Breiðfirðingur - 01.04.1944, Qupperneq 23
BREIÐFIRÐINGUR
21
er um það, að kirkja hefir staðið þar um margar aldir,
líklega frá því um miðja 11. öld. Hvainmskirkja var helg-
uð Guði allsvaldanda og sælli Guðs móður, Maríu, Jó-
hannesi baptista, Pétri og Jóhannesi postulum, Ólafi
konungi og Þorláki biskupi, Maríu Magdalenu og öllum
Guðs helgum mönnum. Kirkjan, sem nú er i Hvammi,
er snotur timburkirkja með laglegum turni og forkirkju,
aljárnvarin og með rauðmáluðu þaki. Hún var byggð
af Guðmundi heit. Jakobssyni frá Sauðafelli, bygginga-
meistara 1881 og fékk mikla viðgerð 1924 ög nokkra
síðar. Kvenfélagið „Guðrún Ósvífursdóttir“ í Hvamms-
sókn hefir komið upp snotrum skrúðgarði við suð'ur-
blio kirkjunnar.
í brúðkaupsveizlu Ólafs feilans og Álfdisar binnar
barreysku mælti Auður djúpúðga þessi orð siðust áður
en bún gekk til binztu bvíldar: „Björn kveð ek at þessu
bróður minn. ok Helga ok aðra frændr mína ok vini;
bólstað benna með slíkum búnaði, sem nú megu þér sjá,
sel ek i bendr Ólafi, frænda mínum, til eignar ok for-
ráða (Laxd. 7. k.). Mcð þessum orðum arfleiddi hún
sonarson sinn að Hvammi og hélzt bann í ætt bennar
lengi síðan. Hvamm-Sturla, sem var 9. liður frá Auði
djúpúðgu, bjó þar allan söguríkasta kafla æfi sinnar og
þar fæddust hinir frægu synir lians, Þórður, Sighvatur
og Snorri. Hvammur var bændaeign fram undir siða-
skipli og var hændum gert að halda þar bæði prest og
djákna, enda voru þá Sælingsdalstunga og Ásgarður
annexiur frá Hvammi lengst af óslilið eftir siðaskipti,
þangað til þær kirkjur voru lagðar niður á síðastl. öld,
í Sælingsdalstungu 1853 og Ásgarðskirkja 1882. Hvamm-
ur var óðalseign Björns Guðnasonar sýslumanns í Ögri
og urðu miklar og langvinnar erfðadeilur um hann á-
samt Ásgarði, Vatnsfirði og Stað í Aðalvík milli þeirra
frænda og nafna Björns Þorleifssonar og Björns Guðna-
sonar, sem lyktaði með því, að ekkja Björns Guðnason-
ar, Ragnbildur Bjarnadóttir, galt Hvamm og Ásgarð