Breiðfirðingur - 01.04.1945, Side 57
BREIÐFIRÐINGUR
55
Frá Bjarna Þórðarsyni
á Reykhólum
Sftir Pétur ^ónaon fró Stöll IA
Þeir, sem kunnugir eru Vestfjörðum og Vestfirðinga-
fjórðungi, vita, að Reykliólar í Reykhólasveit eru eitt
gagnauðugasta höfuðbólið í kringum allan Rreiðafjörð
og það svo, að miklu nemur, þótt víða sé vel, því að
Reykhólum tillieyra flest þau hlunninda-afnot, sem
talin verða einni bújörð til gildis, önnur en heimræði,
laxveiði og viðai-reki. Ennfremur og sennilega hið þýð-
ingarmesta á komandi árum, er þar ærinn jarðhiti
og fjöldi livera og lauga, fremur en nokkurs staðar á
Vestfjörðum. Hversu mikil auðlind hlunnindi þau verða
höfuðbóli þessu og nágrenni þess á komandi árum og
öldum, er nú óráðin gáta.
Þótt undarlegt kunni að virðast, liafa engir þeir höfð-
ingjar húið á Reykhólum á hinum siðari öldum, sem
skarað hafa fram úr öðrum samtíðarmönnum næstu
héraða eða gert þar garðinn frægari öðrum nytjaminni
höfuðbólum, sem að Rreiðafirði liggja, þar til Rjarni
Þórðarson flutti þangað 1869, en þar hjó hann síðan i
þrjátíu ár með þeirri rausn á ýmsa lund, að þess nnin
lengi verða minnzt. Enda átti kona hans, Þórey Páls-
dóttir, sinn góða lilut og drjúga að því, að gera garð-
inn frægan um þeirra daga.
Hér skal nú leitazt við að segja lítils háttar frá ýmsu
viðvikjandi Rjarna Þórðarsyni, en ævisaga getur það
engin orðið. Þar er af svo miklu að taka, að því efni
verður ekki þjappað saman í stutta tímaritsgrein.
Fyrst skal þá getið æviatriða Rjarna. Hann var fædd-
ur 28. april 1837 að Relgsliolti í Melasveit í Rorgarfjarð-
arsýslu. Þar dvaldi liann til tólf ára aldurs. Vorið 1849
fluttist hann að Fiskilæk i sömu sveit til Sigurðar móð-