Jökull


Jökull - 01.01.2012, Blaðsíða 192

Jökull - 01.01.2012, Blaðsíða 192
Society report Um hagyrðinginn Sigurð Þórarinsson Halldór Ólafsson Suðurbraut 2, 220 Hafnarfjörður, hallo@hi.is Flestir landsmenn þekkja einhver kvæði sem Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur hefur ort við grípandi lög eins og til dæmis „Að lífið sé skjálfandi lítið gras“ og „Þórsmerkurljóð,“ en færri vita að hann átti auðvelt með að kasta fram vísum og stökum við ýmis tækifæri ef svo bar undir. Þær einkenndust flestar af notalegri kímni en voru aldrei rætnar eða meiðandi. Ég ætla í þessu greinarkorni að birta nokkrar vísur eftir Sigurð og segja frá tilurð þeirra eftir því sem föng eru á. Jónas Árnason rithöfundur og alþingismaður skrifaði viðtalsbók, sem kom út hjá Ægisútgáfunni 1963, og nefndi „Undir Fönn.“ Þar er að finna frásögn Ragnhildar Jónasdóttur sem hafði verið kaupakona hjá foreldrum Sigurðar, Snjólaugu Sigurðardóttur og Þórarni Stefánssyni á Teigi í Vopnafirði, sumarið 1916 þegar hann var fjögurra ára. Í frásögninni kemur fram að Sigurður hafi þá þegar verið fluglæs á bók, hvort sem hún snéri rétt eða öfugt. Þar segir meðal annars: „Siggi litli var mjög kotroskin og talaði stundum eins og fornmaður. Setningar hans féllu líka oft í stuðlaðar hendingar. Þarna mun hafa gætt áhrifanna frá því sem hann hafði lesið. Ég lá um skeið í lungnabólgu þetta sumar, og til að korta mér leiðindi gerði ég Sigga litla að nokkurs konar fréttastjóra hjá mér, hafði hann í för- um út og inni til að fylgjast með veðurfari, heyskap og mannaferðum. Siggi litli gegndi þessu starfi af mestu trúmennsku og var líka dálítið upp með sér af því, þó að hann ætti reyndar til að gleyma sér stund og stund þegar prófessorinn í honum náði yfirhöndinni. Eitt sinn kom hann inn og var venju fremur viðutan og stóð lengi kyrr á gólfinu án þess að segja orð. Loks spurði ég: „Sástu nokkuð Siggi minn?“ Og þá svaraði þessi fjögura ára snáði: „Tveir riðu menn fram Mela.“ Tilvitnun líkur. Snemma beygist krókurinn til þess sem verða vill, segir máltækið. Ekki veit ég hvenær Sigurður Þórar- insson fór að glíma við bragfræði ferskeytlunnar eða gerði sína fyrstu vísu, en miðað við frásögnina hér að framan hefur hann þegar á barnsaldri verið byrjaður á því, enda brageyrað til staðar. Hann sagði mér einu sinni að þegar hann kom fyrst í skóla á Akureyri, var hann svo pasturslítill og smávaxinn að sumir skólafé- lagar lögðu hann í einelti, eins og það er kallað nú á dögum. En Sigurður komst fljótt að því að hann var jafnoki þeirra á andlega sviðinu, eða eins og hann orð- aði það sjálfur; „ég kvaldi þá bara með kjaftinum þeg- ar með þurfti.“ Ekkert hefur lifað af þeim kersknisvís- um sem Sigurður orti um skólabræður sína enda hafa þeir varla haldið þeim á lofti. Eitt er víst, þeir kássuð- ust ekki upp á hann eftir fyrsta misserið því þarna var kominn, eins og Kristján Eldjárn orðaði það í afmælis- grein; „undrapiltur að gáfum og námshæfileikum þótt yngstur væri í bekknum.“ Sigurður hirti lítt um að halda vísum sínum til haga og ef ekki var einhver viðstaddur sem nam þær eða skráði, þá fóru þær út í veður og vind. En oft sendi hann vísur til vina á hátíðastundum í lífi þeirra, með jólakveðjum eða skráði í gestabækur. Hér eru nokkur dæmi um það. Á einhverjum tímamótum í lífi Magnúsar Kjaran stórkaupmanns varð þessi vísa eftir í gestabókinni: Þulið er margt í þakkarræðum, þykir mér jafnan klén sú varan. En af hans konu og af hans skræðum öfunda ég Magnús Kjaran. Einhverju sinni á tímum Kröfluelda, eftir langa innilegu í húsi Norrænu eldfjallastöðvarinnar í Mý- vatnssveit vegna stórhríðar, var þessi vísa skrifuð í gestabók hússins: Víst er þó að voni ég að veðri sloti, að öll var dvölin yndisleg í Eldakoti. 190 JÖKULL No. 62, 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.