Læknablaðið - 01.05.2018, Side 4
231
Þórir Björgúlfsson, Gerður Gröndal, Þorsteinn Blöndal, Björn Guðbjörnsson
Skimun fyrir berklum meðal gigtarsjúklinga sem hófu
meðferð með TNFα-hemlum á Íslandi 1999-2014
Nýgengi berklaveiki og árangur af berklasmitsskimun í hópi gigtarsjúklinga á
TNFα- hemlum hér á landi er óþekkt. Sérstaða landsins vegna lágs nýgengis
berklaveiki og vísbendingar um að skimun fyrir berklasmiti gæti verið skilvirkari en
í nágrannalöndunum vegna minni hættu á falskt jákvæðum prófum hafa vakið upp
spurningar um hvort yfirleitt sé þörf á að skima fyrir berklum áður en meðferð er
hafin.
177
Sævar Þór Vignisson, Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir, Þórarinn Guðnason,
Ragnar Danielsen, Maríanna Garðarsdóttir, Karl Andersen
Brátt kransæðaheilkenni hjá sjúklingum með eðlilegar eða
nær eðlilegar kransæðar
Dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma hefur lækkað talsvert síðustu áratugi og
það sem er sérstakt við það er að hlutfallslega hefur lækkunin orðið minni hjá yngra
fólki en því eldra, sérstaklega ungum konum. Breytingar á áhættuþáttum, lifnað-
arháttum og aukin notkun verndandi hjartalyfja á þessari öld eru talin hafa áhrif á
þessar breytingar. Reykingar hafa minnkað og heildarkólesteról hefur lækkað en
sykursýki og offita hafa hins vegar aukist.
224 LÆKNAblaðið 2018/104
F R Æ Ð I G R E I N A R
5. tölublað ● 104. árgangur ● 2018
227
Karl Andersen
Þegar þokunni léttir
Með frumvarpi sem nú liggur
fyrir Alþingi er þeim sem kjósa
að nota rafsígarettur frjálst að
gera það. Hins vegar felur það
ekki í sér leyfi til að útsetja
aðra fyrir veipgufu sem hefur
ófyrirséð heilsufarsleg áhrif
á þá sem fyrir því verða. Það
eru sjálfsögð mannréttindi að
fá að anda að sér hreinu og
ómenguðu lofti. Sá réttur
vegur þyngra en réttur
manna til óheftrar notkunar
rafsígarettna.
229
Steinunn Þórðardóttir
Alzheimer-sjúk-
dómur faraldur
21. aldarinnar
Það gætir mikils úrræða-
leysis í málaflokknum sem
veldur sjúklingum með
heilabilunarsjúkdóma og að-
standendum þeirra ómæld-
um þjáningum. Nú eru 200
einstaklingar að bíða eftir
sérhæfðri dagþjálfun á höf-
uðborgarsvæðinu og munu
þurfa að bíða í allt að tvö ár.
L E I Ð A R A R
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS 100 ÁRA
246
Steinunn Kristjánsdóttir
Bót og betrun. Lækningar í Skriðuklaustri
á fyrri hluta sextándu aldar
Rannsókn á beinagrindum, gripum og öðrum leifum sem
grafnar voru upp á Skriðu í Fljótsdal á árunum 2002-2012
sýna að spítali var starfræktur í klaustri því sem þar var rekið
frá 1493-1554. Íslendingar glímdu
augljóslega við sömu kvilla og aðrir
Evrópubúar á tímum klaustursins og
nutu samskonar lækninga. Notuð voru
meðul eins og kvikasilfur en líka leitað
í trúna. Niðurstöður rannsóknarinnar
benda til þess að tvöfalt heilsu-
verndarkerfi hafi verið rekið í landinu á
miðöldum, rétt eins og víðast hvar var
gert meðal í Evrópu á sama tíma.
249
Ritrýnar Læknablaðsins 2014-2017