Jökull


Jökull - 01.01.2012, Blaðsíða 189

Jökull - 01.01.2012, Blaðsíða 189
Ferð til Dyngjufjalla 1962 Guðmundur og Björn fóru á undan okkur Sigurði til Dyngjufjalla og meiningin var að þeir sæktu okkur nokkrum dögum síðar til Akureyrar. En er þeir komu þangað á tilteknum tíma stóð svo á, að Guðmundur þurfti að fara til Reykjavíkur vegna fjölskyldumála. Varð að ráði að Björn biði fyrir norðan á meðan, því við Sigurður vorum tilbúnir í Reykjavík að fara með Guðmundi þegar hann hefði sinnt sínum málum. Á leiðinni norður hafði ég til umráða aftursæti jeppans og fór vel um mig þótt ég sé í lengra lagi. Fyrsti áfang- inn var til Akureyrar og þar gistum við um nóttina. Áður en lagt var af stað frá Akureyri næsta dag, voru keypt matföng til ferðarinnar og einnig tvær flöskur af vodka í ríkinu á staðnum. Þannig stóð á, að við Guðmundur áttum afmæli um þessar mundir, hann þrítugur en ég tuttugu og fimm. Þetta var því nokk- urskonar afmælisferð. Ekki spillti heldur væntanlegri veislugleði að Sigurður hafði orðið fimmtugur um vet- urinn svo tilefni áfengiskaupanna fannst okkur ærið. Þar sem Björn var genginn til liðs við okkur þrengdist í aftursætinu. Það varð því að samkomulagi að ég fengi að sitja í framsætinnu til að byrja með og naut ég þess nú hversu ólánlega líkur ég var bíleig- andanum, báðir nokkuð háir til hnésins, og af sömu ástæðu fékk ég að hvíla bílstjórann öðru hvoru. Að innkaupum loknum var haldið sem leið lá yfir Vaðla- heiði, um Ljósavatnsskarð og Báðardal í Svartárkot. Þar þáðum við góðgerðir hjá því mæta fólki Guð- rúnu Benediktsdóttur og Herði Tryggvasyni áður en lagt var af stað suður í Ódáðahraun. Þegar við höfð- um kvatt heimafólk í Svartárkoti og þá rausn sem þar var í garði, rifjaði Sigurður upp vísu Barna-Þórðar er hann skrifaði í leirflag þar sem hann beið Odds bisk- ups Einarssonar: Biskups hef ég beðið með raun og bitið lítinn kost; áður ég lagði á Ódáðahraun át ég þurran ost. Ekin var slóðin til Suðurárbotna og áfram hrauna- skilin milli Útbruna og Frambruna inn í Dyngjufjalla- dal. Þegar komið var suður undir miðjan dalinn, þar sem hann þrengist mikið, slógum við upp tjöldum við lækjarsytru sem rann þar um skessukatla og þvegnar klappir. Þetta fyrsta kvöld okkar á fjöllum var mér ætlað að sjá um matseld, en eitthvað þótti félögum mínum sú athöfn ganga seint og illa. Frammistaða mín við eldamennskuna þetta kyrrláta kvöld varð sem sé með þeim hætti að mér var ekki treyst fyrir þeirri listgrein það sem eftir lifði ferðar. Morguninn eftir gengum við á Dyngjufjöll ytri, en það er lágvaxinn fjallsröðull vestan Dyngjufjalladals. Þar uppi fundum við kulnað hverasvæði sem virtist liggja eftir endilöngum fjöllunum. Eftir að hafa dval- ið þar efra drykklanga stund við rannsóknir og sýna- tökur gengum við til baka og ókum suður dalinn að Fjallsenda, en þar má einna best sjá berggrunn fjall- anna. Hollenskir jarðfræðingar höfðu verið á þess- um slóðum nokkru fyrr og komið með þá tilgátu að Dyngjufjöll ytri væru mynduð úr eldskýi og fjöllin því úr flikrubergi sem heitir á erlendum málum „ignim- brite“. Þorleifur Einarsson jarðfræðingur, vinur og skólabróðir Guðmundar, hafði tekið undir þessa kenn- ingu Hollendinganna. Eftir athuganir Guðmundar og Sigurðar við Fjallsenda komust þeir að raun um að tilgáta Þorleifs og Hollendinga stóðst ekki skoðun, í bergstaflanum var ekkert flikruberg að finna, aðeins lagskipt túff. Það var ekki sterkasta hlið Guðmundar að setja hugsanir sínar í bundið mál, en hann lang- aði nú til að stríða fornvini sínum og byrjaði að hnoða saman vísu honum til háðungar: Í getspá Þorleifs gef ég skít um gaspur ekki þinga — en þarna varð hlé á kveðskapnum því framhaldið vafð- ist eitthvað fyrir Guðmundi. Sigurður kom honum þá til hjálpar og botnaði: til andskotans með ignimbrite og alla Hollendinga. Eftir afrek okkar við Fjallsenda var haldið til baka í tjaldstað þar sem Björn tók til við matseld en við hinir biðum við bílinn og hlustuðum á kvöldfréttir í útvarpinu. Þulurinn fór vítt og breitt um atburði líð- andi stundar og endaði fréttatímann á slysförum og af- brotum. Lokafréttin var eitthvað á þá leið að óprúttn- um starfsmanni Áfengisverslunar ríkisins á Akureyri, hefði tekist að fylla vodka flöskur af vatni án þess að rjúfa tappainnsiglið og að allmargar vatnsfylltar flöskur hefðu verið seldar! Okkur setti hljóða við þessa frétt og það voru kvíðafullir menn sem settust að snæðingi um kvöldið. Var nú einhver gírugur ang- urgapi norður á Akureyri búinn að spilla væntanlegri JÖKULL No. 62, 2011 187
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.