Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 84
82
BREIÐFIRÐINGUR
Steinn A. Jónsson þakkaði kórnum fyrir komuna og þá
óvenjulegu og ágætu skemmtun, er hann flutti þangað
í eyna.
Þess má geta, að elzti áheyrandinn þarna í Flatej'
var hálfsystir Jóns heitins Sveinssonar (Nonna), Ivrist-
ín Guðmundsdóttir. Hún er nú 94 ára, en hefir lítt skerta
heyrn og kvaðst hafa haft óblandna ánægju af söngnum.
Frá Flatey var farið kl. 4, og söng kórinn að skilnaði
eitt lag á bryggjunni áður en stigið var á skipsfjöl, en
fararstjóri árnaði Flateyjarbúum allra heilla og þakk-
aði elskulegar móttökur. Næsti áfangi var Stykkishólm-
ur. Þegar lagt var þar að bryggju, blakti íslenzki fán-
inn og fáni Breiðfirðingafélagsins í stafni, en kórinn
söng lagið: Brúum sundin, Breiðfirðingar. Karlakór
Stykkishólms stóð á bryggjunni og heilsaði ferðafólkinu
með því að syngja eitt lag.
Um kvöldið kl. 8 var gengið fylktu liði frá Hótel Helga-
fell, þar sem kórinn hafði aðsetur, og til samkomuhúss-
ins. En þar söng kórinn tvisvar með stuttu millibili.
Aðgöngumiðar að fyrri söngskemmtuninni seldust upp
á örfáum mínútum, svo að ekki varð hjá því komizt
að endurtaka sönginn fyrir þá, sem ekki komust að.
Það var þó eingöngu fyrir dugnað söngstjórans og kór-
félaga, að slíkt var unnt, því að þeir vorn þá búnir að
syngja tvisvar stuttu áður og leggja á sig miklar vökur
og erfiði undanfarna sólarhringa. Kórinn liafði þannig
þrjá samsöngva á einum og samá degi, og mun það vera
mjög óvenjulegt.
Áður en söngnrinn hófst í Stykkishólmi, ávarpaði sr.
Sigurðnr Lárnsson kórinn og bauð hann velkominn,
fararstjóri þakkaði. Undirtektir álievrenda voru prýði-
legar. Þegar kórinn hafði sungið, var drukkið kaffi i
boði Stykkishólmshrepps. Þá töluðu m. a. Kristján Bjart-
marz, oddviti, Ólafur Jónsson frá Elliðaey, frú Sesselja
Konráðsdóttir, .Tón Eyjólfsson, söngstjóri kirkjukórsins
og Bjarni Andrésson, söngstjóri karlakórs Stykkishólms,