Breiðfirðingur - 01.04.1945, Síða 21
BREIÐFIRÐINGUR
19
Af húsinu fréttist ekkert nema það, að efni til þess
væri fengið, en það átti að vera tilbúið um miðjan maí-
mánuð, þvi að þá var svo ráð fyrir gert, að Þrándur
sonur minn, 12 ára gamall, og ég færum vestur, til þess
að vera þar í byrjun varptímans. Ég liafði komið þvi
svo fyrir, að ég var búinn með ]iróf um 17. maí, og þá
skyldi lagt sem fyrst af stað. Um þetta leyti náði ég
tali af smiðnum vestra og spurði eftir liúsinu. Af því
var það að frétta, að ekkert var byrjað á smíðinni, en
þó farið að iilaða grunninn, og ekki tæki nema nokkra
daga að slá upp skúrnum. Við létum þetta því ekki
aftra för okkar og ákváðum, að leggja af stað með tjald
og liggja í því, meðan verið væri að fullgera liúsið.
Þann 19. maí var svo lagt af stað og vorum við svo
heppnir að ná í bílferð alla leið og var annar áætlunar-
bíllinn vöruliíll með nokkrum sætum og vormn við i
honum með allt draslið, sem okkur fylgdi, en það var
töluverður farangur. Segir lítið af þvi ferðalagi, fyrr
en við komum í Stykkishólm um kvöldið, það gekk alll
slysalaust. í Stykkisliólmi settumst við að í gistihúsinu.
Ekki leið á löngu áður en við færum að grennslast
eftir bátnum, sem smíðaður var þarna í Stykkishólmi.
Það var verið að leggja seinustu hönd á verkið, koma
fyrir vélinni og leggja kjaldragið. Þetta er myndarleg-
ur bátur, traustlegur og virðist munu vera gott sjóskip.
Morguninn eftir er báturinn svo settur á flot, og fóru
]ieir Þrándur og sonur smiðsins strax reynsluför á hon-
um út á höfn. Hann gekk vel hjá þeim, en reynsluferð-
in varð stutt og þeir komu róandi að landi, því að vél-
in varð fljótt benzinlaus.
Við höfðum vonað, að geta liaft samflot út í eyjar
með smiðnum, sem lieima á í Arney og ætlaði þangað
til bús sins, en svo vel varð nú ekki. Þetta var 20. maí
og nú var skilnaðar- og lýðveldisatkvæðagreiðslan að
byrja. Þeir Arneyjarfeðgar þurftu því að fara lil Dag-
verðarness, en þar er þeirra þingstaður, og vera komnir
2*