er ætl-
að að geta þetta.
Ég var orðin svolítið þreytt og við
næstu skoðun kom í ljós að útvíkkun
var níu en herslumuninn vantaði upp
á til að klára síðustu metrana. Ég
missti aldrei móðinn samt, magnað
hvað kraftur og ást frá fjölskyldu
geta gefið á svona stundu; ef hönd
mín leitaði út í loftið í hríð var hún
takti og ég sjálf hefði alveg treyst
mér til að halda áfram heimavið. Það
ríkti ákveðin sorg í hjarta mínu og hjá
öllum á heimilinu við þessa ákvörðun
en við einhvern veginn töldum rétt að
fara samt, dagurinn var fullkominn,
núna var kominn tími til að klára
restina af ferðalaginu annars staðar.
Sonurinn borar sig út
Pabbi brunaði með okkur og Arn-
eyju ljósu þar sem tekið var á móti
okkur opnum örmum á fæðing-
ardeildinni. Yndislegar ljósmæður
lífsins, þær glöddu mig svo að vera til.
Ég rauk beinustu leið á fjóra fætur
upp í rúm og fékk glaðloft til að létta
mér lundina. Ég datt beint í grín-
gírinn sem hafði einkennt skap mitt
fram eftir degi og taldi mig finna alls
konar andfýlu og kúkalykt sem Þor-
leifur sannfærði mig um að væri alls
ekki til staðar. Ég leit á klukkuna,
23:34, og sagði: „Frábært! Hann
kemur ekki fyrr en 5. maí eins og ég
vildi því þá er alþjóðlegur dagur ljós-
mæðra.“ Mér fannst svo viðeigandi
að fá hann í fangið á þeim degi, bar-
áttu þeirra til heiðurs. Þær litu á Þor-
leif og hver á aðra, „nei, hann er sko
að koma í dag“, og með þeim orðum
byrjaði ég að rymja eins og ljón!
Ég fann þessa stórkostlegu tilfinn-
ingu sem við bíðum allar eftir á fæð-
ingardegi barna okkar. Hún ruddist
fram af miklum krafti og ég fann
hvernig sonur okkar boraði sig niður
fæðingarveginn á hraðri leið sinni út í
heiminn! Fyrsta hríðin af þremur
kom kollinum vel á veg út en ég fann
að ég myndi ekki ná að ýta honum öll-
um í þetta sinn og slakaði því á með
hafönduninni rosalegu sem nú var há-
værari en áður. Hann fór til baka og
ég beið stuttlega eftir næstu. Í henni
rumdi ég öllum mínum ljón-
ynjukröftum niður í fæðingarveginn
og höfuðið kom. Þessi tilfinning – að
finna barnið milli fóta þér, bein þess
og heita húð vera á leið út, það eru
ekki til nein orð. Ég slakaði á milli og
í næstu og síðustu hríð kom hann all-
ur – beint í hendurnar á pabba sínum
sem hágrét af hamingju með hann
blautan og sleipan, fór með hann milli
fóta mér og færði mér hann í fangið,
tók svo utan um okkur bæði og saman
vorum við búin að klára þetta! Saman
komum við syni okkar í heiminn kl
23:39, við og fjölskyldan okkar, ljós-
mæðurnar, haföndunin og hugurinn.
Takk elsku litli unginn minn fyrir
að koma í heiminn, við pabbi þinn og
fjölskylda öll elskum þig. Takk al-
heimur fyrir að gefa okkur tækifæri
til að elska svona mikið.
Fæðingin „Í henni rumdi ég öllum mínum ljónynjukröftum niður í fæðingarveginn og höfuðið kom.
strax gripin af dóttur, móður, föður
eða tengdamömmu. Ég leitaði til
þeirra allra eftir styrk í einni hríð,
hékk í fangi hvers og eins þeirra bæði
til að fá styrk, gefa ást og hvíla Þorleif
minn eitt augnablik. Hversu magnað!
Að upplifa hríð með hverju og einu
þeirra – aldrei mun nokkurt okkar
gleyma þeirri stund.
Þegar klukkan fór að nálgast ellefu
að kveldi tókum við þá ákvörðun að
skottast upp á fæðingardeild til að
eiga möguleika á drippi (þótt hríð-
arnar hefðu ekkert orðið kraftminni).
Sonur okkar var þverhaus og vildi
greinilega fá aðstoð fleiri við að koma
í heiminn, kannski bara hrifinn af
spítölum og þjónustunni þar alveg
eins og pabbi hans. Hann var búinn
að kúka í legvatnið til að fá sitt fram
en hjartsláttur var þó í fullkomnum
63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Fækkaðu
hleðslu-
tækjunum
á heimilinu,
skrifstofunni
eða sumar-
bústaðnum.
Tengill með USB
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
fasteignir
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is