Breiðfirðingur - 01.04.1946, Blaðsíða 24
14
BREIÐFIRÐINGUR
Höfuðbólið Skarð á Skarðsströnd.
eitt vers í staðinn fyrir einn sálm, en lagði svo fvrir
áður, að liafa skyldi hest sinn söðlaðan í messulok. Reið
hann síðan inn að Fagradal þegar eftir messu.
Þá er fólk var fyrir nokkru farið til kirkju frá Fagra-
dal innri, gekk liúsfreyjan, Helga Sigmundsdóttir, til
fatakistu sinnar að viðra föt sín. Hún átti sjónauka, sem
geymdur var í kistunni. Hugði liún að móða væri kom-
in á glerin, skrúfaði því sjónaukann sundur og þurrk-
aði þau. Að því búnu gekk hún með sjónaukann út á
ldað, brá honum fyrir auga sér og litaðist um. Sá hún
þá eitthvað á hreyfingu í Fagurey, varð bilt við, og
fór til bónda sins og spurði liann, livort nokkrar skepn-
ur ættu að vera í eynni, en liann kvað svo ekki vera.
Kindur þær, er þar hefðu verið til haustgöngu, væru
fyrir löngu heim fluttar. Yið nánari athugun sáu þau
greinilega að maður var í eynni. Ekki var um að efast,
að hann hlaut að vera þar tepptur, hvernig sem á ferð-
um lians stæði þangað.
Brá Ólafur þegar við, fékk menn sér til aðstoðai,