Breiðfirðingur - 01.04.1946, Side 90
80
BREIÐFIRÐINGUB
kveðin ætlun mín, að segja af sér ritstjórn lians. En
fyrir þrábeiðni vinar míns, Jóns Eniils Guðjónssonar,
lét ég að lokum til leiðast að annast ritið i þetta sinn,
gegn því að losna frá störfum við það næstkomandi
vetur.
Ég vil því nú nota tækifærið og þakka öllum, sem
ég hefi átt skipti við vegna ritsins i þau þrjú ár, sem
ég hefi annazt það. Allir, sem ég liefi snúið mér til
vegna þess, liafa brugðizt vel við og drengilega.
Um þennan síðasta árgang er ekkert sérstakt að segja.
Hann hefur sína galla, og ég vona einnig einliverja
kosti. Gallarnir eru áreiðanlega engum ljósari en mér,
en ég' vona, að lesandinn fari um þá mildum hönd-
um og virði það, sem vel er gert.
Jakob Jóh. Smári, adjunkt, hefir, eins og undan-
farin ár, lesið með mér eina próförk, og kann ég hon-
um óskipta þökk fyrir það vinarbragð. Þá þakka ég
Félagsprentsmiðjunni prýðilegt samstarf.
Að lokum óska ég Breiðfirðingi allra heilla í hönd-
um þeirra, sem við honum taka.
Rvík, 13. okt. 1946.
Jón Sigtryggsson.
Fclagsprentsmiðjan h.f.