Jökull


Jökull - 01.01.2012, Blaðsíða 18

Jökull - 01.01.2012, Blaðsíða 18
S. Steinþórsson Hekla 1947–1948 Heklugosið 1947 kom á heppilegum tíma fyrir Sig- urð Þórarinsson. Gosið hófst 29. mars og stóð í 13 mánuði, þannig að gott ráðrúm gafst til að rannsaka hina ýmsu þætti þess. Sigurði hafði snemma orðið ljóst að Hekla var lykillinn að íslensku gjóskutíma- tali, öskulög hennar og gossaga. Rannsóknir þeirra Hákonar Bjarnasonar á 4. áratugnum höfðu einkum beinst að ljósu lögunum á Norður- og Austurlandi, og fyrstu gjóskulagasnið sín kringum Heklu gróf Sigurð- ur í Þjórsárdal 1939. Þá var lítið vitað um Heklugos, hvorki til dæmis að samsetning gosefna breytist með tímanum né að meginhluti gjóskunnar kemur upp á tiltölulega mjög skömmum tíma. Þess vegna myndar gjóskan í hverju gosi oftast mjóan geira með ákveð- inni stefnu sem ræðst af vindátt við upphaf gossins. Þegar Sigurður var að vinna úr gögnum sínum frá 1939 urðu ýmis þessara vandamála honum ljós og kölluðu á frekari vinnu að stríðinu loknu. Þegar árið 1945 byrjaði hann að grafa gjóskulagasnið kringum Heklu, en sú vinna margefldist við gosið. Heklugosið vakti gríðarlega eftirtekt á Íslandi og að lokum var talið að hálf þjóðin hefði séð það. Einnig var það fyrsta eldgosið sem íslenskir vísinda- menn rannsökuðu, og vinna þeirra var vel skipu- lögð frá upphafi. Vísindafélag Íslendinga efndi ásamt Náttúrugripasafninu til fimm-binda ritraðar á ensku um rannsóknirnar undir ritstjórn Trausta Einarssonar, Guðmundar Kjartanssonar og Sigurðar Þórarinsson- ar. Sigurður skrifaði sjálfur fjórar greinar í Heklurit- ið, um 300 blaðsíður alls. Hin fyrsta (1950) lýsir að- draganda og upphafi gossins samkvæmt lýsingum 20 „sjónarvotta“. Fólk varð engra jarðhræringa vart fyr- ir gosið en húsdýr virtust finna einhvern titring 3–4 sólarhringa á undan. Nóttina fyrir gosið virtist titring- urinn hafa magnast og fundist í allt að 100 km fjar- lægð. Sýnilegt gos hófst 29. mars kl. 6:41, sterkur jarðskjálfti varð kl. 6:50 og kl. 7 hafði gosmökkurinn náð 26 km hæð. Einnig safnaði Sigurður ljósmyndum af upphafi gossins sem Trausti Einarsson vann úr. Önnur grein Sigurðar í Hekluritinu (1954) fjallar um öskufallið fyrsta dag gossins. Þar er að finna ýms- ar nýjar hugmyndir og nýungar í framsetningu. Ár- angur 96 mældra sýnishorna er tekinn saman í korti sem sýnir dreifingu grábrúnnar gjósku, annars vegar, og svartbrúnnar hins vegar, en logri (lógarithmi) með- alkornastærðar gjóskukorna myndar línulegt samband við fjarlægð frá eldfjallinu (2. mynd). Ferð gjósk- unnar frá Heklu um Skotland til Finnlands er rakin og skýrð með aðstoð sex veðurkorta. Og lokst birtist þarna í fyrsta sinn eitt kunnasta graf Sigurðar, sam- band SiO2-hlutfalls í upphafsgjósku hvers Heklugoss og tímalengdar frá næsta gosi á undan (3. mynd). Mesta grein Sigurðar í Hekluritið og hin þriðja var bókin The eruptions of Hekla in historical times. A tephrochronological study (1967), sem ári síðar kom út á íslensku undir nafninu Heklueldar. Þar rekur hann allt sem ritað hafði verið um Heklugos til og með 1693 en gerir um síðari gos útdrátt úr sívaxandi magni gagna. Þá birtir hann þykktar- og útbreiðslu- kort gjósku úr sjö Heklugosum frá 1104 til 1947, byggð á fjölda gjóskusniða. Upplýsingar um öll 14 gjóskulögin frá Heklu frá 1104 til 1947 eru dregnar saman í tvær myndir: önnur sýnir þykkt allra gjósku- laganna 15 km frá Heklu (5. mynd) og hin alla gjósku- geirana sem örvar á korti (4. mynd). Í fjórðu og síðustu grein sinni í Hekluritinu (1976) birtir Sigurður lýsingu á gangi gossins frá degi til dags og tekur saman í eitt graf hina ýmsu þætti þess sem fall af tíma: gjóskumyndun, hraunrennsli, jarðskjálfta, gossprengingar, virkni í hinum ýmsu gígum. Rannsóknirnar sem lýst er í Hekluritinu urðu hin mesta lyftistöng fyrir íslensk jarðvísindi og enn er vís- að til sumra greinanna, ekki síst lýsinga Sigurðar. Eft- ir Heklugosið 1947 var almennt talið að öld mundi líða áður en fjallið gysi aftur, en það rættist ekki því meðan Sigurður lifði urðu tvö Heklugos, 1970 og 1980–1981 (og eftir hans dag 1991 og 2000). Sigurð- ur, sem nú var jafnt heima sem heiman viðurkenndur sem fremsti eldfjallafræðingur Íslendinga, tók virkan þátt í rannsókn beggja gosa. Gjóskulögin tala Sumarið 1948 kom hingað leiðangur 15 sænskra land- fræðinga undir stjórn Hans Ahlmann og ferðuðust þeir um Suðurland undir leiðsögn Sigurðar. Eftir þann stutta leiðangur skrifaði hann grein í Geogra- fiska Annaler (1949) um notkun gjóskulaga við ald- ursgreiningu á sviði jöklajarðfræði og eldfjallafræði þar sem lýst er könnun á aldri jökulurða við Hagafells- jökul eystri, aldri Geysis í Haukadal og Helgafells- 16 JÖKULL No. 62, 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.