Breiðfirðingur - 01.04.1946, Blaðsíða 54
44
BREIÐFIRÐINGUR
SAUTJÁNDI JÚNÍ1946
Blómin anga, blærinn strýkur blítt um vanga,
fuglar syngja fögrum rómi,
finnst mér eins og gígjur ómi.
Lækir hjala, lindir hvísla, léttar bárur
fara í leik við fjörusteina,
frjálsar, svo að skyn má greina.
Þjóðin fagnar þessum degi, þalckir geldur
foringjum, er fremstir stóðu,
og frelsisgrunninn traustan hlóðu.
Ævin rennur undra fljótt í elfur tímans,
eins og fljúgi ör af boga,
ákaft dauðans Icyndlar loga.
Hnígur stöðugt héluð rós að hauðri, kalin,
þegar gríma greipar spennir,
geigvæn, ígul-sjónum rennir.
Lofa skal þó lífsins fögru, leyndu drauma,
þá sem alla ævi skina
frá æsku vorrar glæsta tíma.
sín versta slarkferð á sjó. Og þótt hann legðist að
lokum lík í sjó, myndi það ekki verða erfiðara. Lík-
ast til þó, að undanteknum mannskaða-róðrinum und-
ir Jökli, sbr. sögu hans.
Pétur Jónsson
frá Stökkum.