Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.05.2018, Qupperneq 16

Læknablaðið - 01.05.2018, Qupperneq 16
236 LÆKNAblaðið 2018/104 Heimilislæknaþingið 2018 í Borgarnesi 5.-6. október Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna verður haldið á Hótel B-59 í Borgarnesi 5. og 6. október 2018. Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í erindum og á veggspjöldum. Útdráttum (sjá leiðbeiningar) skal skila til Emils L. Sigurðssonar á emilsig@hi.is og er skilafrestur til 26. ágúst næstkomandi. Ágripin verða birt í sérstöku riti þingsins. • Útdráttur á rannsókn skal rúmast á einu A4-blaði með hefðbundnum spássíum og hægri jöfnun. Texti getur að jafnaði verið um 300-350 orð. • Letur: Times New Roman. • Leturstærð 16 í fyrirsögn og 14 í megintexta. • Nota skal lágstafi í fyrirsögn. • Á eftir fyrirsögn koma nöfn höfunda. • Undirstrikið nafn flytjanda/aðalhöfundar ásamt vinnustað hans og tölvupóstfangi. • Ef um hefðbundna megindlega rannsókn er að ræða skal megintexta skipt í: Bakgrunnur; Tilgangur; Efniviður og aðferðir; Niðurstöður og Ályktanir. Framsetning eigindlegra rannsókna getur verið frjálslegri, en kaflaskipti æskileg. Að jafnaði er ekki gert ráð fyrir heimildalista í útdrætti. Þinginu lýkur með aðalfundi Félags íslenskra heimilislækna laugardaginn 6. október. Nánari dagskrá verður send í tölvupósti til félagsmanna þegar nær dregur. Fyrir hönd undirbúningsnefndar, Emil L. Sigurðsson

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.