Breiðfirðingur - 01.04.1946, Qupperneq 82
72
BREIÐFIRÐINGUIl
þessu og labbaði af stað, þegar ég var búinn að drekka
kaffið.
Það var nú stundum ekki auðhlaupið að því, að finna
kindur á dalnum. Þar voru margar lautir og hvammar,
en ekki voru margir kunnugri á dalnum en ég.
Að tveim klukkutímum liðnum var ég búinn að finna
Bíldu. Hún var borin og átti mórauða gimbur með hvita
stjörnu í enninu. Lambið var ljómandi fallegt. Mér fannst
varla rétt að kalla það mórautt. Það var eiginlega dökk-
kaffibrúnt. Ég skildi Bíldu eftir fyrir ofan túngarðinn
og labbaði heim.
Pabbi og mamma stóðu úti á hlaðinu, þegar ég kom
heim.
Pabbi sagði: Ekki varstu lengi að finna Bíldu. Hvað
á hún?
Mórauða gimbur.
Er hún falleg?
Já, ljómandi falleg; dökk-mórauð með stjörnu í enninu.
Manstu hvaða dagur er í dag?
Já, afmælisdagurinn minn.
Það byrjar sæmilega hjá þér tólfta árið. Við vorum
búin að ákveða það, að gefa þcr lambið, ef það væri
gimbur, en hrútlamb hefðum við ekki gefið þér, svo
lánið hefur nú leikið við þig í þetta sinn.
Á ég þá að eiga lambið? spurði ég, því ég gat varla
trúað því, að ég hefði lieyrt rétt.
Já, sögðu þau bæði.
Ég kyssti þau fyrir og réði mér varla fyrir kæti.
Þetta var fyrsta kindin, sem ég eignaðist.
Við gengum nú inn. Á dúkuðu borði beið kaffi með
kleinum og pönnukökum handa öllu fólkinu. Það var
afmælisveizlan. »
Meðan við vorurn að drekka, var ég alltaf. að hugsa
um lambið. Ég var nú búinn að eignast kind, sem gat
orðið stór og eignast mörg lömb, ef til vill öll mórauð
með livíta stjörnu í enninu. Það væri gaman að eignast