Breiðfirðingur - 01.04.1945, Side 52
50
BREIÐFIRÐINGUIi
við Þorberg höggvinkinna, því alls staðar voru þeir
vel metnir eftir sem áður. Það sést einnig, að börn Glúms
liafa verið talin í röð lieldri manna og ætla ég nú að
skýra það með fáeinum orðum.
Eins og kunnugt er, þótti það sjálfsagt, til forna, að
ineð hjónaefnum væri nokkurnveginn jafnræði, og leyn-
ir það sér ekki, að hörn Glúms og Ingunnar hafa þótt
mannvænleg. Þórarinn, sem átti Þorgerði dóttur Glúms,
var sonur Ingjalds í Hergilsey. Sonur þeirra var Helgu-
Steinar skáld. Ingjaldur varð þjóðkunnur fyrir sína
drengilegu framkomu við Gísla Súrsson. Faðir Ingj-
alds var Hergils, er eyjan dregur nafn af, en Hergils
var sonur Þrándar mjóbeins, er nam eyjar fyrir vestan
Bjarneyjarflóa og lijó í Flatey. Kona Þrándar var Hall-
gríma dóttir Gils skeiðanefs, er nam Gilsfjörð og hjó
á Kleifum. Tveir synir Gils tóku sér bólfestu við Gils-
fjörð og eru hýli þeirra nú talin í Geiradalshreppi. Her-
finnur hjó í Múla,*) en Héðinn í Garpsdal. Sonur Héð-
ins var Halldór Garpsdalsgoði, en sonur lians var Þor-
valdur, er átti Guðrún Ósvífursdóttir frá Laugum.
Guðrúnu er lýst þannig í Laxdælasögu: Hon var
kvenna vænst, er upp óxu á íslandi, bæði at ásjánu ok
vitsmunum, Guðrún var kurteis kona, svá at í þann
tíma þóttu alt harnavípur, þat er aðrar konur höfðu i
skarti lijá henni.
Þorvaldur í Garpsdal var stórauðugur maður og af
*) Milli Múla og Gilsfjarðarbrekku er hamarinn Drifandi, sem
nefndur er í Fóstbræðrasögu (ísl. fornrit bls. 150). Þar stendur:
En er þeir fóstbræður riðu inn at á þeirri, er heitir Drífandi, —
hon er í Gilsfirði — o. s. frv. Neðanmáls er þetta leiðrétt, en
siðast í leiðréttingunni er sagt, að Drífandi sé eðlilegra heiti
á á en hamri. Fyrir þreni árum ferðaðist ég þarna um og virt-
ist mér Drífandi bera nafn sitt með réttu. Þannig hagar til
þarna, að upp á hamrinum, i hliðárlögginni, er afæta og seytl-
ar vatn því alltaf um klettinn. Það er algengt að taka svo til
orða, að niður af þeim drjúpi (eða drífi), sem vatn flóir yfir.