Breiðfirðingur - 01.04.1944, Page 108
BREIÐFIRÐINGUR
Brotinn leir
Eftir HRAFN HRAFNSSON
VORÞRÁ.
Lag: Kvöldið er fagurt.
Lífgandi blærinn leggur traf
löðrandi Ægis brám.
Drjúpandi glitra daggir af
dreymandi blómnm smám.
Hrellandi seiða huga minn
heillandi fjöllin blá.
Örvandi finn ég enn um sinn
ólgandi vorsins ]>rá.
VIÐ GÖNGUM GLAÐIR.
Lag: Fader Movitz, bror.
Við göngum glaðir um stund
glæstan æskunnar lund,
njótum sólar, sumars, syngjum við raust,
bergjum bikarinn fljótt,
bikar vorilmsins skjótt,
því blöðin falla, brátt kemur haust.
Heill, bæði æsku, gleði og ást.
Já, heill, bræður, yndi, sem ei brást.
Látum lauga vorn hug
léttan söng, hefjum flug
heim í friðsæl bernskunnar lönd.
FLÖKKUMANNALJÓÐ.
Einn ég sit og enga gleði finn,
aðeins sorgin gistir huga minn,
hnípinin trega horfin draumalönd,
lmepptur í skuggans römmu klakabönd.